27.10.1980
Neðri deild: 6. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

5. mál, barnalög

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Frv. til barnalaga var fyrst lagt fram á Alþ. vorið 1976, en síðan endurflutt fjórum sinnum og er nú lagt fyrir Alþ. í sjötta sinn. Ekki mun frv. hafa komið til umr. nema tvisvar. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á frv. eftir að það var fyrst lagt fram. Var það í fyrstu í upphafi árs 1979, en nefndir, sem áður fengu málið til meðferðar í þinginu, höfðu aflað umsagna og ýmsar breytingar verið gerðar með hliðsjón af þeim ábendingum, og einnig var horft til framþróunar á þessu sviði í nágrannalöndunum. Af líkum toga eru svo spunnar þær breytingar sem nú síðsumars voru enn gerðar á frv., en þær vita nær eingöngu að því að nema burt ákvæði sem mörkuðu stöðu barna óvígðra foreldra í sambúð sem skyldu eftir ákveðnum beinum mörkum talin skilgetin. Kemur hvort tveggja til, að þetta hefur sætt nokkurri gagnrýni svo og að nú má sjá

að annars staðar á Norðurlöndum er ekki farið inn á slíkar brautir. Hins vegar er því haldið, að sambúð foreldra feli í nokkru rýmra mæli í sér faðernisviðurkenningu en eftir núgildandi reglum, sem þó hafa til skamms tíma verið rýmri hér á landi í því efni en löggjöf í nágrannalöndunum.

Svo sem áður er getið hefur tvívegis komið til þess, að mælt væri fyrir frv. til barnalaga í þinginu. Ekki er ástæða til að endurtaka ýmsar ábendingar sem við þau tækifæri hafa verið gefnar um innihald og markmið frv. Þó er nauðsynlegt að undirstrika enn höfuðsjónarmið og vekja athygli á einstökum atriðum, sem ýmist eru ný eða hafa sætt aukinni útlistun í grg. til skilningsauka á nýjum viðhorfum.

Svo sem áður hefur verið lýst og ítarlegar er skýrt frá í grg. byggist núgildandi löggjöf um réttarstöðu barna enn að höfuðstofni til á norrænu lagasamstarfi eftir síðustu aldamót. Var gripið til þeirrar nýsmíðar sem fyrirmyndar er samþykkt hafði verið þál. á Alþingi 1917 um endurnýjun löggjafar á þessu sviði. Sú lagavinna hafði verið mjög vönduð og markað tímamót á öllum Norðurlöndum. Verður ekki annað sagt en að löggjöfin hafi reynst hin traustasta smíð, einnig hér á landi, en hún er mótuð í tvennum lögum: um afstöðu foreldra til skilgetinna barna og um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna. Engan þarf að undra þótt löggjöf, sem nálgast að verða 60 ára gömul, þarfnist töluverðrar endurnýjunar. Svo miklar breytingar hafa orðið í þjóðlífi og þjóðfélagsháttum á áratugunum eftir tvennar heimsstyrjaldir, ekki síst í íslensku þjóðfélagi. Má e.t.v, þrátt fyrir allt líta á það sem staðfestingu á stöðugleika hinnar íslensku þjóðfélagsgerðar og raunsæi hinnar gömlu löggjafar, að segja má að höfuðsjónarmiðum hennar sé ekki raskað með hinu nýja frv.

Ég mun nú geta nokkurra höfuðatriða í nýmælum frv. Það er þá fyrst sú bygging frv. sjálfs að fjalla í einum lagabálki og — eftir því sem kostur hefur verið talinn — samtímis um óskilgetin börn og skilgetin. Hins vegar er ekki hróflað við reglunni um sjálfkrafa löglíkur fyrir faðerni eiginmanns að barni eiginkonu, hinni svokölluðu „Pater est“ reglu, þ.e. „Pater est quem nuptiae demonstant.“ Hins vegar er í frv. nokkuð slakað á um kröfur á andsönnun gegn faðerni eiginmanns að barni, sem samkv. gildandi lögum er hafnað nema heita megi alls útilokað að eiginmaður sé faðir barnsins. Er þessi breyting gerð að norrænni fyrirmynd. Á hinn bóginn varð samkv. till. um lagareglur í upphafi frv. nokkur hópur barna skoðaður skilgetinn að lögum sem samkv. núgildandi lagareglum eru óskilgetinn. Er þar um að ræða nokkurn hluta þeirra barna sem fædd eru eftir tilteknum greinimörkum í eða fyrir óvígða sambúð foreldra þeirra. Þegar eftir lögunum um óskilgetin börn frá 1921 gilti sú regla, að tiltekin óvígð sambúð karls og konu jafngilti faðernisjátningu að barni er konan átti meðan sambúðin stóð. Líklegt var að ekki yrðu allir sammála um þessa nýju reglu um útvíkkun hugtaksins „skilgetið barn“, og hafa þau ákvæði verið felld niður, eins og áður var sagt. Ég vil þó vekja athygli á því, að sú regla kom að hluta til inn í löggjöfina við endurnýjun laganna um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna frá árinu 1947. Upp í 2. gr. þeirra laga, sem enn eru í gildi, var tekin sú regla, að þegar foreldrar óskilgetins barns ganga í hjúskap síðar skal barnið talið skilgetið upp frá því.

