18.12.1980
Neðri deild: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1720 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)

176. mál, vörugjald

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það er eftirtektarvert að þm., sem er á móti frv. og lýsir því í ræðustól að hann sé andvígur því frv., bendir á hættuna sem það hefði í för með sér ef það væri samþykkt, bendir mjög réttilega á að fram undan blasi við uppsagnir í ákveðnum greinum og það í hans kjördæmi, skuli með hjásetu sinni koma frv. þessu áleiðis til 3. umr. Ef hann heldur áfram eins og hann gerði í atkvgr. við 2. umr. skil ég ekki hvers vegna hann er að snúa frá sálufélögum sínum, sem styðja þessa ríkisstj., með hjásetu. Af hverju lafði hann ekki með þeim? En það er vitað mál að hópur þm., sem enn þá styður þessa ríkisstj., greiðir hér atkv. á móti sannfæringu sinni.

Hæstv. fjmrh. sagði að þetta gjald hefði verið hækkað á viðreisnarárunum eða í byrjun viðreisnartímabilsins, en hann gat þess ekki, hver hafi verið þá fyrirrennari hans í fjmrh.-embætti. Það var núv. hæstv. forsrh. Gjald á negrakossa getur ekki hækkað á Íslandi nema hæstv. forsrh. sé í ríkisstj. Það virðist hafa legið annars á milli hluta. Þegar forsrh. var fjmrh. í byrjun viðreisnar hækkuðu negrakossarnir stórlega. Núna, þegar hann er í sátufélagi við hæstv. núv. fjmrh., Ragnar Arnalds, gengur þetta alveg á færibandi.

Það er undarlegt að leggja áherslu á að koma þessu frv. fram, sem hefur í för með sér vísitöluhækkun launa, hefur í för með sér stóraukin útgjöld líka úr ríkissjóði og eykur á verðbólguna í landinu. Þetta er verðbólguhvetjandi og verðbólguaukandi frv. Hvernig getur flokkur eins og Framsfl., sem enn þá segist vilja fara niðurtalningarleiðina, lagt fram og stutt frv. sem þetta? Það koma engin rök frá einum einasta framsóknarmanni, enda eru þeir allir horfnir úr salnum nema formaður fjh.- og viðskn. (ÓÞÞ: Þetta er ekki satt.) Ég var ekki alveg búinn, ef skrifari gæti þagað augnablik. Hann er þarna, skrifarinn. Hann situr líka í sínu sæti því að hann er að gegna skyldustörfum, enda er borðið alveg hlaðið skjölum, þó að þau séu öll í röð og reglu eins og allir sjá.

Framsfl. hefur enga skoðun í þessu máli. Hann talar um niðurtalningarleið, en styður og leggur fram frv. sem er verðbólguhvetjandi. Framsfl. hefur hvað eftir annað lýst því yfir að hann vilji halda uppi fullri atvinnu í þessu landi, koma í veg fyrir atvinnuleysi. Og hvað hefur Alþb. sagt á liðnum árum? Hefur það ekki sagt það sama? Er þetta það sem verið er að stefna að? (Gripið fram í: Þetta er alveg sama.) Nei, þetta er ekki gott. Það er nefnilega ekki gott, þetta frv. þm., sem var núna að gjamma fram í fyrir mér, væri nær að sýna sjálfstæði en vera undirlægja fjmrh. (Gripið fram í.) Hvað var hv. formaður fjh.- og viðskn. að segja? (Gripið fram í.) Ja, ég vona að fjmrh. gefi a.m.k. stuðningsmönnum þessa frv. meira en negrakossa. Ég vona að stuðningsmenn frv. fái einnig gúmmítöflurnar því að meðaltollurinn á hráefni í þær hækkar um 53%. Meðaltollur af hráefni í suðusúkkulaði er lægstur, 40.5%. Brjóstsykur fylltur fer í 78.3, en brjóstsykur ófylltur í 75.5%. Það hefði verið gaman að heyra skýringu fjmrh. á því, af hverju gúmmítöflurnar lenda þarna á milli og eru í svona miklu lægri flokki en bæði fylltur og ófylltur brjóstsykur.

