16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)
118. mál, Lífeyrissjóður barnakennara og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Mér er forvitni á að vita hvert þetta mál hefur verið sent út til umsagnar. Mér er jafnframt forvitni á að vita hvernig hin nýja stjórn þessara sjóða verður skipuð og hvort talið er að dómi frsm. að þetta mál hafi verið kynnt hinum almennu félagsmönnum þessara lífeyrissjóða. Ég vil alfarið vísa því á bug, að til þess að samræma útlán sjóðanna eða önnur atriði í störfum þeirra hafi verið nauðsynlegt að sameina þá. Undir vissum kringumstæðum á sér stað allmikil hagsmunaskerðing ýmissa aðila með þessu tiltæki, og mér þykir óeðlilegt að mál sem þetta séu afgreidd með þeim hraða sem hér er viðhafður.