17.12.1980
Efri deild: 36. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)
176. mál, vörugjald
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Ég vek athygli á ummælum hv. 11. þm. Reykv., þar sem hann lítilsvirðir verkafólk á þann hátt, að maður heyrir ekki annað eins í þingsölum, og gefur í skyn að þær undirskriftir, sem hingað hafa borist, þau mótmæli, sem hingað hafa borist gegn því vörugjaldi sem nú á að leggja á séu vegna þrýstings atvinnurekenda, að það sé allt til komið vegna hótana atvinnurekenda. Það vill svo til, að um 600 manns á þessu svæði hafa einmitt mótmælt þessu gjaldi og telja atvinnuöryggi sínu stefnt í voða.
Við höfum séð það fyrir okkur, hve atvinnuástandið er ótryggt í landinu, og ég trúi því ekki, að hv. þm. meini það í raun og veru, að hér sé ekki voði á ferðum. Það er ekki aðeins starfsfólkið, sem hefur mótmælt þessum hækkunum, heldur einnig stjórn iðju, félags verksmiðjufólks, sem sendi frá sér svohljóðandi mótmæli, með leyfi forseta:
„Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks, mótmælir harðlega frv. því sem fram er komið á Alþingi um allverulega hækkun vörugjalds af öli, gosdrykkjum og sælgæti. Verði frv. að lögum mun það leiða til umtalsverðra hækkana á þeim vörutegundum, sem um er að ræða, og því ærin ástæða til að óttast að allverulega dragi úr sölu þeirra. Afleiðingin verður því sú, að fyrirtækin verða að draga úr framleiðslunni, en það mun óhjákvæmilega leiða til fækkunar starfsfólks í umræddum iðngreinum. Því er afkomu og atvinnuöryggi ófyrirsjáanlegs fjölda fólks stefnt í hættu. Stjórnin tekur heils hugar undir mótmæli þau sem fram komin eru frá hundruðum félagsmanna varðandi hækkun vörugjaldsins, og færir þeim jafnframt þakkir fyrir þeirra framlag og framtakssemi, sem bera vott um framsýni, dugnað og ótvíræða samstöðu. Stjórnin varar ríkisvaldið alvarlega við þeim afleiðingum er koma munu í kjölfarið verði frv. samþykkt sem lög frá Alþingi.“
Þessari ályktun er lokið, en hún sýnir okkur að samtök iðnverkafólks hafa verulegar áhyggjur af því sem nú er verið að knýja í gegn. Ég er sannfærður um að þau ummæli, sem hér eru höfð, eiga við rök að styðjast.
Það er vart hægt að trúa því, að hægt sé áð tala af eins mikilli lítilsvirðingu um það fólk, sem starfar í þessum iðngreinum, og hv. þm. hefur gert.
Ég skora á stjórnarsinna að draga þetta frv. til baka. Það mun ekki leiða til neins góðs. Þvert á móti mun það leiða til atvinnuleysis. Þau ummæli, sem hv. þm. hefur um þessi mótmæli, eru kaldar kveðjur til þess fólks sem hefur lýst hér áhyggjum sinum, kaldar kveðjur til þess verkalýðsfélags sem hér hefur mótmælt.
Við Alþfl.-menn skorum á stjórnarsinna að draga frv. til baka vegna þess að við erum þess fullvissir, að þetta vörugjald mun leiða til atvinnuleysis. Það má vel fíflast með það, að orðið hafi meiri hækkanir á ýmsu og menn hafi óskað meiri hækkunar á vörunni eða einhverrar hækkunar, þ.e. verksmiðjueigendurnir sjálfir. En ég er þeirrar skoðunar, að það bæti ekki ástandið.
Það má vel vera að viðreisnarstjórn: hafi lagt á hátt gjald, en er það nú orðið röksemd fyrir því, að gjaldið þurfi að hækka? Nei, okkar málflutningur sýnir að við höfum áhyggjur af atvinnuástandi í landinu, sem vissulega hefur við rök að styðjast, og á því er málflutningur okkar byggður.