16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)
147. mál, almannatryggingar
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég vil nú fagna því hvað ástandið er orðið gott í heilbr.- og trn. þingsins, en vænti þess, að ekki sé stórviðri í uppsiglingu hér í deildinni. Ég er einn af þeim sem engu að síður eru mjög óánægðir með mjög mörg atriði í þessu frv., tel að það sé kannske þrep áfram, en hefði viljað komast mun lengra til jöfnunar en hér er lagt til. Og ég vænti þess að hæstv. núv. deildarforseti, hv. 1. þm. Vesturl., Alexander Stefánsson, beri gæfu til að koma því í gegnum þingið sem hann hefur lofað þingheimi að hann muni bera fram hér eftir áramótin.