17.12.1980
Efri deild: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1785)

172. mál, lántaka 1980 og 1981 og ábyrgðarheimildir

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj. ætla ekki að gera það endasleppt með lánsfjáráætlun og umfjöllun um þau mál á þessu Alþingi. Um þetta hafa orðið allmiklar deilur. Hæstv. ráðh. hefur ekki viðurkennt þá augljósu staðreynd, að honum ber skylda til að leggja fram með fjárlagafrv. frv. að lánsfjárlögum. Hann hefur neitað þessu staðfastlega, en ég ætla að kalla hér fram dómara í þessu máli sem er hæstv. ráðh. sjálfur.

Hæstv. ráðh. lagði fram frv. að lánsfjárlögum á þingi s.l. vetur, og segir í skýrslu hæstv. ráðh. sjálfs:

„Í lögum nr. 13 10. apríl 1979, um stjórn efnahagsmála, segir að leggja skuli fyrir Alþingi fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir fyrir eitt ár í senn og skuli þær fylgja fjárlagafrv.“

Siðar segir í þessari skýrslu — þetta er strax í upphafi skýrslunnar:

1981 og ábyrgðarheimildir. 1658 „Þingrofið í október 1979, alþingiskosningarnar í desember 1979 og hin langvinna stjórnarkreppa, sem fylgdi í kjölfarið, hafa á ýmsan hátt raskað eðlilegum gangi þingmála.“ — Svo segir hér, með leyfi forseta: „Af þessum sökum var ekki kleift að leggja fjárfestingar- og lánsfjáráætlun í heild fyrir Alþingi samtímis fjárlagafrv.“ — Samtímis fjárlagafrv., segir hæstv. ráðh.

Þetta segir hæstv. ráðh. sjálfur í skýrslu um fyrstu lánsfjáráætlun eða drög að lánsfjáráætlun sem hann lagði fyrir hið háa Alþingi. Ég held að það sé alveg ljóst að með þessum orðum viðurkennir hæstv. ráðh. að það ber samkvæmt íslenskum lögum að leggja frv. að lánsfjárlögum fram samtímis fjárlagafrv. (Fjmrh.: Það er ekki það sama.) Er það ekki það sama? Á ég að lesa þetta upp að nýju svo að hæstv. ráðh. skilji?

„Af þessum sökum,“ segir hér, „var ekki kleift að leggja fjárfestingar- og lánsfjáráætlun í heild fyrir Alþingi samtímis fjárlagafrv.“ (Fjmrh.: Það er tvennt ólíkt hvað er skylt og hvað er æskilegt.) Hæstv. ráðh. var búinn að segja hér í upphafi: „Í lögum nr. 13 10. apríl 1979, um stjórn efnahagsmála, segir að leggja skuli fyrir Alþingi fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir fyrir eitt ár í senn og skuli þær fylgja fjárlagafrv.“ Síðan talar hæstv. ráðh. um að leggja þetta fram samtímis, það hafi ekki verið hægt vegna ástandsins í fyrra. Hæstv. ráðh. viðurkennir þetta hér, og það er engin leið fyrir hann með neinum orðhengilshætti að komast fram hjá því. Hæstv. ráðh. hefur gerst dómari í eigin sök.

Um þetta frv., sem hér er til umr., get ég verið stuttorður. Ég er hæstv. ráðh. alveg sammála um að það er sjálfsagt mál að veita honum heimild til að taka svo hagkvæmt lán sem þarna um ræðir, enda hefur hann marglýst yfir að hann muni ekki ráðstafa því fyrr en lánsfjárlög liggja fyrir. Ég segi gjarnan að ég vildi persónulega eiga kost á að taka lán og þurfa ekki að borga af því fyrr en eftir 24 ár. Ég er því hæstv. ráðh. alveg sammála um að þessi lántökuheimild verði veitt út af fyrir sig, miðað við þær yfirlýsingar sem hér hafa verið hafðar í frammi um að þetta lán verði ekki notað nema eftir réttum lögum.

En út af þessu máli vil ég vekja athygli á því, að í þeirri skýrslu, sem hv. þm. hafa fengið um væntanlega lánsfjáráætlun, lánsfjárlög, sem sennilega verður tekin fyrir eftir áramót, eru ýmsar athyglisverðar upplýsingar. Hæstv. ríkisstj. ætlar að auka erlendar lántökur til opinberra framkvæmda um 95% frá lánsfjárlögum í ár samkv. skýrslunni. Hún ætlar að hækka þessar erlendu lántökur úr 49.8 milljörðum í rúma 97 milljarða sem er 95% hækkun, og hún ætlar að auka lántökur til ríkisfyrirtækja í A- og B-hluta um hvorki meira né minna en 67%, sem er náttúrlega talsvert fram yfir verðlagshækkanir, og taka að láni til þessa yfir 59 milljarða kr. Þessi fjáröflun er til viðbótar við allar skattahækkanirnar, og þetta er gert til að halda uppi svipuðu magni framkvæmda á milli ára og var í fyrra og hefur verið á undanförnum árum. En fjármagns til að halda uppi þessum framkvæmdum er aflað með aukinni lántöku ofan á allt skattafárið. Vandamálunum er sem sagt ýtt á undan sér. Ríkissjóður greiðir ekki af samtímatekjum eins mikið til þessara hluta og hann gerði áður þrátt fyrir skattahækkanirnar.

