17.12.1980
Efri deild: 37. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)

176. mál, vörugjald

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Eins og komið hefur fram í umr. um þetta mál er hér um algjörlega nýjan skatt að ræða sem á að verða til þess að standa undir útgjöldum ríkisins og annað ekki. Þeir segja að þetta sé nýr skattur vegna þess að áður var um að ræða tiltölulega lágt magngjald, en nú er í rauninni verið að leggja eins konar veltuskatt á þessa framleiðendur sem er á bilinu 10–30%. Ég tel að hér sé þess vegna um hreinlega nýjan skatt að ræða.

Í grg. með frv. er rakið nákvæmlega eða næstum því aftur til aldamóta hvernig þróunin hafi verið um skattlagningu á þeim vörutegundum sem hér um ræðir, hvort heldur er lakkris, karamellur, negrakossar eða íburðarmeiri brauðvörur eða gúmmítöflur. Þetta er auðvitað gífurlegur fróðleikur og gott fyrir sagnfræðinga, en hefur tiltölulega lítið gildi fyrir þingið sem slíkt við að ákveða hvort tilteknar iðngreinar skuli lifa eða deyja, hvernig þeim skuli vegna.

Meginatriði málsins er vitaskuld það, eins og hefur komið fram hjá ýmsum öðrum, að hér er um mjög verulega skattlagningu að ræða, áætlaðar tekjur um 3.7 milljarðar kr., og þó að það komi fram í upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun að ríkið ætli reyndar að borga sjálfu sér þó nokkurn hluta af þessu, nefnilega um 900 millj, af þessum 3.7 milljörðum, er hér engu að síður um verulega skattlagningu á aðra aðila að ræða eða um 2.8 milljarða kr. Það er fróðlegt að bera þá tölu, 2.8 milljarða kr., saman við hvað launagreiðslur í landinu munu hækka mikið af þessum sökum fyrir sakir vísitöluáhrifa, en sú tala er svipuð eða 2.1–2.9 milljarðar, eins og segir í öðru minnisblaði frá Þjóðhagsstofnun.

Annars var mjög fróðlegt að fylgjast með framsöguræðu þess hluta fjh.- og viðskn. sem mælir með samþykkt frv. Frsm. talaði um það með mikilli óvirðingu, að uppi væru nú hótanir verksmiðjueigenda. Ég veit ekki betur en hv. Alþingi hafi kynnst þessu með þeim hætti, að hingað hafi komið undirskriftir verkafólks í iðngreininni. Hvenær hófst að leggja að jöfnu undirskriftir verkafólks og hótanir verksmiðjueigenda veit ég ekki, en það sýnir ekki neina sérstaka virðingu fyrir því verkafólki sem í þessari iðngrein starfar.

Það var líka athyglisvert að hlusta á það, að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson virtist hafa komist að þeirri niðurstöðu, að tilvist og árangur viðreisnarstjórnarinnar hefði byggst á því, að þetta svonefnda vörugjald hefði verið hækkað. Ég er sannfærður um að hæstv. forsrh., sem sæti átti í þeirri ríkisstj. getur staðfest að það hafi ekki eingöngu verið með því að hækka verð á súkkulaði og kexi sem árangur náðist í viðreisnarstjórninni, hvað þá á gosdrykkjum, heldur hafi meiri háttar aðgerðir af öðru lagi ráðið því, að árangur varð svo góður sem raun ber vitni í tíð viðreisnarstjórnarinnar, í þeirri hreingerningu sem hún framkvæmdi strax og hún komst til valda.

Það er greinilegt að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson bindur mjög miklar vonir við að einmitt það að leggja skatt á súkkulaði og kex muni verða upphaf að nýju skeiði í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það er ekki hægt að leggja öðruvísi út af orðum hans en að aðalrökstuðningur hans fyrir því að fara inn á þessa braut byggist á þeim vonum sem hann telji vera við þetta gjald bundnar með hliðsjón af því, hversu mikilvægt hann telur að það hafi verið á sínum tíma. Ég held að engum öðrum hefði getað dottið í hug að í þessu fælist sá lífsneisti sem ég veit að hv. þm. og kannske ýmsir aðrir vona að felist í brjósti ríkisstj.

