16.12.1980
Sameinað þing: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1490 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

368. mál, áfengisauglýsingar

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 3. þm. Suðurl. leyft mér að flytja fsp. til hæstv. dómsmrh. um áfengisauglýsingar, á þskj. 159. Fsp. er stutt:

„Hvernig er framfylgt því ákvæði áfengislaga, sem leggur bann við hvers konar auglýsingum um áfengi? Hvert er álit rn. á óbeinum auglýsingum, svo sem áfengiskynningum svokölluðum, sem bæði dagblöð og tímarit hafa gengist fyrir?“

Ég held að það fari ekki á milli mála að óbeinar auglýsingar eru orðnar býsna áberandi í blöðum sem tímaritum undir yfirskini alls konar kynninga. Það er óþarft að nefna dæmi um þetta, þau eiga að vera þekkt. Ég held að það þurfi að vera hér vel á verði, og ég treysti rn. til að gæta þess vel, að hér verði ekki misbrestur á.

Ég ætla að minna á það, að þó menn telji það e.t.v. ekki hafa mikla þýðingu, hvort um áfengisauglýsingar er að ræða eða ekki, tók ég sérstaklega eftir því í viðtali sjónvarpsins fyrir skömmu við frægan knattspyrnumann erlendan, sem hafði sigrast á sinni áfengissýki sem var orðin mjög alvarleg, að hann lagði alveg sérstaka áherslu á hver áhrifamáttur áfengisauglýsinga væri. Hann sagði að það væri ein mesta váin gagnvart t.d. unga fólkinu þar í landi hvernig áfengið væri stöðugt auglýst. Við höfum sem betur fer tekið upp þá stefnu að banna slíkar auglýsingar, en þá þarf einnig að gæta þess, að ekki sé laumast inn bakdyramegin og einhverjir smakkarar og aðrir slíkir komi á vettvang í blöðum og tímaritum og kynni þetta með óbeinum hætti á þann hátt að í raun og veru er ekki hægt að segja um þessa smakkara annað en að þeir séu með beinar áfengisauglýsingar. Ég vil gjarnan vita hvert álit rn. væri á þessu, því að þetta veður nú uppi í æ ríkara mæli og full ástæða til að gæta þess, að menn komist ekki þannig inn bakdyramegin. Eflaust getur verið eitthvað óhreint í pokahorninu hjá þeim sömu aðilum, þó ég vilji ekki fullyrða um það hér.