19.12.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (1944)
178. mál, frestun á fundum Alþingis
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Mér finnst forsrh. vera að byrja að fá kímnigáfuna aftur þegar hann talar hér, en á hinn bóginn held ég að hann sé ekki læs, hæstv. forsrh. Enn einu sinni kemur hann hingað upp og talar um að ríkisstj. muni ekki afsala sér rétti. Hann sagði orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Vitaskuld mun ríkisstj. ekki afsala sér neinu valdi.“ Þetta sagði hæstv. forsrh. Hvað felst nú í þessum orðum? Hann er að segja við Alþingi Íslendinga að ríkisstj. muni ekki afsala sér löggjafarvaldinu til Alþingis. Það er það sem hæstv. forsrh. er að segja, tvívegis prófessor í stjórnskipun Íslands, maður sem búinn er að vera í stjórnarskrárnefnd jafnlengi og á grönum má sjá, og eru nú áhöld um að hann komi álitinu endanlega frá sér fyrir aldamót og er kannske að velta fyrir sér enn í dag hver sé í raun og veru réttur Alþingis og hver sé réttur ríkisstjórna til þess að fara með löggjafarvaldið. Hæstv. forsrh. er hér að leggja fram tillögu um það, að Alþingi afsali sér valdi sínu til ríkisstj. Þessu snýr hæstv. forsrh. við. (Forsrh.: Hefur hv. þm. lesið stjórnarskrána?) Ég hef lesið stjórnarskrána, það hef ég gert, og það stendur hvergi í stjórnarskránni, að löggjafarvaldið sé í höndum ríkisstj., heldur Alþingis meðan Alþingi situr. Það hélt ég að hæstv. forsrh. vissi, og ég get vel haldið áfram að tala við hann um stjórnarskrána ef hann vill.
Við getum t.d. minnst á þetta litla atriði í ríkisstj. hans nú í sumar. Hans hæstvirti landbrh. setti lög um 200% fóðurbætisskatt, jafnvel þótt fyrir lægi að fyrir því væri ekki þingvilji. Og ég fer áreiðanlega rétt með það, að hæstv. forsrh. hefur sagt það, bæði í kennslustundum í Háskólanum og einnig hér á Alþingi, að sú venja hefði fyrir löngu skapast, að ríkisstj. settu ekki brbl. nema þær hefðu áður fullvissað sig um að vilji væri á Alþingi fyrir þeirri lagasetningu. Það var ekki meiri hl. fyrir setningu brbl. um fóðurbætisskattinn í sumar. Það liggja fyrir yfirlýsingar frá það mörgum þm., að ljóst er að frá öndverðu var þarna brotið það grundvallaratriði í fyrsta lagi, að brýna nauðsyn bæri til þessarar lagasetningar, og í öðru lagi, að viðkomandi ráðh. og ríkisstj. hefði fullvissað sig um að þingmeirihluti væri fyrir þessari löggjöf. Það liggur alveg á borðinu og um það þarf hæstv. forsrh. ekki að fara í neinar grafgötur. Við höfum líka ýmsir hlustað á hann fjalla um þessi mál og verið námfúsir stundum.
En kjarni málsins er þessi, að vitaskuld er ég andvígur því, að Alþingi afsali sér valdi sínu til ríkisstj., lagasetningar- og löggjafarvaldinu, og ég minni á það, að fyrir einu ári stóð svo á eins og núna, að verðbólgan óð uppi í landinu, ekki var samstaða um neinar aðgerðir til að hamla á móti henni eins og núna, og þá þótti eðlilegt að þing kæmi saman þegar að loknum áramótum til að fjalla um þessi mál.
