27.10.1980
Neðri deild: 6. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (151)
5. mál, barnalög
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vona að í Framtíðinni gegni forseti forsetaskyldum sínum á þann hátt sem hann virðist ætla að gera nú þetta kjörtímabil eða þetta þing. Hingað til hefur mönnum leyfst að grípa fram í fyrir ræðumanni án þess að biðja viðkomandi ræðumann heimildar til að skjóta inn í fsp. í stuttu máli.
Ástæðan til þess, að ég kem hér upp, er sú, að ég gat ekki komið fsp. minni fram við ráðh., sem hefði verið mjög stutt. En úr því ég er hingað kominn vil ég taka fram, að ég sé enga ástæðu til þess að hafa áhyggjur af því, að börn eða barnalegt fólk fái ekki að fjalla um þetta frv. Það er nóg til af slíku í þinginu sjálfu.
Ég veit ekki hvar fólk hættir að vera börn eða á hvaða aldri hægt er að segja að einstaklingurinn hætti að vera barn. Í 17. gr. frv. segir svo, með leyfi forseta:
„Framfærsluskyldu lýkur er barn verður 18 ára. Skyldu til greiðslu meðlags lýkur fyrir þann tíma, ef barn giftist, nema valdsmaður ákveði annað. Framlag til menntunar eða starfsþjálfunar barns er heimilt að ákveða allt til þess, er barn nær 24 ára aldri.“
Mér er spurn: Hvenær hættir einstaklingurinn að vera barn? Hættir hann að vera barn 35 ára þegar hann má ekki lengur vera í Heimdalli'? (Gripið fram í: Hann hættir aldrei. — Forseti: Hljóð á fundinum.) Ég þakka forseta fyrir að áminna þann sem greip fram í.
En þetta er ekki aðalatriðið. Spurningin, sem ég hafði hugsað mér að bera fram við hæstv. ráðh., er sú, hvort hann geti útskýrt nú hvaða brtt. — og við hvaða lög — heilbr.- og trmrn. hefur hugsað sér að gera við önnur lög sem fjalla um sama efni og hér er á dagskrá. Ég geri þessa fsp. að gefnu tilefni og kannske vegna þess að ég varð fyrir vonbrigðum með að heilbr.- og trmrn. — og þá dómsmrn. núna — skyldi ekki taka þær brtt., sem heilbr.og trmrn. hugsanlega kemur með, inn í þessi lög. En það getur vel verið að það sé minn misskilningur, það eigi ekki heima hér. Það, sem ég á við, er að til mín hafa leitað stúlkur sem hafa lent í vissum vandræðum með að feðra sín börn, sérstaklega er þær koma frá Norðurlöndum. Ef þær koma frá kaþólskum löndum þurfa þær ekki að feðra börn sín, vegna þess að í kaþólskum löndum er blóðrannsókn og aðrar rannsóknir ekki leyfðar, þannig að íslenska ríkið borgar þá umsvifalaust meðlag og allt það, sem eðlilega er greitt með barni sem er feðrað, þó það sé ekki feðrað. Sama á við ef um amerískt faðerni er að ræða, þó faðirinn sé ekki kaþólskur. En ef stúlka kemur frá Norðurlöndum, sem eru ekki kaþólsk lönd, getur hún ekki komist inn í kerfið hér heima fyrir. Þar af leiðandi verður hún að vera ein, án meðlags frá því opinbera, og á engan rétt til eins eða neins. Hún verður að berjast áfram ein og yfirgefin af samfélaginu á sama hátt og barnsfaðirinn hefur yfirgefið hana.
Það er þetta sem ég vil fá fram hjá ráðh. og ég hefði getað lagt fyrir hann með einni lítilli spurningu, með því að biðja hann um að skýra frá þeirri brtt. sem hann boðaði að væri í vændum í þessu máli frá öðru rn. og hann talar ekki fyrir nú. En hann kynnti að sú brtt. væri væntanleg. Ef sú brtt. á heima í þessu frv., sem ég skal ekkert segja um, þá hefði ég viljað sjá hana hér með þessu frv. og viljað leggja því lið, að þessu óréttlæti verði hætt, því það líður enginn fyrir þetta kerfi nema barnið sjálft og uppeldi þess. En við skulum vera alveg jafnviss um það, að löngu áður en þessi þjóðfélagsþegn þarf að ganga úr Heimdalli verður ríkið farið að taka af honum alla skatta og skyldur. Hann kemst ekki undan neinu, þó þjóðfélagið afneiti barninu fram að ákveðnum aldri.
Ég þakka forseta fyrir það góða hljóð sem honum hefur tekist að hafa meðan ég talaði þessi orð.