Það er fróðlegt líka í þessu sambandi að það fara sífellt fram miklar umræður um að nauðsynlegt sé að einfalda skattkerfið. Þessi skattur, sem hér um ræðir, var af því tagi að vera lágt magngjald, en það magngjald hefur nú verið afnumið og í staðinn tekið upp þetta veltuskattsform á bilinu 10–30%. Það er hér verið að endurlífga a.m.k., en þó að öllum líkindum frekar að finna nýjan skattstofn og gera hann að stærri þætti í efnahagsbúskapnum en gamli skatturinn var. Þetta fer nú heldur á skakk við þá umræðu sem uppi hefur verið um að einfalda skattkerfið.

Það er líka fróðlegt og ágætur boðskapur til framsóknarmanna, að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson talaði um það með mikilli lítilsvirðingu, að hér yrði ekki nema 23–26% hækkun á gosdrykkjum og 7–9% á sælgæti og negrakossum og því um líku. Ég veit ekki betur en blessaður Framsfl. hafi verið að tala um niðurtalningu verðbólgunnar og þeir flokksmenn verið svo hógværir að vera að tala í litlum prósentutölum um að telja þetta niður. En það er náttúrlega til marks um hve viðhorfin eru mismunandi í þessum efnum, að á sama tíma og Framsfl er að berjast við að fá að telja verðbólguna niður um fáein prósentustig er talað um það með mikilli lítilsvirðingu, að hækkunin af þessum sökum sé ekki nema 23–26% á gosdrykkjum og 7–9% á sælgæti.

Ég minnist þess líka, að það hafa stundum verið miklir bardagar við að reyna að ná vísitölunni niður og menn hafa þar bitist um 1/2 og 1%, sem þeir töldu að horfði til bóta og væri spor í þá átt að draga úr verðbólguþróuninni, á svipaðan hátt og Framsfl. er nú að tala um að feta sig niður — eða var a.m.k. að tala um að feta sig niður — um 1% eða 2 á þriggja mánaða fresti. Fyrir tveimur árum var t.d. mikið á sig lagt til að ná hverju hálfu prósentustigi, nú þykir það ekkert mál þó að fjórðungur úr prósentustigi í verðbólgu bætist við fyrir sakir þessa skatts. Ekki verður það til þess að auðvelda niðurtalninguna sem Framsfl. hefur boðað.

Það er engin grein gerð fyrir því, hvað eigi að gera við þá peninga sem af þessu gjaldi koma inn til tekna. Verður það ekki skilið öðruvísi en að það eigi að fara beinlínis til að mæta rekstrarútgjöldum ríkissjóðs, beint í ríkishítina, og er þó ærið á menn lagt í þeim efnum fyrir.

Það kemur manni líka spánskt fyrir sjónir, að ekki eru nema nokkrir mánuðir síðan ástæða þótti til að grípa til sérstakra ráðstafana til að styrkja stöðu sælgætis- og kexiðnaðarins í landinu. Þá var staða þess iðnaðar talin svo veik, að það væri rétt að aðstoða hann. En nú láta menn sig ekkert muna um að finna upp skatt sem eykur álögur á þá vöru, sem þar er framleidd um 3.3 milljarða kr., ef í heildina er tekið allt sem selst af þessari vöru hér í landinu. Þetta hefði maður varta trúað að væri ráðið til að styrkja stöðu greinarinnar. Hingað til hefur verið talið að álagning af þessu tagi yrði til að rýra stöðu greinarinnar. Ég verð að segja það eins og er, að ég tel að þessi grein standi ekki neitt sérlega vel og að það sé veruleg hætta á því að þetta geti orðið greininni mjög þungt í skauti. Þess vegna vara ég við því, að farið sé inn á þessa braut, tel að hér sé verið að fara inn á ranga braut, ekki einungis verið að endurlífga skatt sem var í raun og sannleika að deyja, heldur er líka verið að stofna stöðu þessarar iðngreinar í hættu. Og það er auðvitað hárrétt, sem birtist í undirskriftum frá verkafólki í greininni, að þetta boðar ótryggt atvinnuástand hjá því. Það er hörmulegur útúrsnúningur að leggja undirskriftir verkafólks út sem hótanir verksmiðjueigenda eins og gert var áðan.

