18.12.1980
Neðri deild: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)

176. mál, vörugjald

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Einhvern tíma hefði flokkur hæstv. fjmrh. tekið mark á mótmælum 400 félaga í einhverju mesta láglaunafélagi landsins við slíku frv. Hæstv. fjmrh. tekur ekkert mark á viðvörun þessa fólks og á beiðni þessa fólks. Það er athyglisvert fyrir þá iðnverkamenn og þær iðnverkakonur sem hafa kosið flokk hæstv. fjmrh. — Ég segi nei.