15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1471 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
Afgreiðsla þingmáls
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég ætlaði að láta þessari umr. lokið, en í stað þess að biðja afsökunar á framferði sínu eys þessi hv. þm. enn einni gusunni yfir þd. og þar með mig.
Það getur vel verið að það sé háttur hv. þm. að ætlast til þess, að ef hún opnar munninn hér á Alþingi eigi það að koma í blöðum með risafyrirsögnum. Ég er ekki að gera þetta mál að umræðuefni til að blöðin hampi því sérstaklega. Ég er fyrst og fremst að gera þetta að umræðuefni til þess að komið sé í veg fyrir að Alþingi sé lítilsvirt með jafnóhefluðum og ódrengilegum og fádæma fávíslegum vinnubrögðum og þessi nefndarformaður hefur gert sig sekan um. Það er kjarni þessa máls. Ég vil ekki að þessi vinnubrögð séu viðhöfð, hvorki af þessum nefndarformanni né öðrum. Þetta hélt ég að frúin hefði þegar skilið eftir fyrstu ræðu mína, en svo virðist sem hún telji að þetta hafi allt saman verið eðlileg vinnubrögð. Ég harma að til þessa þurfti að koma, en til þess hefur verið unnið, og hvenær sem þetta kemur fyrir mun ég verða einn af þeim sem standa upp til að mótmæla því.
En það sést á því, sem ég hef sagt, að ég þarf ekki að kvarta undan öðrum formönnum. Ég skal meira að segja bæta einum formanninum við sem hefur boðað mig á fundi og það með góðum fyrirvara. Það er formaður fjh.og viðskn. Ed., sem hefur boðað nefndirnar til sameiginlegs fundar, og hann hefur ekki verið með sama gusugang og flokkssystirin, formaður heilbr.- og trn. Nd. Mætti hún þá reyna að læra eitthvað. — Hvað var formaðurinn að segja? (Gripið fram í.) Nei. Þó að hann hafi fengið orð fyrir gusugang stundum er hann ljós á við formann heilbr.- og trn. Nd.