Ég tók eftir því í sambandi við umræður um efnahagsmál og ráðstafanir í efnahagsmálum hér fyrir skömmu, að hæstv. forsrh. lýsti því yfir, að um ráðstafanir sem gera skyldi gilti það, að unnið væri að undirbúningi þeirra. Hann tók það líka fram, að það færi svo eftir hendinni og sjálfsagt eftir því hvernig verkið ynnist, hvenær þessar ráðstafanir sæju dagsins ljós, hvenær þm. fengju að kynnast þeim eða þjóðin yfirleitt. Sumt yrði kannske að leggja fyrir þingið, en sumt ekki. Það mætti að vísu setja brbl. ef á þætti þurfa að halda. Það, sem yrði tilbúið fyrir jól, kæmi auðvitað fyrir þingið fyrir jól, en það, sem ekki yrði tilbúið fyrir jól, kæmi bara seinna. Þetta er náttúrlega góður og gildur sannleikur og hefði hver sem er getað gefið yfirlýsingar af þessu tagi.

En það, sem ég rek sérlega augun í þessu sambandi, er að forsrh. boðaði að það, sem yrði tilbúið fyrir jól af efnahagsráðstöfunum ríkisstj., yrði auðvitað lagt fyrir þingið fyrir jól. Hér eru greinilega fyrstu sporin stigin. Þetta er fyrsta efnahagsráðstöfun ríkisstj. í sambandi við myntbreytinguna. Hér er greinilega um stefnumarkandi frv. að ræða, maður spyr nú ekki ef lagt er út af þeirri ræðu sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson flutti áðan. Hér eru fyrstu sporin stigin í efnahagsráðstöfunum ríkisstj. og forsrh. hefur nú loksins tekist að efna eitt loforð um að leggja fyrir þingið fyrir jól stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum eða fyrsta skrefið í þeim efnum. Ég verð að segja að ég er svolítið vantrúaður á að þessi ráðstöfun ein sér muni duga til að ná verulega góðum tökum á efnahagsmálum hér á landi, en engu að síður er það náttúrulega góðra gjalda vert að ríkisstj. skyldi þó takast að leggja fram fyrsta frv. sitt í efnahagsmálum fyrir jól, og það eru auðvitað margir sem fagna því, að það skuli hafast af hjá ríkisstj. að stíga þannig að sínum dómi fyrstu sporin í þá átt að treysta efnahagslífið í sambandi við þá myntbreytingu sem fram undan er.

En menn geta svo náttúrulega af þessu fyrsta efnahagsmálafrv. ríkisstj., um álögur á sælgæti, gosdrykki, kex og negrakossa, dregið ályktanir um hvernig framhaldið verði. Þessi fyrstu spor benda til þess, að það verði frekar upptalning á verðbólgunni en niðurtalning, að það verði auknir skattar, auknar álögur á fólkið í landinu, að verðlag verði hækkað enn frekar og að atvinnuöryggi verði stefnt í hættu. Ég skal ekki segja hvert framhaldið verður, hvort það verður tekið fyrir grein fyrir grein þegar menn eru búnir að koma þessu svona fyrir að því er varðar sælgæti og kex og gosdrykki, hvort síðan verður næsta iðngrein og atvinnugrein tekin fyrir. Það er ómögulegt um að segja. (ÓRG: Gengur ekki bæjarútgerðin í Hafnarfirði vel?) Jú, ágætlega.

Það er auðvitað mjög ánægjulegt að þm. skyldu þannig fá að kynnast stefnumörkun ríkisstj. og það skyldi hafast hjá henni að leggja þó fram a.m.k. eitt stefnumarkandi frv. fyrir jólin.