17.12.1980
Neðri deild: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1636 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)
169. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Frsm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta frv. Efni þess er það, að í verðjöfnun er einnig tekin inn steinolía til notkunar á flugvélar. Nefndin varð sammála um afgreiðslu málsins og leggur til að frv. verði samþykkt.