18.12.1980
Efri deild: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (1845)
171. mál, jöfnunargjald
Frsm. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Það er merkilegt þegar menn láta sér detta í hug að það feli í sér umburðarlyndi að halda fundi með eðlilegum og lýðræðislegum hætti. Ég veit ekki til þess, að það tíðkist að halda nefndarfundi öðruvísi en allir nm. séu boðaðir, þannig að það eitt að hafa orð á slíku, svona hugmynd, er náttúrlega ekki góðs viti. Hitt er annað mál, að auðvitað hefur meiri hl. nefndarinnar málfrelsi í þessu máli, og mér hefur ekki dottið annað í hug en að formaður hennar og aðrir nm. gætu fengið að túlka sín sjónarmið alveg óendanlega, enda hafa a.m.k. sumir þeirra verið ósparir á að láta skoðanir sínar í ljós yfirleitt. Og ég held að það verði ekkert lát á því.
En mér finnst ágætt að ekki hafa komið fram nein mótmæli, hvorki við þessa túlkun mína né önnur þau sjónarmið sem ég hef látið hér uppi.