Það var eftirtektarvert, þegar hæstv. forsrh. sagði að um vexti og verðtryggingu yrði farið að lögum nú eins og endranær. Hvað þýddi þetta? Þýddi þetta það, að hæstv. forsrh. væri að boða brbl. um þessi mál? Eða þýddi þetta það, að óbreytt lagaákvæði verði um vexti og verðtryggingu þangað til þing kemur aftur saman? Hvort þýddi þetta, hæstv. forsrh.? Telur hæstv. forsrh. koma til greina að breyta ákvæðum laga um vexti á meðan Alþingi er í jólaleyfi? Það er einfalt að svara þessu með jái eða neii. Er hæstv. forsrh. að fara fram á það, að Alþingi afsali sér sínu valdi til ríkisstj. til þess að hafa síðasta orðið um íslenska vaxtapólitík, til þess að hann geti, án þess að það mál fari í gegnum Alþingi, valsað með þessa hluti? Af hverju svarar ekki hæstv. forsrh.? Er hann „stum“? Því getur hann ekki — (Gripið fram í: Hv. þm. hefur orðið.) Ja, hann hefur orðið núna, en hæstv. forsrh. hefur stundum getað sagt já eða nei. Þetta er bein spurning. Hefur hæstv. ráðh. í hyggju, eftir að þing er farið heim, að breyta ákvæðum núgildandi laga um vaxtamál? (Gripið fram í: Bjóstu við svari?) Ég hélt kannske að hann mundi fara að tala um hvað væri langt til Snæfellsjökuls, ef maður sæti uppi á Hótel Sögu.
Nei, ég veit raunar ekki um hvað helst skuli ræða við hæstv. forsrh. eða um hvað helst skuli spyrja hann. Sú var tíð, að það var gefin út hvít bók, Viðreisn, og þá var myndarlega staðið að ýmsum málum. Þá voru ýmsir menn sem héldu í höndina á þessum hæstv. ráðh., og þá var ýmsu góðu komið til verks og leiðar. Þá var líka talað saman í fullri hreinskilni, það var ekki farið bakdyramegin. Ég held að ég geti rifjað það upp, að sá maður, sem þá sat í stól forsrh., hafði fulla einurð til þess að tala frá hjartanu um þjóðmálin eins og þau lágu fyrir.
Núna eru málin, sem spurt er um, afskaplega einföld í sniðum. Það er aðeins verið að spyrja um það, sem við eigum kröfu á að vita áður en jólahátíðin er haldin: Liggur það á borðinu núna, hefur ríkisstj. ákveðið það, að út verði gefin brbl. sem snerta efnahagsmálin? Um þetta fæst ekki svar. Það er vitnað í stjórnarsáttmálann, það er talað um hvað sagt hafi verið í stefnuræðunni. Ætli það sé ekki hægt að vitna í hana um næstum því hvað sem er? Ég hugsa að það sé svo afsleppt orðalagið þar að hægt sé að vitna til þeirrar ræðu næstum því hvernig sem málin standa þegar um aðgerðaleysi er að tefla eins og núna. En ef á að spyrja eða tala um eitthvað ákveðið, þá koma engin svör. Það koma ekki einu sinni svör við því sem nauðsynlegt er að fá að vita áður en fjárlög eru afgreidd: Hvernig hefur ríkisstj. fundið það út, að verðbólgan verði ekki nema 42% á næsta ári?
Hæstv. forsrh. var afskaplega skemmtilegur — og það er út af fyrir sig góður háttur og góður siður, þegar mönnum dettur eitthvað fyndið í hug, að halda blaðamannafund af því tilefni — þegar hann gaf út fréttatilkynninguna um það, að sterk og örugg stjórn hans á efnahagsmálunum hefði valdið því, að verðbólgan væri komin ofan í 51%. Jafnvel þótt reiknuð sé hækkun framfærsluvísitölunnar frá 1. nóv. 1979 til 1. nóv. 1980, þá er hækkunin 51%. Hún var eitthvað minni fram til 1. febr., en hæstv. forsrh. hafði ekki fyrr sest í stólinn en hún tók mikinn sprett, fjörkipp og hefur nú í stórum dráttum verið vaxandi síðan, nema hvað einstaka sinnum hefur tekist að koma henni örlítið, ofboðlítið niður með auknum niðurgreiðslum. Og af því að forsrh. gaf út þessa fréttatilkynningu um hækkun framfærsluvísitölunnar 1. nóv. langar mig til að spyrja hann hvort þess sé að vænta, að hann gefi út sérstaka fréttatilkynningu um það, hvernig verðbólgan kemur við vísitölu byggingarkostnaðar sem út verður gefin núna 1. jan. Megum við eiga von á því, að hæstv. forsrh, segi af því tilefni að hækkun byggingarvísitölunnar síðustu þrjá mánuðina gefi sérstaka og nákvæma lýsingu á þeim verðbólguvexti sem er í landinu, gefi mynd af ástandinu eins og það hefur verið síðustu vikurnar — ætli það — gefi blaðamönnum jólaköku og kaffi í bakherberginu til þess að fagna því, hvað byggingarvísitalan sýni fram á að byggingarkostnaðurinn hefur lækkað mikið núna 1. jan. vegna aðgerða ríkisstj. til þess að koma verðbólgunni niður í samræmi við þá niðurtalningu sem ég man að hæstv. forsrh. var afskaplega reiður Lárusi Jónssyni, hv. 3. þm. Norðurl. e., fyrir að efast um að forsrh. færi rétt með í maímánuði? Fróðlegt verður að sjá það.
