18.12.1980
Neðri deild: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1707 í B-deild Alþingistíðinda. (1874)
131. mál, verðgildi íslensks gjaldmiðils
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég hef mikinn áhuga á að beina örstuttri fsp. til eins ágæts deildarbróður míns, hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar, 12. þm. Reykv. Hann er í húsinu. — Herra forseti. Ég þakka að hv. þm. skuli hafa orðið við beiðni minni. Það er örstutt fsp. sem ég beini til hans.
Í blaðaviðtali snemmsumars lét hv. þm. þau orð falla, að það væri óðs manns æði að framkvæma myntbreytingu nú um áramótin ef ekki hefðu áður verið gerðar ráðstafanir í efnahagsmálum sem ríkisstj. hafði þá víst í undirbúningi og segist hafa enn, til að treysta verðgildi hins nýja gjaldmiðils. Hv. þm. var spurður fyrir nokkrum dögum af sama fjölmiðli, hvort skoðun hans hefði nokkuð breyst á þessu máli, og hann kvað það ekki vera, m.ö.o. væri enn sín skoðun að það væri óðs manns æði að framkvæma slíka gjaldmiðilsbreytingu þar sem ekki hefði verið gripið til þeirra efnahagsráðstafana sem hv. þm. hafði áhuga á og taldi nauðsynlegt að gera áður en myntbreytingin yrði framkvæmd. Og ég er honum hjartanlega sammála um. Ég hefði, herra forseti, haft áhuga á að vita hver væri afstaða hv. þm. nú, þó svo það komi að sjálfsögðu fram í atkvgr. á eftir.