En það er í reynd ekkert gamanmál að ríkisstj., sem segist vera að undirbúa aðgerðir í efnahagsmálum, aðgerðir til þess að vinna gegn vexti verðbólgunnar, gerir það eitt að leggja fram frv. sem eykur verðbólgubálið. Það er það eina sem kemur frá þessari ríkisstj. En hitt er enn þá alvarlegra, að eins og háttað er fyrir atvinnufyrirtækjum í þessu landi skuli ríkisstj. leika sér að því að stuðla að því, að fólki sé sagt upp störfum og það fólki sem hefur lægstar tekjurnar, eins og iðnverkafólkinu hérna í Reykjavík.

Ég kalla alveg sérstaka kjarkmenn þá þm. Reykjavíkur sem standa að þessu. Hitt ætti að vera ljóst öðrum þm., þó þeir séu misjafnlega glöggir, að þetta mál verður engum þeirra til framdráttar eða frama. Þetta frv. verður Alþingi til skammar og öllum þeim þm. sem standa að samþykkt þessa máls. Mér finnst alveg stórundarlegt, eins og ég sagði áðan, að 12. þm. Reykv., Guðmundur G. Þórarinsson, skuli koma hér í ræðustól og lýsa því yfir, að hann sé andstæðingur þessa frv., en með hjásetu sinni kemur hann frv. í gegn. Er eiginlega hægt að hugsa sér aumkunarverðari frammistöðu? Það er ágæt jólagjöf frá vinum alþýðunnar að samþykkja þetta frv. Það er mjög gott og hlýtur að vera þeim til mikillar gleði og ánægju sem fara að fá uppsagnir nú á næstu dögum, eins og hefur komið fram hjá vinnuveitendum sem óttast verulegan samdrátt í þessum iðnaði og þrátt fyrir aðvaranir Iðju, félags verksmiðjufólks, er haldið áfram. Nei, nú varðar menn ekkert um hvað verkamaðurinn eða iðnverkamaðurinn vill og hvað hann er að láta frá sér fara. Nú skiptir það engu máli.

Hæstv. fjmrh. stendur upp og segir: Svipað og við erum að gera núna gerðist þegar viðreisnin byrjaði. En mér fannst þessi hæstv. ráðh. — hann var að vísu mjög ungur þegar viðreisnin byrjaði — aldrei vera neitt hlynntur viðreisninni. Núna er hún orðin forskrift fyrir hann í starfi hans og lífsskoðunum. Þessi hæstv. ráðh. hefur talið sig vera sósíalista til skamms tíma, en er algerlega horfinn frá öllum sósíalisma núna, eins og menn heyra og sjá af þessu. (Gripið fram í.) Hún gerði svo margt gott að enn þá nýtur þessi hæstv. ráðh. viðreisnarinnar að mörgu leyti.

Við skulum ekki hafa um það fleiri orð, við getum haldið áfram þess vegna í nótt og ég get vel haldið áfram í nótt, en ég tel ekki ástæðu til þess að láta frv. sem þetta, svona vitlausa tekjuöflun, sem leiðir af sér vaxandi verðbólgu í þjóðfélaginu og verður þjóðarheildinni til bölvunar, fara hér í gegn, þó það sé liðið á nótt, eins og á færibandi. Það getur gengið að fiskurinn í frystihúsunum haldi sína leið á færibandinu þangað til komið er í pökkun og inn í frystinguna, en það er ástæðulaust að láta félagsmálapakka eins og þennan fara á færibandi. A.m.k. kæri ég mig ekki um að 3. umr. renni alveg orðalaust í gegn.

Ég hvet enn þá 12. þm. Reykv. til að styrkja hug sinn og hafa kjark til að greiða atkv. eins og samviska hans býður honum, en hann sagðist vera mótfallinn þessu frv. og það veltur á hans atkv. að fella þessa vitleysu.