En ég held að menn geti ekki orðið hissa á því, þótt þm. séu tregir til að taka því þegjandi ef til stendur nú að fresta þinghaldinu með þeim hætti, að ríkisstj. eigi ein að valsa um án alls aðhalds og eftirlits næstu vikurnar. Hvernig hefur ríkisstj. staðið sig það sem af er þessu ári? Eigum við að líta t.d. á atvinnumálin. Við munum eftir ákveðnum aðgerðum sem nauðsynlegt var talið að gera í sambandi við Flugleiðir. Og við munum eftir því, að ráðherrar gáfu þar ýmsar yfirlýsingar út og suður. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, 11. þm. Reykv., lýsti yfir í sjónvarpi að fyrir lægju nýjar upplýsingar sem sönnuðu það, að þetta félag ætti ekki nægilegar eignir til að standa undir þeim ríkisábyrgðum og lántökum sem beðið var um, og ríkisstj. hæstv, dr. Gunnars Thoroddsens gerði allt sem í hennar valdi stóð til þess að spilla fyrir því sem kallað hefur verið „goodwill“ þessa fyrirtækis bæði hér heima og erlendis. Allur þessi málarekstur stórskaðaði Flugleiðir og hefur m.a. komið fram í því, að stórlega hefur dregið úr því að menn ferðist með þessu fyrirtæki. Ég hygg að menn séu sammála um það, að ef þess hefði verið nokkur kostur að koma félaginu á kné, þá hafi ríkisstj. tekist það á s.l. hausti og eins og þessi mál veltust hér í þinginu fram eftir vetri. Og eins og endranær voru ýmsar yfirlýsingar gefnar út og suður af einstökum ráðherrum. Yfir þessum mönnum öllum saman, á toppnum, sat svo þessi maður, sem nú vefur tungu um höfuð sér, þegar hann er spurður um ákveðna hluti, og þóttist verá sá mikli og stóri stjórnmálamaður sem alla tauma hefði í sinni hendi.
Ég hygg samt að ekki þurfi langt að leita til annarra manna, sem setið hafa í sæti forsrh., til að vita að sumir þeirra a.m.k. hefðu verið búnir að taka þetta mál úr höndum þeirra ráðherra sem voru að spilla málinu, spilla fyrir hagsmunum Íslendinga og valda okkur óbætanlegu t jóni, sem ekki er enn séð fyrir endann á, af því að þar var frestunar á fundum Alþingis. 1760 við menn að eiga sem þorðu og vildu taka á málunum og voru ekki hræddir þótt á þeim dyndu högg, ef þeir kæmu einhverju í verk. Það var sagt um einn af fimm ráðherrum í viðreisnarstjórninni, að allar hans ákvarðanir hefðu ekki verið réttar, en hins vegar hefði hann verið fljótur að taka ákvarðanir og þess vegna hafi hann reynst ótrúlega vel í sínum störfum og miklu betur en kannske allir aðrir menn sem gegndu sama ráðherraembætti og hann. Það var þessi röggsemi og dugnaður sem þarna skar úr, þor hans og þrek til þess að taka ákvarðanir á viðkvæmum stundum.
