16.12.1980
Sameinað þing: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (1539)

141. mál, smíði brúar á Ölfusá

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég kem upp í ræðustólinn til að leggja á það áherslu og ítreka það, sem kom fram í máli hv. 5. þm. Suðurl., að almennur áhugi er á því að þessi brú verði reist yfir Ölfusá við Óseyrarnes. Hins vegar kemur mér nokkuð á óvart sú tregða sem er hjá hæstv. samgrh. að gefa yfirlýsingar um að hafist verði handa að lokinni hönnun þessarar brúar, sérstaklega vegna þess að ráðherrar í tveimur síðustu ríkisstjórnum hafa gefið yfirlýsingar um að það sé rétt komið að því að byggja þessa brú og í báðum þeim ríkisstjórnum hefur hæstv. samgrh. átt sæti.

Ég vil minna á að þegar hv. 5. þm. Suðurl. var samgrh. gat hann þess á „Beinni línu“ í útvarpinu, að það hefði verið bundið í stjórnarsamning að þessi brú skyldi gerð, „eitt stykki brú,“ eins og hann orðaði það, og það væri alveg að því komið að hún yrði byggð. Ugglaust stendur málið þetta illa núna af því að hv. 5. þm. Suðurl. var ekki lengur samgrh. En í haust, 22. okt., var hæstv. forsrh. á „Beinni línu“ í útvarpinu og þá var það einn af áhugamönnum um smíði brúarinnar sem hafði um það framtak að spyrja hann hvenær yrði hafist handa um Ölfusárbrú. Hann svaraði því til, að það væri snarplega að því unnið af ýmsum aðilum að hún kæmist á, og upplýsti að Ölfusárbrúin hjá Óseyrarnesi yrði til meðferðar í sambandi við meðferð fjárlaga og þó alveg sérstaklega í sambandi við lánsfjáráætlun. Ég held þá að ég verði að setja allt mitt traust á lánsfjáráætlunina. Fjárlögin er ég búinn að sjá, en lánsfjáráætlunin er ekki komin fram nema í brotum. Ég vona að Ölfusárbrúin liggi í því brotinu sem ekki er komið upp á yfirborðið.