Í því sambandi eru sérstaklega athyglisverðar upplýsingar í grg. frv. 1979. Var þar skýrt frá tölfræðilegri könnun sem birt er í Hagtíðindum 1978 og gerð var af Guðna Baldurssyni cand. oecon. og veitir m.a. upplýsingar um fjölskyldustöðu barna fæddra 1970 við fæðingu og síðar við upphaf hvers aldursárs fram til 1. des. 1975. Kemur þar fram að ferill barnanna breytist að hundraðshluta til á þessum fimm árum þannig, að óskilgetin töldust við fæðingu 30%, en að fimm árum liðnum töldust aðeins 13% óskilgetin vegna hjúskaparstofnunar foreldranna á tímabilinu. Felast í þessu hinar athyglisverðustu upplýsingar um hina íslensku fjölskyldugerð. Í þessu sambandi hefði hin nýja víkkun hugtaksins „skilgetið barn“ ekki valdið mikilli breytingu að hundraðshluta til. Vandamál í þessu efni voru fyrst og fremst að finna traust greinimörk um hvað sé óvígð sambúð með þeirri lagaverkun sem samkv. frv. var ætlað að færa nokkrum fjölda barna stöðu skilgetins barns.

Það er eitt af einkennum frv., að reynt er að láta í sem flestum efnum reglur um forsjá og framfærslu vera hinar sömu og ákvæðið um þær í einu lagi um skilgetin og óskilgetin börn. Þessu fylgir jafnframt að föður óskilgetins barns er ætlaður mun meiri réttur og skyldur bæði um forsjá og umgengni heldur en eftir gildandi lögum. Í ýmsum efnum eru í frv. ítarlegri reglur en í gildandi lögum um úrlausn vandamála í sambandi við stöðu barna við samvistarslit foreldra, hvort heldur eftir hjúskap eða óvígða sambúð.

Í sambandi við framfærslu barna er sú breyting, sem ráðgerð er í frv., væntanlega veigamest að hækka framfærslualdur barna í 18 ár úr 17 árum, sem verið hefur frá árslokum 1971, en þar áður 16. Yrði framfærslualdur og skyldur þar með færð að sama aldursmarki og á öðrum Norðurlöndum. En 18 ára markið hefur lengi verið þar hið sama, bæði um sjálfræðis- og framfærslualdur. Ekki er ætlað að hrófla með þessu frv. hinu hefðbundna aldagamla sjálfræðismarki við 16 ára aldur hér á landi.

Taka verður fram að ekki er með þessu lagafrv. farið inn á svið almannatrygginga um að ákveða hækkun aldursmarks um greiðslu framfærslueyris vegna barna samkv. almannatryggingalögum. Ætla verður að slík breyting hljóti að koma til umr. ef lögfest verður þessi hækkun framfærslualdurs.

Það er augljóst, að ekki er horfið að þessari hækkun aldursmarks eingöngu til samræmis við lagaákvæði í nágrannalöndum. Hér ráða fyrst og fremst breytingar á þjóðfélagi okkar. Skólaganga barna og unglinga lengist jafnt og þétt og börn dveljast af þeim sökum lengur en áður hjá foreldri, þrátt fyrir gamlar hefðir um að menn fari ungir út á vinnumarkað. Önnur ákvæði í frv. veita heimild til framlengingar á framfærsluskyldu allt til 24 ára aldurs vegna námsástæðna eða starfsþjálfunar. Hafa verður í huga að hér er um undantekningarákvæði að ræða sem færu eftir fjölskylduaðstæðum og efnahag.

Geta verður í sambandi við framfærslu barna rýmri heimildar til greiðslu framfærslueyris af almannafé er ekki hefur fengist feðrun á barni. Um þetta efni munu nú einnig fyrirhugaðar tillögur um lagabreytingar á vegum heilbr.- og trmrn.

Jafnstaða er betur mörkuð en áður um meðlagsskyldu kvenna sem karla vegna barna sem ekki eru á vegum þess aðila sem í hlut á. Miklu ítarlegri ákvæði eru í frv. en í gildandi lögum um meðferð barnsfaðernismála og mála um vefengingu faðernis. Fer þar að vonum vegna mikið bættra möguleika á ætternisákvörðun vegna mikilla framfara í vísindum á þessu sviði. Þó má benda á að í VIII. kafla frv., um foreldraskyldur, forsjá barns og umgengnisrétt, eru miklu ítarlegri ákvæði en í gildandi löggjöf og áhersla lögð á rétt barnsins fremur en rétt foreldris og orðafar í samræmi við það, forsjá nefnd í stað foreldravalds.

Ég tel ekki ástæðu til að ræða réttarfarsreglur frv., en tel rétt að vekja athygli á einu mjög mikilvægu atriði í því sambandi sem varðar lögsögu íslenskra dómstóla. Varðar það heimild þeim til handa til að fjalla um slík mál ef móðir barns eða barnið sjálft á lögheimili hér á landi. Er það mjög mikilsverð réttarbót sem þegar er komin inn í löggjöf annarra Norðurlanda.

Ég vil að endingu vekja athygli á hugleiðingum í tveimur fskj. með grg. frv. Þau varða atriði sem ekki hefur þótt tímabært að taka inn í frv. Í fyrra fskj. má nefna ábendingar um nýjar lagareglur í nokkrum löndum sem heimila sameiginlega forsjá skilinna foreldra fyrir barni þeirra. Í síðari fskj. er gerð grein fyrir hugmyndum um að stofna til starfa eða til starfs umboðsmanns barnanna. Hafa hugmyndir um það efni komið fram í ýmsum löndum og tillaga um það efni m.a. gerð í nýrri norskri greinargerð um lagasetningu sem ekki hefur þó enn verið lögð fyrir norska þingið.

Ég vil að lokum ítreka að lagafrv. hefur að geyma mörg mikilsverð nýmæli sem brýnt er að verði lögfest, en ekki er síður nauðsyn að frv. í heild fái nú endanlega meðferð í þinginu. Er það von mín, að allir þeir aðilar, sem þingnefndir leita til, muni leggja hönd að því, að málið megi fá lokaafgreiðslu á þessu þingi.

Ég vil svo óska þess, herra forseti, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.