15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1461 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)
155. mál, ferðagjaldeyrir
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um álag á ferðagjaldeyri. Frv. þetta hefur þegar verið samþykkt í Ed.
Mál þetta er gamall kunningi hv. alþm. — það má segja: ekki góðkunningi — og er þess efnis, að lagt skuli 10% gjald á andvirði erlends gjaldeyris sem gjaldeyrisbankarnir selja til greiðslu á dvalarkostnaði erlendis öðrum en viðurkenndum kostnaði nemenda og sjúklinga og áhafnagjaldeyri. Þetta gjald hefur verið lagt á tvö undanfarin ár og lagt er til að álagning þessi verði framlengd.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv., en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.