27.10.1980
Neðri deild: 6. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í B-deild Alþingistíðinda. (165)

29. mál, Grænlandssjóður

Flm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil þakka hv. þm. fyrir góðar undirtektir við þetta frv., og ég tek undir þau orð, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, 4. þm. Suðurl., að þetta frv. er aðeins áfangi að því sem við stefnum að. Um það má auðvitað deila, hvort hér er farið nógu róttækt af stað. En ég tel fyrir mitt leyti að það sé betra að stíga hægum og ákveðnum skrefum af stað í þessum málum, það má þá síðar bæta við og efla. Á móti því hefur enginn. En aðalatriði málsins er að byrja með raunhæfum hætti.

Varðandi nafnið á sjóðnum, þá geta alltaf verið um það skiptar skoðanir. En þessi sjóður er auðvitað fyrst og fremst og eingöngu hugsaður sem aðstoð við Grænlendinga, en ekki til þess að fara í skemmtiferðir með Íslendinga til Grænlands og gefa þeim þar kaffi eða jafnvel eitthvað sterkara. Ég vil taka þetta fram til þess að fyrirbyggja allan misskilning. Hér er fyrst og fremst og eingöngu verið að stofna sjóð til þess að stuðla að betri og nánari sambúð og samvinnu við grænlensku þjóðina, sem í framkvæmd má svo alltaf, hvenær sem er, taka til frekari endurskoðunar og bæta þar við, en ekki draga úr.

Ég hef um langan tíma verið þeirrar skoðunar, að við Íslendingar höfum gert allt of lítið að því að auka tengsl og vináttu og samstarf sérstaklega við tvær nágrannaþjóðir okkar, Grænlendinga og Færeyinga, og ég er innilegur talsmaður þess að auka verulega tengsl við báðar þessar þjóðir. Ég hef reynt að leggja mitt litla framlag til þess að auka tengsl við Færeyinga, en ég ætla ekki að líkja saman hvernig þeir standa í lífsbaráttunni á móti Grænlendingum, svo að þó æskilegt væri að sýna þeim enn meiri vináttu en við höfum gert, þá held ég að þetta mál sé forgangsverkefni á þessu stigi.

Ég vænti því að þetta mál fái góðar undirtektir og að hæstv. ríkisstj. sé sammála um að stíga þetta skref.