16.12.1980
Sameinað þing: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1492 í B-deild Alþingistíðinda. (1533)
358. mál, húsnæðismál póstþjónustunnar í Reykjavík
Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 129 að leggja fram fsp. í fjórum liðum til hæstv. samgrh., yfirmanns póst- og símamála.
Svo sem kunnugt er hefur póstþjónustan í Reykjavík búið við erfið skilyrði í húsnæðismálum mörg undanfarin ár. Aðalpósthúsið í Reykjavík var byggt árið 1914 og var þá talin glæsileg bygging í höfuðstaðnum og er það reyndar enn. Þörfin fyrir umbætur á þessu sviði er brýn og fer ört vaxandi, svo sem skiljanlegt er. Segja má að það veki athygli á sinn hátt, hvernig búið er að póstþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu í samanburði við símaþjónustuna, sem verið hefur samstarfsaðili póstþjónustunnar í tugi ára. Á hinn bóginn fer ekki milli mála að úti á landsbyggðinni hefur póstþjónustan notið góðs af miklum byggingarframkvæmdum er fylgt hafa hinni öru þróun í símamálum.
Hannibal Valdimarsson, sem var samgrh. 1973, virðist hafa talið úrbóta þörf í húsnæðismálum póstþjónustunnar og fylgdi því eftir með skipun sérstakrar nefndar er gera átti tillögur um skipan húsnæðismála póstþjónustunnar í Reykjavík „með tilliti til þess, að starfsemin svari kröfum tímans og verði framkvæmd á hagkvæman hátt fyrir landsmenn alla út frá þeirri miðstöð sem Reykjavík er í þessum málum fyrir landið í heild.“ Eftirtaldir menn voru skipaðir í nefndina á sínum tíma: Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri, sem var formaður hennar, Jón Skúlason póst- og símamálastjóri, Matthías Guðmundsson póstmeistari, Hörður Bjarnason húsameistari ríkisins og Tryggvi Haraldsson póstútibússtjóri, en hann var tilnefndur af Póstmannafélagi Íslands.
Árið 1976 kom loforð frá Reykjavíkurborg um lóð í nýja miðbænum í Kringlumýri, en 1977, ári seinna, virðist hafa orðið stefnubreyting í þessum málum. 1979 er grunnur tekinn og talað um bráðabirgðalausn á málefnum póstþjónustunnar í Reykjavík, en sú bráðabirgðalausn er ekki í meiri augsýn en það, að gert er ráð fyrir að byggingunni verði lokið 1983, en þetta er tveggja hæða bygging og 3600 m2 hvor hæð.
Því er ekki að leyna að innan póstþjónustunnar finnst ýmsum að hægt hefði verið að grípa til annarra aðgerða, eins og t.d. að leigja bráðabirgðahúsnæði og reyna að komast að niðurstöðu sem gæti orðið varanlegri en sú bráðabirgðaniðurstaða sem menn virðast hafa komið sér saman um. Málið er auðvitað brýnt. Pósturinn hefur ekki yfir öflugum byggingarsjóði að ráða. Þótt sá sjóður sé reyndar til hefur hann orðið fyrir barðinu á verðbólgunni eins og margir aðrir slíkir sjóðir. Þess vegna, herra forseti, hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. samgrh.:
„1. Hvað líður störfum nefndar, sem skipuð var af samgrh. 1973 og falið var að gera tillögur um húsnæðismál póstþjónustunnar í Reykjavík?
2. Hvaða yfirvöld gáfu leyfi fyrir byggingu á vegum Póst- og símamálastofnunarinnar, sem verið er að hefja framkvæmdir við á lóð sem stofnunin hefur til afnota við Suðurlandsbraut?
3. Til hverra nota er þessi bygging ætluð í framtíðinni? 4. Hve mikið fjármagn hefur verið lagt fram til þessara tveggja framkvæmda, sem virðast vera af sama toga spunnar, þ.e. til afnota fyrir póstinn, og hverjar eru fjármála- og framkvæmdaáætlanir?“