15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1492)
Afgreiðsla þingmáls
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég held að við verðum að gera okkur grein fyrir því, að það eru engar reglur í þingsköpum um hvernig nefndir eigi að starfa eða hversu marga fundi þær eigi að halda um mál eða hvort þær eigi að kalla menn til vitnisburðar á fundum eða hversu lengi þær eigi að hafa mál til meðferðar. Nefndir starfa einfaldlega stutt eða lengi, ítarlega eða í skamma hríð eftir því sem þær ákveða sjálfar eða meiri hl. þeirra ákveður. Nú þekki ég ekkert hvernig á stendur sérstaklega í því máli sem hér var til umr. Ég veit ekkert um hvernig vinnubrögð voru í sambandi við afgreiðstu þessa máls og get engan dóm fellt um það.
Ég held að það hljóti að vera keppikefli stuðningsmanna þessarar ríkisstj. að halda góðu samkomulagi við stjórnarandstöðuna um vinnubrögð. En ég vek athygli á því, að ef meiri hl. n. kemst að þeirri niðurstöðu, að tímabært og óhjákvæmilegt sé að afgreiða mál úr n. og ekki verði lengur dregið af einhverjum ástæðum, sem meiri hl. telur gildar, þá er ekki hægt að leggja fyrir forseta eða neinn annan að setja ofan í við nefnd eða formann nefndar. Þarna er nefndin sjálfstæð eining, sem afgreiðir sín mál á sjálfstæðan hátt eftir því sem vilji meiri hl. n. stendur til.
Hitt er allt annað mál, að ef síðar kemur fram kvörtun um það við 2. umr. málsins að málið hafi ekki hlotið næga athugun, það þurfi að kalla til ákveðna aðila og leyfa þeim að segja álit sitt á málinu, þá er ekkert því til fyrirstöðu, að viðkomandi nm., sem hefur slíkt í huga, snúi sér til formanns n. og óski eftir að annar fundur verði haldinn þar sem ákveðnum aðilum sé gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri fyrir lokaafgreiðslu málsins í deildinni.
Ég vildi sem sagt vekja athygli á þessu vegna þess að mér fundust ummæli hv. þm. nokkuð óeðlileg þar sem hann vildi ganga út frá því, að í þessum efnum væri við einhverja fasta reglu eða fasta venju að styðjast. Ég held að í þessum efnum gildi sú regla ein, að meiri hl. n. hefur fullt vald á að ákveða fyrir sitt leyti hvenær hann óskar eftir að skila nál. og hvort hann telur fært eða æskilegt að bíða lengur með afgreiðslu málsins. Þar getur enginn utanaðkomandi aðili, hvorki forseti deildarinnar né deildin í heild sinni, vandað um við meiri hl. nefndar. Meiri hl. hefur fullan rétt samkv. stjórnarskránni til að hafa þá skoðun á afgreiðslu málsins sem honum líkar. Ég held hins vegar að þetta ætti ekki að þurfa að vera neitt vandamál. Það ætti að vera hægt að leysa málið með því að viðkomandi nm. óskaði eftir því, að eftir að 2. umr. hefði farið fram og áður en 3. umr. færi fram í deildinni ætti sér stað einhver tiltekinn nefndarfundur um málið, sem viðkomandi nm. telur óhjákvæmilegt að eigi sér stað.