16.12.1980
Sameinað þing: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1508 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)
362. mál, húsnæðismál
Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Hæstv. félmrh. sagði að ég hefði skotið mér undan því að minnast á Byggingarsjóð verkamanna. Þetta er alveg rétt. Ég minntist ekki á hann. Fsp. víkur einungis að Byggingarsjóði ríkisins. En það væri tilefni til að ræða um Byggingarsjóð verkamanna, því að svo illa sem hæstv. ríkisstj. fer með Byggingarsjóð ríkisins, þá sýnist hún vera enn þá beinskeyttari í þeirri stefnu sinni að leggja Byggingarsjóð verkamanna í rúst.
Þetta er vegna þess að samkv. lögum hæstv. ríkisstj. er tekið fram að það skuli fjármagna með framlagi úr ríkissjóði af launaskatti eða á annan hátt allt að 30% af ráðstöfunarfé sjóðsins. Sveitarfélögin leggja til 10%. Þetta eru samtals 40%. Hvernig á að fjármagna 60%? Samkv. beinum ákvæðum laganna er það með lántökum þar sem vextir eru 3.25% í besta lagi, en á að lána út með 0.5% vöxtum.
Þetta er í fyrsta sinn í hinni merku og löngu sögu verkamannabústaðanna að vikið er frá þeirri meginstefnu að ríkið leggi fram allt ráðstöfunarfé til sjóðsins sem óafturkræft framlag. Það er vegna þess að kjör þessa sjóðs verða samkv. eðli málsins að vera svo góð sem gert er ráð fyrir og hefur alltaf verið gert ráð fyrir, að það verður ekki staðið undir því nema á þann veg sem búið er að gera s.l. 50 ár, þ.e. með beinum framlögum 100% úr ríkissjóði.