15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1491)

Afgreiðsla þingmáls

Forseti (Alexander Stefánsson):

Út af ummælum hv. 1. þm. Vestf. vil ég taka fram, að forseta þessarar deildar var atgerlega ókunnugt um vinnubrögð í heilbr.- og trn. þingsins á þessum degi. Ég veit ekki betur en settar hafi verið ákveðnar reglur um fundatíma fastanefnda hér í þinginu, sem allir hafa fyrir framan sig. Um annað hlýtur það að gilda, eins og ég held að sé venja og kom fram hjá hv. þm., að byggt sé á samkomulagi í nefndum um vinnubrögð. Ég verð að vænta þess, að formenn fastanefnda gæti þess í hvívetna og leggi sig fram um að ná samkomulagi um meðferð mála þó að ágreiningur sé vissulega alltaf fyrir hendi.