16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1545 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)
147. mál, almannatryggingar
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er út af fyrir sig fagnaðarefni með tilliti til þeirra umræðna, sem fóru hér fram í gærkvöld, að hv. þm. Matthías Bjarnason og Guðrún Helgadóttir skuli nú, nákvæmlega sólarhring eftir þann slag, sameinast hér í þekkingunni og í fæðingunni líka. En nóg um það.
Ég skal ekki tefja þessar umræður. Ég ítreka mína afstöðu til þessa máls. Ég tel að hér sé um svo mikið óréttlæti að ræða að þingið geti ekki tekið á sig að samþykkja það. Og ég tel að með þessu sé verið að brjóta það samkomulag sem gert var í kjarasamningum á s.l. hausti. Ég ítreka enn frekar að það hefur ekki komið svar við því, þótt um það hafi verið spurt, hvort þetta bráðabirgðaákvæði hafi verið borið undir fulltrúa Alþýðusambands Íslands, hvort þeir hafi lýst samþykki sínu við þá mismunun sem þarna á sér stað, sem er svo herfileg að þing ætti ekki að samþykkja slíkt.