15.12.1980
Neðri deild: 31. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)
34. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Mér þykir ástæða til að segja hér örfá orð í sambandi við þetta mál og annað því tengt.
Eins og hæstv. ráðh. gat um voru verulega aukin lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna með þeim samningum sem hæstv. ráðh. og ríkisstj. gerðu við BSRB á þessu ári. Í ljósi þeirra auknu réttinda hlýtur að vakna sú spurning, hvers vegna hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj. sáu sér ekki fært að koma til móts við aðildarfélög Alþýðusambands Íslands á sambærilegan hátt að því er varðar lífeyrisréttindi þessara félaga. Hvernig má það vera í ljósi fullyrðinga undanfarandi margra ára, t.d. fulltrúa Alþb., að það geti gerst annars vegar að hæstv. fjmrh. — hátt settur innan Alþb. — skuli veita BSRB-félögum lífeyrisréttindi eins og raun ber vitni og harðneita á sama tíma að veita félögum innan ASÍ sambærileg lífeyrisréttindi?
Hér eru hæstv. fjmrh. og ríkisstj. að skipa launþegum í tvo mjög ólíka lífeyrisréttindaflokka og verður það í ljósi fyrri yfirlýsinga og krafna af hálfu þeirra Alþb.-manna að teljast furðulegt. Líklega hefðu fáir trúað því, að slíkt gæti gerst þegar forustulið úr Alþb. væri sá sterki aðill að ríkisstj. sem sumir vilja vera láta, að Alþb. mundi með þessum hætti beita þjóðfélagsþegna slíku misrétti sem hér um ræðir. Það er ástæða til að vekja athygli á þessu, þegar hæstv. fjmrh. mælir fyrir þessu frv., og ástæða til að spyrja hann hvers vegna hann harðneitaði ASÍ og félögum innan þess um sambærileg lífeyrisréttindi við þau sem hann sjálfur skrifaði undir og beitti sér fyrir að BSRB fengi. Það vantar ekki að um það var krafa uppi af hálfu ASÍ. En henni var harðneitað. Má vænta að sams konar neitun haldi áfram að hljóma í munni hæstv. ráðh., eða má vænta þess, að betur verði tekið á móti félögum innan ASÍ hér eftir en hingað til í þessu máli? Það væri fróðlegt að fá vitneskju um vegna þess geysilega mikla misréttis sem hér er verið að beita launþega í þessu landi þegar annars vegar er miðað við BSRB-félaga og hins vegar félaga innan ASÍ.