17.12.1980
Efri deild: 36. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1585 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)
29. mál, Grænlandssjóður
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr., leyfi ég mér að vona að allir hv. þdm. styðji. Frv. þetta hefur verið afgreitt samhljóða frá Nd. og voru þar gerðar á því minni háttar breytingar, orðalagsbreytingar nánast, en þó hefur Nd. láðst að leiðrétta eina villu sem ég vil strax taka fram. Það er í upphafi 2. gr. þar sem segir: „Grænlandssjóður skal veita styrki til kynnisferða, námsdvala.“ Þar vantar r-ið. Úr því verður væntanlega bætt af starfsfólki þingsins.
Menn þekkja þetta mál. Það er gert ráð fyrir að ríkissjóður leggi fram til stofnunar Grænlandssjóðs á árunum 1981–1982 125 millj. kr. og verði þetta verðtryggt eða öllu heldur gengistryggt fjármagn og síðan verði vöxtum af þessu fé og því, sem renna kann til sjóðsins að auki, gjafafé og styrktarfé, varið til að auka tengsl okkar við nágranna okkar Grænlendinga.
Hér á hinu háa Alþingi hafa oft verið uppi tillögur og umræður um nánari samskipti við Færeyinga, en minna hefur gætt umræðna um nauðsyn þess að við tengjumst nánar næstu nágrönnum okkar Grænlendingum. Er kannske ekki síður ástæða til þess, að við reynum að leggja okkur fram um að aðstoða þá þjóð, þótt í litlu væri. Það er enginn vafi á því, að þeirri þjóð, sem er nú að vinna sig áfram til frelsisins, er það styrkur að Alþingi Íslendinga álykti einróma í þessu efni og sýni hug sinn í verki, þótt í smáum stíl sé. Það verður eftir því tekið á Grænlandi, á því er enginn vafi, ef Alþingi Íslendinga sameinast um að stofna sjóð sem sýni einhvern vott af vináttu og sé til þess ætlaður að styrkja þessi tengsl. Mín skoðun er sú og vafalaust langflestra, að þessar þjóðir, sem ég nefndi, Íslendingar, Grænlendingar og Færeyingar, eigi að tengjast miklu nánari böndum en verið hafa á milli þeirra fram til þessa.
Samgöngum í lofti hefur verið þannig háttað, áð t.d. komum við Íslendingar sjaldnast við í Færeyjum, þótt við fljúgum kannske yfir eyjarnar, og í hina áttina, til Grænlands, liggur leið okkar sárasjaldan. Úr þessu þarf að bæta. Það verður ekki gert í einu vetfangi. En það þarf að verða þarna þróun, ekki bara í menningarefnum, heldur líka á hagsmunasviðinu, því að einmitt þessar þjóðir eiga að gegna því hlutverki að varðveita auðæfi hafsins og hafsbotnsins eftir atvikum og þar eru sameiginlegir hagsmunir. Þar kunna að verða einhverjir hagsmunaárekstrar, eins og alltaf er í mannlegum samskiptum. Þá á auðvitað að leysa í bróðerni og vináttu og þeir eiga ekki að verða til þess, að samband þjóðanna versni, heldur jafnvel til þess að það batni, vegna þess að menn geta jafnvel í slíkum umræðum fengið tilefni til að kynnast og skiptast á skoðunum.
Herra forseti. Ég ætla ekki að tefja störf deildarinnar með því að ræða þetta sjálfsagða mál frekar. Ég vænti þess, að það fái afgreiðslu hér í hinni hv. deild, helst strax í kvöld eða þegar forseta þykir henta, og efast ekki um að það muni fá stuðning allra þdm.