15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1464 í B-deild Alþingistíðinda. (1488)
155. mál, ferðagjaldeyrir
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Vegna orða hv. þm. Halldórs Blöndals um það skattgjald, sem hér er gerð tillaga um, vil ég rifja það upp, að upphaflega var þessi hugmynd rökstudd með því, að þeir, sem veldu þann kostinn að fara um landið í sumarleyfi sínu, þyrftu að greiða 20% söluskatt, sem þá var á allri þjónustu sem þeim var veitt, en aftur á móti fengju þeir, ef þeir færu til Suðurlanda, sams konar þjónustu án söluskatts og af ýmsum öðrum ástæðum miklu ódýrari. Mönnum þótti ekkert óeðlilegt að jafna þann mun sem er á kjörum í sumarleyfisferðum til útlanda annars vegar og innanlands hins vegar, með því að leggja sérstakt gjald á ferðagjaldeyri. Þetta rifja ég upp vegna þess að það eru kannske margir búnir að gleyma þessum rökum, en þau voru í fullu gildi á sínum tíma og þau eru áreiðanlega enn í fullu gildi. Söluskattur hefur síðan þetta gerðist verið hækkaður í 23.5%, en ekki er lagt nema 10% gjald á ferðagjaldeyrinn. Ég held að það séu ekki bara fjáröflunarrök sem liggja að baki þessu gjaldi, heldur líka viss efnahagsleg rök, — þau rök að hvetja fólk til sumarleyfisferða innanlands fremur en eyða gjaldeyri þjóðarinnar með ferðalagi til annarra landa.
Í öðru lagi spurði hv. þm. hverjar væru þær reglur sem giltu um innheimtu þessa gjalds. Ég verð að játa að þessar reglur voru settar af fyrirrennara mínum, líklega fyrir tveimur árum, og ég man ekki til þess, að þetta mál hafi nokkurn tíma komið á borð hjá mér, og ég þekki því ekki þessar reglur. Ég held hins vegar að það eigi að vera auðvelt að útvega þær og leggja þær fram þegar hv. nefnd fjárhags- og viðskiptamála fær þetta mál til meðferðar fyrir 2. umr. Ég skal reyna að tryggja að þessar reglur verði lagðar fram í nefndinni.
Hv. þm. Friðrik Sophusson bar fram fsp. um hvort von væri á 20% gengisfellingu, enda hefði það verið boðað í dagblaðinu Tímanum, að vísu ekki af blaðinu, en af manni sem hafði skrifað í blaðið. Það er ýmislegt skrifað í blöðin og kannske ekki allt laukrétt, eins og gengur, skiptar skoðanir um það sem þar stendur. Hitt vitum við, að gengisbreyting hefur verið í gangi í efnahagskerfi okkar um margra ára skeið, vikulegur viðburður a.m.k., oft daglegur viðburður, ekki hvað síst í valdatíð hv. þm. Geirs Hallgrímssonar. (GH: Þið sláið okkur út.) Við skulum ekki metast um það. — Lengi hefur gengisbreyting verið í gangi í efnahagslífi okkar, og ekki eru taldar líkur á að þar verði alger breyting á, sem langvarandi sé nema unnt sé að kveða niður verðbólguna sem við eigum við að glíma. En kannske verður nokkurt átak gert í þeim efnum á næstunni. Ég verð hins vegar að segja það, bara til að svara þessu á einfaldan hátt, að ég held að engin hætta sé á því, að 20% gengisfelling sé í aðsigi nú um áramótin.