17.12.1980
Efri deild: 36. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

176. mál, vörugjald

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Vegna athugasemdar hv. þm. Kjartans Jóhannssonar vil ég taka það fram, að það er fullgildur og mjög virðulegur meiri hl. í þessari nefnd sem stendur að þessu nál. (KJ: Hvað um forsrh.?)

Hér er til umr. frv. til laga um vörugjald. Umfjöllunin um það mál hefur verið tiltölulega friðsöm hér á Alþingi, en utan þings hefur hins vegar verið nokkuð um hávaða út af þessu frv. Ég æta ekki að gera ítarlega að umræðuefni þann málflutning, sem hafður hefur verið í frammi, og þær hótanir, sem nokkrir verksmiðjueigendur hér í borginni hafa haft í frammi við starfsfólk sitt út af þessu frv., — hótanir sem eru ærið undarlegar þegar horft er til aðgerða þessara verksmiðjueigenda sjálfra á s.l. tveimur árum, — og mun ég koma að því síðar.

Vörugjald var fyrst lagt 1939 á sælgætistegundir ýmiss konar og öl. Árið 1960 voru síðan sett lög nr. 4, lög um efnahagsmál, sem almennt ganga undir heitinu viðreisnarlögin og fólu í sér veigamiklar aðgerðir í efnahagsmálum, svo veigamiklar að sumir hv. þm., bæði í þessari deild og hinni, hafa talið þessa viðreisnarlöggjöf til merkustu tímamóta í íslenskri hagstjórn og til mestrar fyrirmyndar. Þeir eru ekki ófáir þm. Sjálfstfl. og Alþfl. sem hvað eftir annað dásama þessa viðreisnarlöggjöf.

Það vill svo skemmtilega til, að eitt af meiri háttar ákvæðum viðreisnarlaganna var einmitt hækkun á því vörugjaldi, sem hér er til umr., og sú hækkun nam hvorki meira né minna en 200%. Það hefur farið fram athugun á því, hvað þetta vörugjald ætti að nema hárri upphæð ef viðreisnarlögin væru enn í gildi. Ég ætla að gefa hv. þd. nokkrar upplýsingar um hve hátt viðreisnarvörugjaldið af sælgæti og öli ætti að vera ef þessi tímamótalöggjöf í efnahagsmálum frá 1960 hefði fengið að fylgja verðbólguþróun.

Samkvæmt viðreisnarlöggjöfinni ætti vörugjald á karamellum, tyggigúmmíi, brjóstsykri og öðrum sætindum að nema nú 2528 kr. á hvert kg, en mun samkv. þessu frv. nema aðeins 190 kr. Með þessu frv. næst ekki einu sinni tíundi hluti af því sem gjaldið ætti að vera. (KJ: Það er enginn árangur.) Nei, það er lóðið. Það er nefnilega enginn árangur, hv. þm. Kjartan Jóhannsson. Þess vegna á ég bágt með að skilja öll þessi læti í hv. stjórnarandstöðu og iðnrekendum og öðru ágætisfólki í þessu landi.

Það er einnig athyglisvert, að ef viðreisnarlöggjöfinni væri fylgt ætti vörugjald á negrakossa að nema 1528 kr., en á samkv. þessu frv. eingöngu að nema 370 kr. Að vísu er gengið aðeins lengra á viðreisnarbrautinni hvað negrakossana snertir en brjóstsykur, tyggigúmmí og karamellur og önnur sætindi, en þó aðeins lítið brot af því sem vörugjaldið á þessar tegundir ætti að vera ef viðreisnarlögin væru í gildi.

Þannig mætti telja ýmsa liði. Það er aðeins á einum stað sem vörugjald er hærra en ætti að vera samkv. viðreisnarlögum og það er á mattöll. Á öllum öðrum þáttum væri viðreisnarvörugjaldið langtum hærra, margfalt hærra.

Það er nú svo, að hér hafa setið margar góðar stjórnir síðan viðreisnarstjórnin sáluga var og hét og það hefur láðst að leiðrétta þetta gjald í samræmi við verðlagsþróun í landinu. Hér er stigið mjög lítið skref í þá átt. Það er þess vegna ljóst, að í samanburði við þær aðgerðir, þegar hæstv. stjórnarandstöðuflokkar réðu hér öllu og settu hin merku lög um viðreisn efnahagsmála 1960, að þá var hækkun vörugjaldsins miklu meiri en hún nemur núna.

