17.12.1980
Neðri deild: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)
107. mál, manntal 1981
Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Allshn. Nd. hefur haft til athugunar frv. til 1. um manntal 31. jan. 1981. Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt með þeirri breytingu sem á því varð í Ed.
Það gafst ekki tími til að senda þetta mál út til umsagnar, en á fund nefndarinnar kom Klemens Tryggvason hagstofustjóri og gerði ítarlega grein fyrir málinu. Segja má að hér sé framkvæmd viss söguskráning í tölum, og það var m.a. upplýst, að gert er ráð fyrir að þær upplýsingar, sem safnað verður, séu sambærilegar við þær sem aflað er á hinum Norðurlöndunum.
Ég vil jafnframt geta þess, að með þær upplýsingar, sem snúa að einstaklingunum beint og mundu flokkast undir persónulegar upplýsingar, verður farið sem trúnaðarmál af hálfu þeirra aðila, sem um þetta manntal sjá af hálfu Hagstofunnar. Einnig vil ég koma því á framfæri, að áður en þeim gögnum verður dreift, sem ætlast er til að almenningur fylli út, er framkvæmd forkönnun til að koma í veg fyrir að spurningar séu á þessum blöðum, sem atmenningur veigrar sér einhverra hluta vegna við að svara.
Ég tel að æskilegt hefði verið að senda frv. eins og þetta út til umsagnar, en eins og ég gat um áður vannst ekki tími til þess. Jafnframt er því við að bæta, að þetta frv. er unnið í samvinnu við sveitarfélögin í landinu og ýmsa fleiri aðila sem töldu sig hafa þar hagsmuna að gæta. Við sáum þess vegna ekki ástæðu til að leggjast á mál þetta, sem hefði þýtt það, að orðið hefði að seinka manntalinu frá því sem frv. gerir ráð fyrir, til mikils óhagræðis fyrir sveitarstjórnirnar.