17.12.1980
Efri deild: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)
Umræður utan dagskrár
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Ég get ekki fallist á þá skýringu hæstv, iðnrh., að hann hafi valið þann kost að fara með málið í blöðin vegna hinna miklu anna hér í þinginu. Eins og ég gat um í frumræðu minni voru stórmál á sviði iðnaðar til umr. eða áttu að vera til umr. — voru á dagskrá — í Sþ. í gær. Það var ekki hægt að ræða þau vegna fjarveru hæstv. iðnrh. þar sem hann var að koma fréttum út án samráðs við Alþingi og áður en þm. fengju nokkuð um það að vita. Auðvitað lá beint við að koma þessum upplýsingum á framfæri við þær umr. sem hæstv. ráðh. átti að vera við samkv. sinni embættisskyldu og láta sitja fyrir öðru, þ. á m. stórmál eins og tillaga sjálfstæðismanna um stóriðjumál, hans eigin tillaga um iðnþróun, fsp. um Blönduvirkjun og fleiri stórmál. Það varð að eyða tímanum hér, í þessari síðustu viku fyrir þinghlé, í smávægileg málefni, orðræður sem máttu gjarnan bíða og hefði vel verið hægt að taka fyrir á kvöldfundi. Það var auðséð að Sþ. var meira og minna starfslaust vegna þess að ráðh. gegndi ekki þingskyldu sinni, af því að hann þurfti að koma þessu máli út sem áróðursmáli sínu. Fram hjá því verður ekki gengið.
Ég spurði að því í frumræðu minni hvernig fylgst hefði verið með málum 1971 til 1974 og svo aftur frá 1974 til 1978. Ég spurði hæstv. iðnrh. að því, hvernig fylgst hefði verið með málinu á fyrra tímabilinu. Ég spurði hæstv. forsrh. hins vegar að því, fyrrv. iðnrh., iðnrh. á seinna tímabilinu, hvernig fylgst hefði verið með málinu. Hann kom hér í pontuna og sagðist gera það vegna þess að hans hefði verið getið, og þá bjuggust menn við að hann ætlaði að svara spurningunum um þetta. En það kom ekkert svar, — algjör véfrétt. Eitthvað hafði verið rætt um raforkuverð og kannske breytingar á samningum o.s.frv., en ekki kom fram hvað gert hefði verið þegar það lá fyrir með bréfi 3. okt. 1975 að framkvæmd mála væri ekki í samræmi við aðalsamninginn, eins og hæstv. iðnrh. komst að orði og raunar var í því bréfi sem hann las upp á enskunni. Ég get ekki séð annað en það sé lágmarkskrafa að hæstv. forsrh. svari því, hvað var gert frá 3. okt. 1975 og til þess dags er hann lét af störfum sem iðnrh. Ef ekkert var gert á að segja það. Það er ekki hægt að skjóta sér undan því. Ef eitthvað hefur verið gert eigum við heimtingu á að vita hvað það hafi verið.
Ég held að menn hljóti að vera sammála um að hæstv. forsrh. verði að svara þessum spurningum, þó hann hafi nú lengi færst undan að svara spurningum hv. alþm. Úr því að svo vel vill til, aldrei þessu vant, að hæstv. forsrh. gegnir þingskyldum sínum með því að sitja hér mikinn hluta dagsins og hlusta á þessar umr. getur hann ekki skotið sér undan því að svara. Var t.d. fulltrúum ríkisstj. í stjórn ÍSALs uppálagt að rannsaka málið? Það er fyrsta spurning. Var ríkisendurskoðun uppálagt að rannsaka málið, hæstv. forsrh.? Voru ráðnir einhverjir sjálfstæðir sérfræðingar til að rannsaka málið, hæstv. forsrh., erlendir eða innlendir? Gerði rn. sjálft eitthvað í málunum til að rannsaka það, hæstv. forsrh.?
Ég get ekki skilið að það sé hægt að komast hjá því að svara svo einföldum spurningum sem þessum. Það er ákvörðun, held ég , allra hér inni að þetta mál eigi að rannsaka niður í kjölinn. Ef hæstv. forsrh. sjálfur ætlar strax í upphafi að færast undan því að svara jafneinföldum spurningum og þessum, hvernig eigum við þá að komast til botns í málinu?
Hæstv. iðnrh. kemur hér og segir: Í tíð Gunnars Thoroddsens var málið tekið til endurskoðunar. Hver var sú endurskoðun? Hæstv. iðnrh. var ekki beðinn að svara þessari spurningu. Það var hæstv. forsrh. sem var beðinn um að svara henni. Og ég er að spyrja núna: Hvað var gert? Hvernig stendur á þessum drætti ef málið er svona alvarlegt, þetta athæfi sem svo er nefnt og svo er túlkað, stórsvindl, ef allt er satt sem fram hefur verið borið, þegar það liggur fyrir 3. okt. 1975? Var ekkert gert, hæstv. forsrh.? Fáum við svör við svona einföldum spurningum?
Mér finnst ekki unnt að ljúka þessum umr. öðruvísi en hæstv. forsrh. láti svo lítið að svara. Ef ekkert var gert á hann að segja okkur það. Ef hann lét eitthvað gera eigum við heimtingu á að fá að vita það. Kannske kemur hæstv. forsrh. hér á eftir og grípur til stjórnarskrárákvæða eða stjórnskipunarlaga eða þingvenja og hann sé ekkert skyldugur til að svara einu eða neinu. En fólkið er farið að hlusta á þögn hæstv. forsrh. Það er m.a. þögn þessa manns sem gerir það að verkum, að allt þjóðlífið er að sligast, atvinnumál, fjármál. Það er stjórnleysi í þessu landi. Og þegar upp kemur mál sem hæstv. iðnrh. telur eitthvert stærsta hneykslismál, — hann hlýtur að telja það, maðurinn, og það er það ef allt er satt sem borið er á Alusuisse, — og hæstv. forsrh. getur ekki, iðnrh. í þau fjögur ár sem þetta var að gerast, sagt okkur eitt einasta aukatekið orð, þá er það hneyksli. Það er meira að segja stórhneyksli ef svo fer að þessari umr. ljúki án þess að hæstv. forsrh. svari einföldustu spurningum, t.d. þeirri: Lét hann einhverja sérfræðinga athuga, hvort verðið hér væri, eins og segir í aðalsamningnum, eðlilegt verð í viðskiptum milli óskyldra aðila, eða gerði hann bókstaflega ekki neitt? Ekki minnist ég þess, að hann hafi látið sína flokksmenn í þingflokki Sjálfstfl. vita um að þarna gæti verið eitthvað óhreint í pokahorninu eða kannske stórhneyksli, eins og nú er talið að þetta mál sé.
Ég ætla ekki að vera dómari í þessu máli. Mig vantar allar upplýsingar til þess. Auðvitað verður gagnaðilinn að fá að bera af sér sakir og koma fram með sínar skýringar ef einhverjar eru. En ég ætla að krefjast þess, að þeir, sem valdir eru til æðstu trúnaðarstarfa í hinu íslenska lýðveldi, þó það væru ekki æðri trúnaðarstörf en að hafa verið í fjögur ár iðnrh., hvað þá þegar viðkomandi maður er nú orðinn hæstv. forsrh. lýðveldisins, — þá ætla ég að krefjast þess, að þeir svari. Ef forsrh. svarar ekki verður þögn hans hrópandi.