17.12.1980
Neðri deild: 34. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1621 í B-deild Alþingistíðinda. (1708)
172. mál, lántaka 1980 og 1981 og ábyrgðarheimildir
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. þm. Halldór Blöndal beindi spurningu til mín áðan og var svo elskulegur að taka það fram, að það væri nokkuð sama hvort henni yrði svarað við 2. umr. eða 3. umr. Síðan sleit forseti umr., en þá var hv. þm. svo óþolinmóður, að hann gat ekki hugsað sér að bíða til 3. umr. og kvaddi sér aftur hljóðs til að endurtaka spurninguna og bætti hér við löngu máli. Ég sé því að ef sálarfriður hv. þm. á að verða í lagi, þá dugar ekki annað en svara þessari spurningu strax við 2. umr., og mér er kært að verða honum að liði í þeim efnum.
En spurning hans var ósköp einfaldlega: Hver verður verðlagsþróunin á næsta ári? (HBI: Á hverju er byggt?) Og á hverju er það byggt, að í fjárlagafrv. og í drögum að lánsfjáráætlun er miðað við 42% hækkun verðlags? Ég get upplýst það, að þessi áætlun er byggð á þeirri spá sem fyrir lá þegar fjárlagafrv. var samið. Þá var gert ráð fyrir því, að vegin meðalhækkun verðlags á árinu 1981 yrði 15%, — og þá bið ég menn að athuga mjög vandlega að það er verið að tala um vegna meðalhækkun verðhækkana yfir allt tímabilið og hún var áætluð 15%, sem miðaðist við það, að verðbólga frá miðju ári 1980 til miðs árs 1981 yrði 42%.
Það má vel vera að þessi spá þurfi endurskoðunar við í kjölfar þeirra efnahagsráðstafana sem fyrirhugaðar eru af hálfu ríkisstj., enda er það svo, að flestar spár, sem gerðar eru hér í verðlagsmálum, þurfa endurskoðunar við með jöfnu millibili, ýmist til hækkunar eða lækkunar. Sveiflurnar eru það miklar, að það er sjaldnast hægt að sjá það alveg fyrir, hversu mikil hækkunin er hverju sinni. Það var t.d. eftirtektarvert, að þegar Vinnuveitendasamband Íslands gerði spá sína í kjölfar kjarasamninga í nóvembermánuði, þá miðaði Vinnuveitendasambandið við það, að á næstu 12 mánuðum færi verðbólgan upp í 80–85%, en þegar svo aftur Þjóðhagsstofnun settist niður til að spá, þá voru tölurnar allmiklu lægri eða í kringum 70%. Formaður Vinnuveitendasambandsins hefur nýlega gefið skýringu á þessu. Skýringin er sú, að ýmislegt hafi breyst í millitíðinni. T.d. varð hækkun framfærsluvísitölunnar alls ekki eins mikil 1. des. og hinir spöku sérfræðingar Vinnuveitendasambandsins höfðu gert ráð fyrir. Hún var ekki nema í kringum 10.5%, en þeir höfðu reiknað með 12–13%. Þannig getur margt brugðist í spádómum, ekki aðeins hjá ríkisstj., heldur hjá öllum þeim aðilum sem í spádómum standa. Og þess vegna er það svo, að sú spá, sem fyrir liggur um 42% milli áranna 1980 og 1981, þarf ekki að vera óyggjandi eða örugg og þarf örugglega endurskoðunar við þegar fram í sækir, sérstaklega eftir að gengið hefur verið frá þeim ráðstöfunum sem óhjákvæmilegar verða í tengslum við fiskverðsbreytingu og breytingu á kjörum sjómanna.
Ég held að ég hafi gert hér fullnægjandi grein fyrir því, hvernig þessi 42% tala er fengin. En ég tek undir það með þm., að vafalaust þarf að taka þá tölu til endurskoðunar þegar meira liggur fyrir um hver þróunin verður á næsta ári.