17.12.1980
Efri deild: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1577 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)

Umræður utan dagskrár

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég segi eins og ýmsir aðrir góðir ræðumenn: Ég ætla ekki að vera langorður. En það eru fáeinar athugasemdir sem ég tel ástæðu til að koma á framfæri og þá ekki síst með tilliti til þeirra ummæla sem hæstv. forsrh. hafði uppi fyrir skömmu.

Hann gerði sérlega mikið mál úr því, að hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson einkum og sér í lagi væri að heimta allsherjarendurskoðun á reikningum fyrirtækisins á hverju einasta ári. Ég skal ekki segja nákvæmlega hvað fyrir hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni vakti í þessum efnum, en þegar ég spurðist fyrir um með hverjum hætti hefði verið fylgst með málefnum ÍSALs á þessu tímabiti, frá 1974, gerði ég það auðvitað í framhaldi af þeim umræðum og þeim ummælum sem ég hafði uppi um að á árunum 1973–74 hefði komið í ljós að það væri sérstök ástæða til að fylgjast með aðföngum, þ.e. súrálsverðinu. Var þó ærin ástæða til vegna eðlis þessara samskipta og hversu miklir fjármunir eru í húfi. Ég hef haldið því fram í ræðum mínum, að nauðsynlegt væri að menn héldu vöku sinni á hverjum tíma, einkum að því er þetta atriði varðar.

Ég hef tiltölulega takmarkaðan áhuga á að fá að vita hversu vel menn standa sig í samlagningu og frádrætti í hinni venjulegu bókfærslu. Þar liggja ekki stóru tölurnar. Þar liggja ekki þeir möguleikar til undanbragða sem við þurfum að vera vakandi fyrir á hverjum tíma. Það, sem ég átti við, og ég trúi að það hafi líka vakað fyrir hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni, var hvernig menn fylgdust með alveg sér í lagi súrálsverðinu og reyndar verði á aðföngum almennt. Til þess þarf ekki allsherjarendurskoðun á hverju ári á öllum reikningum fyrirtækisins. Ég veit að á meðan ég sat í stjórn fyrirtækisins litum við á það sem sérstakt hlutverk okkar að reyna að fylgjast með þessu eftir mætti. Þess vegna gerði ég bærum yfirvöldum á hverjum tíma grein fyrir því, hvernig þessi mál væru. Þarf ég ekki að rekja það nánar, það gerði ég í upphafsræðu minni. Ég varaði við þegar mér sýndist þróunin ekki vera eins og eðlilegt væri.

Því hefur í raun og sannleika verið svarað afdráttarlaust, að ekkert af þessu hafi verið gert, og það enn þá afdráttarlausar, finnst mér, með þeim hætti að snúa út úr ummælum eins og hæstv. forsrh. gerði áðan, nefnilega að leggja þetta út þannig að menn væru að biðja um allsherjarendurskoðun. En þetta gefur svo tilefni til að spyrja, úr því að ekkert var gert í þessum efnum og það á þeirri forsendu að fyrirtækið hefði brotið af sér 1974 og þess vegna hlyti það að verða góða barnið ævinlega framvegis, því að það eru framreidd, eins og það heitir víst nú orðið, svör í þessu efnum: Hvernig er þá hugmyndin að halda á stöðugu eftirliti? Hvernig er hugmyndin að sjá til þess, að menn haldi sífelldlega vöku sinni í þessu efni í framtíðinni? Ég vænti þess a.m.k., að þessi umr. hafi leitt það í ljós afdráttarlaust, að nauðsyn beri til að menn haldi vöku sinni í þessum efnum og þetta þurfi ekki að vera uppákoma á áratugs fresti eða 8 ára fresti eða hvað það nú er.

Ég verð svo að segja það að öðru leyti, að þau svör, sem hér hafa fengist, eins og þau hafa verið framreidd af ráðh., hafa verið heldur gagnslítill málsverður. Þau hafa litlu bætt við þekkingu okkar, en þó einhverju, á þessu máli. Ég bar fram ýmsar fsp. í upphafi. Það hefur lítið bæst í svör við þeim við þær löngu umr. sem hér hafa átt sér stað. Það eina, sem í rauninni hefur fram komið og virðist liggja alveg á ljósu, er að það hafi ekkert verið gert sérstakt til þess að fylgjast með fyrirtækinu allar götur síðan 1974. Það eru auðvitað uggvænlegar upplýsingar í sjálfu sér. En að því er varðar stöðu málsins, eins og það er núna, og frekari gögn til að styðja mál okkar í þessum efnum, þá finnst mér það hafa verið heldur þunnt og of takmarkað sem svarað var.

En ég legg áherslu á, að að þessu máli verði unnið skynsamlega, og ég segi það og endurtek, að reynist hér vera um pretti að ræða verður auðvitað að taka á því sem slíku og af fyllstu hörku, en það væri líka mjög slæmt fyrir okkur ef þetta reyndist vindhögg.