16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (1622)

147. mál, almannatryggingar

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Hv. þm. Karvel Pálmason er búinn að koma inn á flest af því sem ég ætlaði að segja.

Ég held að gætt hafi nokkurs misskilnings í máli hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar, að það væri verið að flytja dagsetninguna til, til 1. des. t.d. Það er gott að hv. þm. Matthías Bjarnason kemur nú í salinn því að ég held að það hafi gætt nokkurs misskilnings í hans máli. Það, sem við erum að tala um í ákvæðum til bráðabirgða, er aðeins það sem eftir er af tímanum. Við skulum hugsa okkur heimavinnandi húsmóður. Hún eignast barn 1. des. Þá myndi hún fá 2/3 af þessum rétti, sem hún fær að fullu ef hún á barnið 1. jan., 2/3 fyrir þessa tvo mánuði sem eftir eru, ekki fyrir tímabilið fyrir áramótin. Sama er að segja ef hún eignast barn 1. nóv. Þá fengi hún aðeins fyrir einn mánuð, bara þann mánuð sem eftir er af þessum þremur mánuðum um áramótin. Það er ekki verið að flytja dagsetningar til með fullum réttindum, heldur aðeins átt við þann hluta sem eftir er af tímabilinu þegar lögin taka gildi.

Í annan stað vil ég taka undir það sem hv. þm. Karvel Pálmason sagði um orlofið og lífeyrissjóðina. Mér finnst það óeðlilegt, ef kona á barn 1981, að það skuli skerða orlof hennar 1982 um sex daga. Mér finnst það líka óeðlilegt þegar kona er að vinna sér inn réttindi í lífeyrissjóði, að fæðingarorlofið skuli skerða réttindavinnslu hennar þar um þrjá mánuði. Alls staðar þar sem færingarorlof er nú greitt, þar er greitt af því orlof og það er greitt af því í lífeyrissjóð. Það er því ekkert nýtt. Þetta finnst mér mjög óeðlilegt og skora á þm. að samþykkja báðar þessar brtt.