16.12.1980
Sameinað þing: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í B-deild Alþingistíðinda. (1548)
362. mál, húsnæðismál
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni fyrir að leggja fram þessar fsp. ekki veitir af að ræða um húsnæðismálin. Því miður er tíminn stuttur.
En það er alveg sama hvernig þetta mál snýr. Það er fjárvöntun í húsbyggingarsjóð ríkisins. Og það er alveg sama hvað ráðh. segir um þetta efni. Það er staðreynd málsins að ríkissjóður hefur ekki staðið við sitt. Það eru engin lög í landinu sem heimila skerðingu á launaskattinum. Það hefur hæstv. fjmrh. viðurkennt. Dæmið stendur þannig, að þó að við leggjum báða sjóðina saman vantar a.m.k. 4.6 milljarða. Þá tölu fæ ég með því að taka Byggingarsjóð ríkisins ásamt verkamannasjóðnum.
Í fjárl. er gert ráð fyrir 4.3 milljörðum í framlag. Hins vegar eiga samkv. lögum að fara í þann hluta þessa kerfis 7.5 milljarðar, sem er 1 prósentustig, sumir segja 15 milljarðar sem er reyndar samkv. lögum. Þá er það byggingarsjóðsgjald, sem eru tæpar 1400 millj. En hvar er heimild í lögum til að leggja það á? Sú heimild hvarf úr lögum með gömlu húsnæðismálalögunum. Þetta er sem samt löglaust á a.m.k. tveimur stöðum og það vantar í allra minnsta lagi fjárframlag úr ríkissjóði upp á 4.6 milljarða.
Það er talað um 40 milljarða og gumað af því, eins og hæstv. ráðh. gerði áðan, en lánið, sem er verið að taka úr lífeyrissjóðunum, er líklega um 19 milljarðar. — Ætli það sé ekki einhvers staðar í kringum það úr sjóðunum á talsvert hærri vöxtum en útlánin segja til um. — Þetta þýðir, og það er staðfest og hefur komið frá Húsnæðisstofnuninni sjálfri, að samkv. þeirri stefnu, sem hæstv. ráðh. hefur markað, verður tryggingarsjóðurinn gjaldþrota innan skamms tíma. Þetta verða menn að hafa í huga. Þar að auki er algerlega óvíst hvort þessir sjóðir geta útvegað svo mikið fjármaga, enda er farið út fyrir rammann sem samið var um við Alþýðusamband Íslands og þá lífeyrissjóði á sínum tíma. Þess vegna er út í bláinn að tala um aukið framlag til þessara sjóða. Það stendur og það er staðreynd, að það er aðeins froða sem kemur úr munni ráðh. þegar hann talar um að hann og hæstv. ríkisstj. hafi gert eitthvað af viti í húsnæðismálunum. (Félmrh.: Af hverju ertu svona reiður, hv. þm.?) Ég er ekkert reiður. Ég er einungis að tala við þig á þínu máli.