Ef við tökum annað mál núna, þá er það álverksmiðjan í Straumsvík. Það hefðu einhvern tíma þótt tíðindi — það er kannske ekki skoðun ríkisstj. — en það hefðu einhvern tíma þótt tíðindi ef menn hefðu fundið það út, að ódýrasta leiðin til að fá rafmagn til heimilisnotkunar hér á landi væri að loka áburðarverksmiðjunni eða sementsverksmiðjunni. Auðvitað er það jafnfráleitt þegar hæstv. iðnrh. talar um að ódýrasta leiðin til að fá raforku sé að loka álverinu. Það kemur náttúrlega ekki þessum málum við, en maður getur rifjað upp og það var út af fyrir sig gaman að því, að þegar hæstv. forsrh. — sem þá var iðnrh. — gerði ferð sína norður til Akureyrar til að opna fyrir byggðalínuna, sem átti að veita okkur birtu og yl fyrir norðan, og þegar hann kveikti á rofanum, þá sló vísirinn yfir um þannig að rafmagnið fór að norðan í stað þess að koma þangað. En það er annað mál og ekki ástæða til að kenna hæstv. þáv. iðnrh. um það.
Hitt held ég að sé alveg rétt, að mörgum þótti afskaplega undarlegt hvernig staðið var að þeirri fréttatilkynningu sem hæstv. iðnrh. gaf úr varðandi álverið. Skömmu áður en þetta var höfðum við í allshn. Sþ. beðið um upplýsingar um það hjá iðnrn., hvernig stóriðjumálin stæðu og þær athuganir sem verið væri að gera um þau á vegum iðnrn. Í kjölfar þess lagði ég fram afskaplega ítarlega fsp. hér í Alþingi og bað um skriflegt svar sem enn hefur ekki borist, þótt mér hafi að vísu verið lofað að svarinu yrði útbýtt fyrir jólin. Sá maður sem varð fyrir svörum í allshn. minntist ekki einu einasta orði á að eitthvað sérstakt væri á seyði í sambandi við álverið, enda var hugmyndin ekki sú hjá hæstv. iðnrh. að reyna að vinna að þessu máli á málefnalegum grundvelli og með hagsmuni Íslendinga fyrir augum. Ef sú hefði verið raunin hefði hann að sjálfsögðu byrjað á því að kalla fyrir sig iðnaðarnefndir þingsins og tekið málið þar upp og leyft alþm. að fylgjast með. Og það hefðu í rauninni allir þingræðissinnaðir menn viljað gera. Þeir hefðu auðvitað viljað gera það. En tilgangur þessa hæstv. ráðh. var ekki þessi, heldur langaði hann til að slá keilur og þess vegna byrjaði hann á því að halda blaðamannafund, alveg eins og Ólafur Ragnar Grímsson hafði áður gert í sambandi við Flugleiðamálið. Nú veit ég ekki hvernig þessu máli er varið, fram yfir það sem ég hef séð í blöðum og álitgerð sem ég hef að vísu fengið senda, en í þessu sambandi rifjast upp fyrir mönnum hverjir það eru sem s.l. tíu ár hafa farið með embætti iðnrh. Það er Magnús Kjartansson fyrrv. ritstjóri Þjóðviljans, síðan Gunnar Thoroddsen í fjögur ár og svo núna Hjörleifur Guttormsson. Það er því alveg ljóst hvaða menn bera á því höfuðábyrgð ef ekki hefur verið um nægilegt eftirlit og aðhald að ræða af Íslands hálfu í sambandi við álverið. Og það hlýtur náttúrlega að koma til skoðunar síðar hvernig þau mál eru vaxin. Á hinn bóginn er það líka ljóst, að ef þetta upphlaup iðnrh. er ekki á rökum reist, ef þarna er einungis verið að slá pólitískar keilur með sama hætti og gert var í sambandi við Flugleiðamálið, þá bera tveir þessara manna á því fulla ábyrgð. Og þá verður einnig að spyrja þá út úr, hvernig á þessu standi. Málið er því í rauninni hálfsnúið. En það sýnir okkur með öðru hver nauðsyn er á því, að Alþingi sitji, hver nauðsyn er á því, að ráðherrar og ríkisstjórnin hafi aðhald, sýnir að þeim er alls ekki treystandi til þess að fara með löggjafarvaldið í rúman mánuð, eins og farið er fram á með þeirri till. til þál. sem hér liggur fyrir.
