15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (1512)
156. mál, tímabundið vörugjald
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég leyfi mér að taka undir þá brtt. sem hv. 6. þm. Reykv. hefur borið hér fram. Nú kann að vera sá galli á málflutningi hans, að hér virðist ekki vera reiknað út hvað þessi niðurfelling kynni að kosta, en ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. fjmrh. að það verði athugað gaumgæfilega. Ég er sammála því og ég er næstum viss um að salan mundi aukast að sama skapi. Ég efast því um að tjónið yrði mjög tilfinnanlegt fyrir ríkissjóð. Hins vegar viðurkenni ég, að fram er komið frv. til fjárlaga, og beygi mig fyrir því að sé þetta slík upphæð að skekki hún verulega frv. til fjárlaga kunni að vera erfitt að gera við því að þessu sinni.
En ég ítreka það, að ég er sammála hv. 6. þm. Reykv. Hér er um menningarmál að ræða og það er verulega til vansa hversu verð er hátt á hljómplötum, enda er það alkunna að fátt kaupa Íslendingar meira erlendis en einmitt hljómplötur vegna þess að verðmunur er verulegur.
Ég tel að hér sé hreyft mjög góðu máli sem beri að kanna vandlega í nefnd áður en því er hafnað.