16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (1610)

118. mál, Lífeyrissjóður barnakennara og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það hagar svo til, að í ráðherrastólum vors lands eru menn sem munu fá greiðslur úr tveimur eða fleiri lífeyrissjóðum. Þær greiðslur verða hærri en alþingismannslaun eru í dag. Með þeirri ákvörðun, sem hér er tekin, er réttur þeirra, sem hafa starfað hjá ríkinu, bæði hjá Lífeyrissjóði barnakennara og eiga þar fé og einnig hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, af þeim tekinn. Það eru hreinar tínur, að þessir aðilar fá aðeins eina greiðslu úr sjóðnum. Mér finnst það hræsni af Alþingi að taka ákvörðun eins og þessa, áður en menn snúa sér fyrst að því sem snýr að þeim sjálfum, og segi því nei.