Hæstv. forsrh. hafði á því orð, að auðvitað yrði staðið við lög landsins, lög um stjórn efnahagsmála o.fl. Í 1. gr. þessara laga segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Meginmarkmið stefnunnar í efnahagsmálum eru að tryggja næga og stöðuga atvinnu, að halda verðhækkunum í skefjum, að stuðla að jafnvægi í viðskiptum við önnur lönd og greiða fyrir félagslegum og efnahagslegum framförum og bættum lífskjörum alls almennings.
Ráðstafanir stjórnvalda í efnahagsmálum og fjármálum skulu jafnan við það miðaðar, að stefnt sé að framangreindum markmiðum á þann hátt, að þeirra á milli sé hæfilegt jafnvægi og fjárhagslegu öryggi þjóðarinnar sé ekki teflt í tvísýnu.“
Í 2. gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Fyrir hvert reglulegt Alþingi skal, þegar það er saman komið, leggja til kynningar skýrslu um þjóðhagsáætlun fyrir það ár sem í hönd fer. Í skýrslunni skal gerð grein fyrir framvindu mikilvægustu þjóðhagsstærða á því ári, sem er að líða, og horfum á hina næsta. Þá skal í skýrslunni greina frá þeim markmiðum, sem ríkisstj. setur sér um hagþróun á næsta ári, og helstu efnahagsráðstöfunum, sem hún hyggst beita til þess að þau náist.
Skýrslan um þjóðhagsáætlun skal lögð fram svo tímanlega, að umræður um hana geti farið fram á sama tíma og um stefnuræðu forsrh., sbr. 2. málsgr. 52. gr. laga nr. 115 19. nóv. 1936 um þingsköp Alþingis, sbr. lög nr. 54 29. maí 1972, um breyting á þeim lögum.“
Menn hafa náttúrlega oft hent að því gaman, hversu tilgangslaust sé fyrir löggjafann að vera með almennar viljayfirlýsingar í lögum. Þó að sagt sé í 1. gr. þessara laga, að markmið í efnahagsmalum skuli vera að tryggja næga og stöðuga atvinnu, að halda verðhækkunum í skefjum o.s.frv., þá hefur þetta reynst næsta haldlítið í raun. Vitaskuld hafa þær ríkisstj. sem síðan hafa setið, allar lýst yfir að þetta séu þeirra markmið. En þeim hafa verið mislagðar hendur. Þess vegna er afskaplega litið hald í lagayfirlýsingum af þessu lagi. Þetta er einhvers konar skraut, rós í hnappagatið eða eitthvað því um líkt. — En það er 2. gr. þessara laga hins vegar sem máli skiptir. Þar stendur skýrum stöfum að í skýrslu, sem lögð skuli fyrir hvert reglulegt Alþingi þegar það er komið saman, skuli greina frá þeim markmiðum, sem ríkisstj. setur sér um hagþróun á næsta ári, og helstu efnahagsráðstöfunum sem hún hyggst beita til þess að þau náist. Þetta stendur í 2. gr. Ólafslaga.
Þegar forsrh. hefur nú beðið okkur um að afsala okkur löggjafarvaldinu í einhverjar vikur, þá erum við að biðja hann um að skýra okkur frá þeim efnahagsráðstöfunum sem hann ætlar að grípa til nú í jólaleyfinu, — efnahagsráðstöfunum sem skýr lagamæli eru fyrir að hann ætti að vera búinn að gera fyrir rúmum tveim mánuðum. Hann segist vilja halda lög, talar um að auðvitað verði staðið við lög um vexti og verðtryggingu eins og um önnur mál. Hann fer samt sem áður fram á það, að Alþingi afsali sér löggjafarvaldinu, án þess að fullnægja þessum einfalda og skýra og afdráttarlausa lagabókstaf. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að hafa hann yfir aftur:
„Þá skal í skýrslunni greina frá þeim markmiðum, sem ríkisstj. setur sér um hagþróun á næsta ári, og helstu efnahagsráðstöfunum sem hún hyggst beita til þess að þau náist.“
Nú væri náttúrlega möguleiki fyrir hæstv. forsrh. að setja upp þykkjusvipinn og segja: Um hvað ertu að tala? Liggja ekki fyrir skýrslur um það frá Seðlabanka og Þjóðhagsstofnun, að verðbólgan verði 42% eins og við höfum gert að okkar markmiði í fjárlögum? Þið eigið að afgreiða fjárlögin í dag eða á morgun og þarna hafið þið það. Um hvað eruð þið eiginlega að deila? Þetta getur hæstv. forsrh. kannske sagt. En á þessu er bara einn hængur. Hvorki Seðlabankinn né Þjóðhagsstofnun hefur spáð því, að verðbólgan verði 42% á næsta ári. Það er hvergi stoð fyrir þeirri tölu, hvergi nokkurs staðar. Það er hvergi hægt að finna einn einasta hagfræðimenntaðan mann í öllu landinu sem léti hafa það eftir sér, að verðbólgan yrði á næsta ári eitthvað í líkingu við það sem hæstv. ríkisstj. leggur á borð fyrir okkur alþm. — engan, ekki einn einasta mann hagfræðimenntaðan. Og þá er aftur spurningin: Hvað ætlar ríkisstj. að gera til þess að koma verðbólgunni niður í 42%, eins og hún er að fara fram á við okkur að við gleypum eins og döðlu eða möndlu?
