15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1471 í B-deild Alþingistíðinda. (1495)

Afgreiðsla þingmáls

Forseti (Alexander Stefánsson):

Út af orðum hv. 1. þm. Vestf. tók ég fram áðan að samkv. þingsköpum væru settar ákveðnar reglur um nefndafundi og fundastaði. Það hefur verið gildandi regla, eftir því sem ég best veit, að nm. hafa reynt að koma sér saman um fundatíma þar fyrir utan til þess að afgreiða mál, ekki síst þegar mjög er gengið eftir að koma þingmálum fram. Ég verð enn á ný að vonast til þess, að formenn nefnda reyni í lengstu lög að ná samkomulagi í samræmi við þá sjálfsögðu reglu. Ég segi það sem mitt persónulega álit, að mér finnst það ekki góður siður, að þegar fastafundir eru í þd. sé verið að boða nefndafundi um mjög viðamikil mál. En ég vænti þess að nefndarformaður hv. heilbr.- og trn. og 1. þm. Vestf. geti náð samkomulagi um þetta mál.