28.10.1980
Sameinað þing: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (193)

348. mál, dvalarkostnaður aldraðra

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af þeim orðum sem féllu hjá hv. 1. landsk. þm.

Það, sem ég átti auðvitað fyrst og fremst við þegar ég var að tala um bætta möguleika til yfirstjórnar á þessum málum, var að hægt væri að taka þar sæmilega rökrænar ákvarðanir og að öll gögn og upplýsingar um rekstur þessara stofnana lægju sem skýrast fyrir stjórnvöldum. Ég held að út af fyrir sig stafi tafir, sem oft hafa orðið í daggjaldaákvörðunum og hafa komið ýmsum stofnunum mjög illa, beinlínis af því að upplýsingaflæði innan heilbrigðiskerfisins er ekki nægilega gott eins og það hefur verið. Ég vildi segja þetta til að undirstrika það þannig að fyrir lægi að ekki væri um neinn misskilning að ræða í þessum efnum.

Í framhaldi af þessari umr. þakka ég hv, þm. fyrir fsp. og vil segja það, að merkilegt er að hugsa til þess, miðað við þá miklu fjármuni og þá miklu þýðingu sem heilbrigðisþjónustan í landinu hefur fyrir líf okkar allra, hvað það er sárasjaldan um þessi mál rætt á hv. Alþingi. Það er einstaka sinnum sem koma fram fsp. varðandi einstaka þætti í rekstri stofnana. Stundum koma fram hugmyndir varðandi afgreiðslu fjárl. um byggingu einstakra heilsugæslustöðva, en heildarumr. um stefnumótun í heilbrigðismálum fer yfirleitt ekki fram hér. Ég held að við þurfum að ráða bót á þessu, vegna þess að heilbrigðismálin eru orðin það stór þáttur í okkar þjóðfélagi. Við erum með fremstu þjóðum í heimi í útgjöldum til heilbrigðismála sem hlutfalli af þjóðarframleiðslu og einnig í þeirri þjónustu sem við veitum okkar fólki.

Það sést bæði á aldurstölum og ekki síður á því, hvernig tölur líta út að því er varðar ungbarnadauða hér á landi og annars staðar í heiminum. Þessi mál eru yfirleitt aldrei rædd, t.d. af stjórnmálamönnum fyrir kosningar, svo að ég nefni dæmi.

Ég fór í það núna fyrir nokkrum mánuðum að fara í gegnum texta stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka frá því fyrir síðustu alþingiskosningar, ef það mætti verða vegvísir að einhverjum tilteknum atriðum í heilbrigðismálum og mótun heilbrigðisstefnu. Ég fann ekki neitt, nema einstaka þm. — úti á landi auðvitað — lét eitt og eitt orð frá sér fara um að það væri nauðsynlegt að byggja heilsugæslustöð í Ólafsvík eða á einhverjum slíkum góðum stöðum. En það var furðulega lítið um að menn tækju á þessu eitthvað heildstætt, miðað við hvað þetta er orðinn þýðingarmikill þáttur í okkar þjóðlífi og að núna vinna í heilbrigðisþjónustunni um 7000 manns eða álíka fjöldi og er hér í stærstu verkalýðsfélögum.

Ég endurtek þakkir mínar til hv. þm. fyrir að koma þessum málum til umr. Þau mættu gjarnan vera hér til umr. miklu oftar.