Í málflutningi hefur komið fram utan þings og hv. þingnefnd fékk að heyra það hjá fulltrúa iðnrekenda, Davíð Scheving Thorsteinssyni, sem mætti á fundi n. og lýsti því þar yfir, en hefur ekki haft það á orði í dagblöðum, að þetta mál væri smámál í samanburði við þörfina á því að hækka jöfnunargjaldið. Það hefur hins vegar lítið farið fyrir þessum yfirlýsingum formanns iðnrekenda í Morgunblaðinu, en ég mun sjá til þess, að þessi yfirlýsing hans um, að hækkun vörugjaldsins sé smámál samanborið við þörfina á að hækka vörugjaldið, komist til eyrna starfsfólks í iðnaði og þeirra verksmiðjueigenda sem sent hafa Alþingi harðorð mótmæli vegna þessarar lagasetningar. Það var athyglisvert, að meginhlutinn í málflutningi formanns iðnrekenda á fundi n. var hvatning í garð þingsins til að hækka jöfnunargjaldið. Aðeins í lokin fór hann nokkrum orðum um þetta smámál að hans dómi, hækkun vörugjaldsins. Já, ég vona að hv. þingfréttaritari Morgunblaðsins, sem greinilega er iðjulaus við skriftir uppi á svölunum, muni eftir að koma því til lesenda sinna, að formaður iðnrekenda, sem mjög hefur verið talað við út af þessu frv. í Morgunblaðinu, hafi talið þetta frv, smámál og þessa hækkun smámál samanborið við þörfina á því að hækka jöfnunargjaldið. (Gripið frsm í: Er það formaður þingflokks sem talar svona?) Nei, það er unnandi frjálsrar pressu sem talar svona við þingfréttaritara þess blaðs sem oftast og tíðast hefur talið sig flytja sannastar fréttir af umr. og störfum þingsins. (Gripið fram í.) Og hefur staðið sig vel í þeim efnum miðað við marga aðra.

En sá málflutningur, sem hefur kannske tafið hvað mest fyrir varðandi þetta frv., er að þessi hækkun muni leiða til samdrátta, í rauninni atvinnuleysis. Hafa ýmsir þeirra, sem þennan málflutning hafa sett fram, sérstaklega verksmiðjueigendur ýmsir í þessum iðngreinum, talað eins og hér væri á ferðinni mjög sjaldgæfar hækkanir á þessum vörutegundum. Ég vil því upplýsa hv. þingdeild um að hækkunin á súkkulaði og brjóstsykri og öðrum sælgætistegundum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar, í verðlagi mun nema aðeins frá 7.1% til 9.3%. Það er nú öll hækkunin á sælgæti af ýmsu tagi, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar, sem mun verða, ef þetta vörugjald verður samþykkt, 7.1–9.3%. Ég verð að segja alveg eins og er, að ég á bágt með að trúa því, ef hafðar eru í huga þær tugahækkanir sem orðið hafa á þessum vörutegundum á undanförnum mánuðum og árum, að þessi hækkun, innan við 10%, muni leiða til samdráttar og stórfellds atvinnuleysis í greininni og sé tilefni til þess, að forstjórar þessara verksmiðja rjúki til og fari að hóta starfsfólkinu uppsögnum. Það er þá orðið eitthvað skrýtið í okkar framleiðslu- og verðlagskerfi ef svo lítil hækkun er orðin tilefni til slíkra stórfelldra aðgerða.

Það kann hins vegar að vera að framleiðendur á gosi og öli af ýmsu tagi hafi meira til síns máls. Kann að vera, segi ég, við fyrstu sýn, vegna þess að þar eru hækkanirnar frá 23.3 í 26.1%. En við skulum aðeins líta á hvað hefur gerst varðandi þessar framleiðslutegundir og hvað þessir verksmiðjueigendur hafa sjálfir fari6 fram á af hækkunum árið 1980. Árið 1980 hafa verðlagsyfirvöld leyft hækkanir á gosdrykkjum sem nema 72%, hafa þessir verksmiðjueigendur þó ekki fengið allar þær hækkanir sem þeir hafa beðið um. Ein hækkunarbeiðnin t.d., svo ég nefni hana hér til sögunnar, var af sams konar stærðargráðu og þær hækkanir sem verða nú vegna vörugjaldsins, eða rúm 20%. Það eru verksmiðjueigendurnir sjálfir sem hafa farið fram á þessa hækkun. Þá töluðu þeir ekki um atvinnuleysi. Þá sögðu þeir ekki upp starfsfólkinu. Nei, þá skömmuðu þeir stjórnvöld fyrir að leyfa ekki svona mikla hækkun. Og hver hefur hækkunin á öli orðið á árinu 1980? 88%. Sú hækkun, sem nú á að verða, er í flestum tilfellum aðeins lítill hluti af þeirri hækkun sem orðið hefur á árinu.