Um þessa lánsfjáráætlun eða drög að lánsfjáráætlun gegnir svipuðu máli samkv. upplýsingum, sem hér liggja fyrir, og í fyrra. Hér er grípið til ýmissa reikningskúnsta til að lækka tölur áætlunarinnar. Samt eru þær eins ógnvekjandi og ég hef hér þegar gert grein fyrir. T.d. eru þær fjárhæðir, sem ríkið hugsar sér að taka að láni lækkaðar með því að strika út lántöku til að greiða afborganir og vexti af Kröflulánum og byggðalínulánum upp á 5 milljarða kr., til þess að lækka þessar fjárhæðir, sem ríkið á pappírnum ætlar að taka í lán, um 5 milljarða. Þetta er rökstutt með því, að um sé að ræða að þessi lán verði framlengd og að þá verði ekki afborgun á þessu ári. Að sjálfsögðu er hér um annað form á lántöku að ræða. Þarna er fundin upp bókhaldsbrella til að lækka lántökutöluna og fá þannig út heldur hagstæðari samanburð milli ára fyrir hæstv. ríkisstj.

Herra forseti. Ég ætlaði að beina einni spurningu til hæstv. ráðh. Hann virðist ekki hafa tíma til að vera viðstaddur umræðuna. (Forseti: Hæstv. ráðh. var kallaður í áríðandi símtal rétt í þessu. Hann kemur von bráðar.) Þá ætla ég að fá að gera hlé á ræðu minni á meðan hæstv. ráðh. er í símanum.

(Forseti: Hv. 3. þm. Norðurl. e. heldur áfram ræðu sinni.) Já, herra forseti, ég held þá áfram ræðu minni, því að hæstv. ráðh. er kominn úr símanum.

Það voru tvær spurningar sem ég ætlaði að leggja fyrir hæstv. ráðh. og vita hvort hann gæti skýrt fyrir hv. deild hvað er á seyði að því er varðar lækkun á lántökum til A- og B-hluta frá því sem var í fjárlagafrv. Þar er lækkuð lántaka til að greiða afborganir af lánum sem tekin hafa verið til framkvæmda við Kröflu og við byggðalínur um rúma 5 milljarða, en í skýrslu hæstv. ráðh. stendur:

„Einnig er fyrirhugað að umbreyta eða taka lán vegna afborgana af lánum Kröfluvirkjunar (2630 millj. kr.) og lánum sem tekin hafa verið vegna byggðalínuframkvæmda (2490 millj. kr.)“

Lántaka er lækkuð um þessar tölur tvær. Spurning mín til hæstv. ráðh. er hvort það sé ekki réttur skilningur hjá mér. Mér sýnist að það komi út á eitt, hvort hæstv. ráðh. ætlar að framlengja þessi lán, þá er hann í raun að taka lán til að framlengja þau, eða hvort hann greiðir þetta, og það sé eðlilegra í alla staði og beinlínis rangfærsla að lækka lántökur ríkissjóðs um þessar tölur. Þessar lántökur fara fram einungis í öðru formi en ætlað var.

Ég vil sem sagt fá skýringu hæstv. ráðh. á því, hvernig hann hugsar þetta: Hann tekur lán til að greiða þetta í öðru formi en ætlunin var þegar frv. var samið, en samt sem áður eru lántökur ríkisins lækkaðar um þessar fjárhæðir.

Í annan stað talaði hann mikið um heimildir og heimildaleysi ríkisstjórna til að gera eitt og annað, veita aukin lán til A- og B-hluta án þess að hafa heimild til þess í lögum og fá heimild síðar. Ég spyr hæstv. ráðh.: Við fengum upplýsingar um það í fjvn., að hann hefði veitt Siglósíld 150 millj. kr. aukafjárveitingu á þessu ári. Ég spyr hæstv. ráðh.: Hvar hefur hann heimild til þess að gera slíkt? Það eru oft veittar aukafjárveitingar til fyrirtækja eða til rn. vegna óhjákvæmilegra útgjalda þeirra, en hér er augljóslega um allt annað að ræða þar sem einu ríkisfyrirtæki eru með ráðherraákvörðun afhentar 150 millj. kr. úr ríkissjóði. Ég spyr hæstv. ráðh.: Hvaðan kemur honum heimild til að gera slíkt?