16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

118. mál, Lífeyrissjóður barnakennara og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. (Guðrún Hallgrímsdóttir):

Herra forseti. Ég vil benda hv. þm. á grg. sem fylgir þessu frv. Til frekari áréttingar vil ég lesa upp þau atriði í grg. sem skilgreina það samningsatriði sem hér er til umræðu:

„Í samkomulaginu við BSRB er ákvæði þess efnis, að samræma skuli lög Lífeyrissjóðs barnakennara og lög Lífeyrissjóðs hjúkrunarkvenna lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, þannig að þær breytingar á lífeyrisrétti starfsmanna ríkisins, sem samið hafði verið um og komu til framkvæmda við útgáfu brbl. nr. 67/1980, næðu einnig til hjúkrunarkvenna og barnakennara í þjónustu ríkisins. Samræmingarstarf þetta skyldi unnið í samvinnu við fulltrúa viðkomandi stéttarfélaga.“