Það er hins vegar rétt, að hækkanir á þessum vörum eru umfram verðhækkanir sem orðið hafa í landinu. Það er nokkuð athyglisverð saga ef borið er saman við þann tíma 1979 þegar Alþb. fór með viðskiptamál, þá voru hækkanirnar mun minni. Á gosdrykkjum ýmiss konar voru hækkanir þá rúm 30% og á öli 44%. Þá voru hækkanirnar hins vegar aðeins leyfðar tvisvar sinnum. Menn geta leikið sér að því að deila tveimur í þá hækkun, 44%, sem þá varð á öll, og áttað sig á því, hver hún er, og borið hana saman við þá hækkun, sem nú er, og hafa í huga að allt þetta ár skömmuðu sömu verksmiðjueigendur þáv. hæstv. viðskrh. fyrir að leyfa ekki meiri hækkanir og jafnvel lokuðu verksmiðjunum vegna þess að þeir fengu ekki meiri hækkanir. En nú snúa þeir allt i einu dæminu við. Ég verð að segja eins og er, herra forseti, að ég á mjög bágt með að trúa því í ljósi reynslunnar að þessi málatilbúnaður verksmiðjueigenda sé réttur.

Reynslan mun hins vegar leiða í ljós, ef þetta frv. verður samþykkt, hvort það leiðir til samdrátta. Ég hef enga trú á því, að þessi 7%–9% hækkun á sælgætisvörum ýmiss konar leiði til samdráttar í sælgætisiðnaðinum ein út af fyrir sig, og ég hef enga trú á að álíka hækkun og varð á árinu 1979, í þau tvö skipti sem verksmiðjueigendurnir fengu hækkun og lokuðu þá í annað skiptið vegna þess að þeir fengu ekki meiri hækkun, sé núna allt í einu orðin svo hroðaleg að hún leiði til þess að segja þurfi upp starfsfólkinu. Hitt er svo sérstakur kapítuli um atvinnurekendavaldið í þessu landi, að fyrst skuli starfsfólkinu vera sagt upp og síðan skuli vera komið með undirskriftalista til þess og það beðið um að skrifa undir áskorun til þingsins um að leggja ekki þetta gjald á.

Í umfjöllun nefndarinnar kom einnig fulltrúi frá verslunarráðinu og lagði fram ýmis gögn til stuðnings því, að Verslunarráðið væri andvígt þessari hækkun. Það er út af fyrir sig ekki nýtt. Verslunarráðið hefur barist gegn opinberum gjöldum af hvaða tagi sem er síðan ég kom á þing, og ber vissulega að fagna því, að þeir skuli halda vöku sinni. En kjarni málsins er hins vegar sá, ég er þeirrar skoðunar og sá meiri hl. sem að þessu nál. stendur, að sá mátatilbúnaður og sá ótti, sem gripið hefur um sig, að álagning þessa gjalds muni leiða til stórfellds atvinnuleysis, sé tilhæfulaus með öllu, kannske einkum og sér í lagi algjörlega út í hött hvað snertir sælgætisiðnaðinn og varla raunhæfur hvað snertir gosdrykkjaiðnaðinn þegar höfð er í huga reynslan af mátflutningi þessara sömu verksmiðjueigenda á árunum 1979 og 1980.

Ég vil svo, herra forseti, þakka samstarfsmönnum mínum í n. fyrir góðan samstarfsvilja þeirra við afgreiðslu þessa máls. Við fengum ýmis önnur gögn um málið, aðrar upplýsingar, en ég ætla ekki að rekja það hér vegna þess að ég vænti þess, að frsm. minni hl. n. og kannske fleiri komi þeim á framfæri.