16.12.1980
Sameinað þing: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1524)

127. mál, Landmanna-, Gnúpverja- og Holtamannaafréttir

Fyrirspyrjandi (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Í síðasta Heklugosi varð mikið tjón á gróðri á afréttum Flóa- og Skeiðamanna, Gnúpverja, Holtamanna og Landmanna. Mælingar sýndu að 210 km2 gróðurlendis höfðu farið undir ösku. Ingvi Þorsteinsson magister telur að þetta jafngildi 170 km2 algróins lands. Verst er ástandið á Gnúpverjaafrétti, þar sem aska eða gjóska þekur um 40% af heildargróðurlendi afréttarins. Á Landmannaafrétti þekur askan tæplega 40% af gróðurlendinu. Á hinum afréttunum urðu skemmdir minni, en þó umtalsverðar. Ingvi Þorsteinsson segir að hluti þess gróðurlendis, sem fór undir gjóskulag, sé ónýtur til frambúðar. Á þetta einkum við um Sölvahraun og Valafell á Landmannaafrétti. Á þessum afréttum skemmdist bæði hinn náttúrlegi gróður og svo nýgróður sem hefur orðið til við sáningu Landgræðslu ríkisins. Rýrnun á beitarþoti fyrrnefndra afrétta er frá 15–61%. Hlutfallslega er rýrnunin mest á Gnúpverjaafrétti. Gróðurlendi, sem þar eyðilagðist, hafði beitarþol fyrir um 8400 kindur, þ.e. fullorðið fé og lömb, í tvo og hálfan mánuð. Gróðurlendið á Landmannaafrétti hafði beitarþol fyrir um 3600 fjár, Flóa- og Skeiðamanna um 1900 fjár og Holtamanna um 1200 fjár. Þetta jafngildir því, að aska hefur fallið á gróðurlendi sem hafði beitarþol fyrir um 15 þús. kindur, ær og lömb.

Ekki þarf að fara um það neinum orðum hvert áfall þetta er fyrir bændur og fyrir þá viðleitni manna að græða upp örfoka land. Þar eð engar spurnir hafa borist af fyrirhuguðum aðgerðum vegna þessa tjóns höfum við hv. þm. Magnús H. Magnússon leyft okkur að bera fram fsp. sem hljóðar svo:

„Hefur landbrn., eða forustumenn landbúnaðarmála, gert einhverjar ráðstafanir til að kanna eða bæta úr því alvarlega tjóni sem varð á Landmanna-, Gnúpverja- og Holtamannaafréttum í síðasta Heklugosi og mun hafa umtalsverð áhrif á beitarþol beitilanda þeirra bænda sem reka fé á þessa afrétti?“