18.12.1980
Efri deild: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1672 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)

171. mál, jöfnunargjald

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Nefndin hefur fjallað ítarlega um það frv., sem hér er til umræðu, og haldið fundi sameiginlega með fjh.og viðskn. Nd. um málið. Á þá fundi komu til viðræðna fulltrúar Félags ísl. iðnrekenda, embættismenn viðskrn. og formaður sérstakrar nefndar sem skipuð var á síðasta ári til að kanna viðhorf Fríverslunarbandalagsins og Efnahagsbandalagsins til slíkra jöfnunar- og aðlögunargjalda sem eiga að þjóna sérstaklega íslenskum iðnaði meðan hann er að ná þeirri samkeppnisstöðu sem nauðsynleg er þróun hans.

Þessir aðilar lögðu fram ítarleg gögn á fundum nefndanna um þær viðræður og skoðanaskipti sem átt hafa sér stað á undanförnum tveimur árum bæði hér á landi og við fulltrúa þessara tveggja bandalaga, sem ég hef áður nefnt, og forsvarsmenn einstakra ríkja sem aðild eiga að bandalögunum. Jafnframt fékk nefndin sérstakar upplýsingar frá ráðuneytisstjóra viðskrn. bréflega, en hann var staddur erlendis þegar nefndin fjallaði um málið, og að lokum greinargerð frá Þjóðhagsstofnun.

Ljóst er að það mál, sem við erum að fjalla hér um, tengist óhjákvæmilega niðurfellingu aðlögunargjalds, sem í gildi hefur verið, og almennri stöðu iðnaðarins í landinu. Fulltrúi iðnrekenda, formaður samtaka þeirra, flutti þá skoðun á fundum nefndanna, að nauðsynlegt væri að hækka jöfnunargjaldið og helst hefði að hans dómi þurft að framlengja aðlögunargjaldið. Á hinn bóginn túlkaði formaður þeirrar sérstöku nefndar, sem starfaði að þessum málum á sínum tíma, þá skoðun sína, að nær ógerlegt væri að ná fram hækkun á jöfnunargjaldi, en hins vegar bæri að stefna að framlengingu aðlögunargjalds. Og af hálfu ráðuneytisstjóra viðskrn. var túlkað það sjónarmið, að mjög erfitt væri að sækja um hækkun á báðum þessum gjöldum, og sérstaklega framlengingu aðlögunargjaldsins, til forsvarsmanna Fríverslunarbandalagsins og Efnahagsbandalagsins.

Hins vegar voru allir þeir aðilar, sem komu á fundi nefndarinnar, og nefndin öll sammála um það, að nauðsynlegt væri að grípa til ýmiss konar aðgerða til stuðnings íslenskum iðnaði, sérstaklega á sviði iðnþróunar, þótt nokkuð mismunandi skoðanir væru uppi um það, með hvaða hætti það gæti orðið. Því hefur verið haldið fram, að á aðlögunartímanum, sem gilt hefur gagnvart EFTA-aðildinni, hafi ekki verið staðið nægilega að því að skapa íslenskum iðnaði þau starfsskilyrði sem nauðsynleg eru. Það er löng umræða og deila sem kunn er hv. dm. og verður ekki rakin hér. Þó má geta þess, að það kom fram á fundi nefndarinnar í morgun að ákveðið mun hafa verið að fella niður tolla af ýmsum vörum og tækjum og hráefnum til iðnaðarins, sérstaklega samkeppnisiðnaðarins, og bæta þannig aðstöðu hans. Og ýmsar aðgerðir, sérstök iðnþróunarverkefni hafa verið framkvæmd og skilað miklum og jákvæðum árangri, svo að aðeins íslenskur fataiðnaður sé nefndur sem dæmi.

Þegar nefndin stóð frammi fyrir því verkefni að taka afstöðu til þess, hvort ætti að samþykkja frv. óbreytt eða hækka jöfnunargjaldið eða skapa möguleika á sérstöku aðlögunargjaldi eða öðrum þeim aðferðum sem gætu náð þeim markmiðum sem kynnt voru á fundum nefndarinnar, þá var okkur ljóst að á tímanum fram til jóla og áramóta væri ógerlegt að komast til botns í því, hvaða leiðir mundu njóta stuðnings eða þegjandi samþykkis hjá þeim erlendu bandalögum, EFTA og EBE, sem við þurfum að eiga viðskipti við í þessum efnum.

Þess vegna kom sú skoðun fram í umfjöllun nefndarinnar að rétt væri að þingið skapaði stjórnvöldum möguleika á að leita leiða til að ná þessum markmiðum með viðræðum við alla þá aðila sem hér eiga hlut að máli. Þess vegna flytur meiri hl. nefndarinnar á sérstöku þskj. brtt. þess efnis, að við frv. bætist nýtt ákvæði, sem verði ákvæði til bráðabirgða, á þann veg að heimila ríkisstj. á árinu 1981 að leggja á til viðbótar allt að 2% jöfnunar- og aðlögunargjald eða ígildi þess, enda renni tekjur af þessu viðbótargjaldi óskiptar til iðnþróunar.

Það er rétt, sem fram kemur í nál. minni hl. og verður sjálfsagt gerð grein fyrir hér á eftir, að þetta ákvæði til bráðabirgða er mjög opið. Það skapar margvíslega möguleika á því að leita leiða til að ná því markmiði sem nefndin var öll sammála um að þyrfti að ná. Eðli málsins er hins vegar það á þessu stigi að dómi meiri hl. nefndarinnar, að það er óhjákvæmilegt — ef þingið vill stuðla að því fyrir sitt leyti að veita stjórnvöldum þessa heimild — að málið sé svo opið sem fram kemur í ákvæði til bráðabirgða, að þingið taki ekki afstöðu til þess, hvort hér sé um jöfnunargjald, aðlögunargjald eða jöfnunar- og aðlögunargjald eða ígildi þeirra að ræða, vegna þess að slíka ákvörðun er ekki hægt að taka fyrr en að lokinni ítarlegri upplýsingaöflun og ítarlegri viðræðum við viðskiptaaðila okkar erlendis og þau bandalög sem hér hafa verið gerð að umtalsefni.

Þess vegna hefur meiri hl. nefndarinnar kosið að fara þá leið, sem hér er lagt til að verði farin, og gerir það með sérstöku tilliti til þeirra ítarlegu, en því miður nokkuð mismunandi upplýsinga sem nefndinni bárust, þar sem greinilega eru ólíkar skoðanir á því, hvaða leið sé heppilegust eða fær í þessu efni. Nefndin telur ekki gerlegt að þingið kveði upp dóm um það að óathuguðu máli, en með þessu ákvæði er hins vegar verið að skapa möguleika á því, að sú athugun fari fram, og fyrir sitt leyti af hálfu þingsins að stuðla að því, að slíkar aðgerðir til eflingar iðnþróun í landinu geti náð fram að ganga.

Þetta er eitt af þeim málum sem háð eru niðurstöðu framtíðarinnar, eins og oft hefur verið sagt. Það er erfitt að spá, en aldrei jafnerfitt og um framtíðina. Og við erum með þessu ákvæði, þessari brtt. að leggja upp í ákveðna för með tiltekið veganesti. Við höfum ekki vissu fyrir því hver niðurstaðan verður, en höfum hins vegar náð víðtækari samstöðu um að gera það sem við teljum kleift til að stuðla að því að vaxtarskilyrði íslensks iðnaðar verði á þann veg, að hér geti í landinu á næstu árum orðið öflug iðnþróun.