Ég býst við að enginn geti neitað því, að þessi einfalda beiðni er ekki nema sanngjörn og lítillát, eðlileg, að hæstv. forsrh. verði við þeirri bón, áður en umræður um þingfrestunina lýkur, að gera okkur grein fyrir þessum efnahagsráðstöfunum, sem hann átti að vera búinn að gera okkur grein fyrir fyrir 70 dögum, og skýra okkur frá því, hvað hann ætli að gera til þess að markmiðið um 42% verðbólgu á næsta ári standist, í stað þess að verðbólgan verði 70% eða 80% eins og spáð er og stefnt er að. Ég þori ekki að fara með það, hvað verðbólgan muni vera nákvæmlega á þessu augnabliki núna, mér er nær að halda að hún sé einhvers staðar á milli 60% og 70%, og ég held að það liggi fyrir að verðhækkanir hafa orðið á síðustu vikum sem valda því, að kaupgjaldsvísitalan mun ekki hækka minna en 12%–13% hinn 1. mars n.k.
Í sambandi við þann kafla Ólafslaga sem veit að samráði stjórnvalda við samtök launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda, er margt hægt að segja. Það er nýbúið að setja lög um sérstakt vörugjald á sælgæti, öl og gosdrykki, sem var hér til umr. í gær. Það frv. var lögfest vegna þess að einn hv. þm., Guðmundur G. Þórarinsson, 12. þm. Reykv., kaus að greiða ekki atkv. í samræmi við þær skoðanir sem hann lét uppi hér í þingsalnum, og annar þingmaður, Guðmundur J. Guðmundsson, var fjarverandi, en varamaður í hans stað til þess að unnt væri að koma fjárlögunum fram og þeim efnahagsráðstöfunum öðrum og skattahækkunum sem ríkisstj. hefur nú lagt fram. Ég þori á hinn bóginn að fullyrða það, að ef Guðmundur J. Guðmundsson hefði setið á Alþingi núna hefði frv. um vörugjald á sælgæti, öl og gosdrykki aldrei verið samþykkt. (Gripið fram í: Er það ekki of mikil bjartsýni?) Á meðan annað sannast ekki leyfi ég mér að fullyrða það.
Það er ekkert undarlegt þótt formaður Verkamannasambands Íslands fari eftir leiðbeiningu sem studd er undirskriftalistum með nöfnum rúmlega 400 iðnaðarmanna og kvenna. Það er ekki oft sem svo margt láglaunafólk hefur framtak í sér til að reyna að hafa áhrif á störf löggjafans. Það er ekki oft, og maður gæti ætlað að þegar það gerðist mundi sú ríkisstj., sem hefur lýst yfir að hún vilji sérstaklega hafa samstarf og samvinnu við launafólk, sjómenn, bændur og atvinnurekendur, a.m.k. taka sér vikufrest eða svo áður en hún hundsaði beiðni alls þessa fólks. En það var síður en svo. Það var rétt eins og fluga hefði sest á kýrhala. Þetta hafði ekki hin minnstu áhrif á ríkisstj., ekki nokkur, og málið var þvingað hér fram í gær á næturfundi frekar en ekki. Þokkaleg jólagjöf sem þessu fólki er gefin, sem fyrr á þessu ári hefur orðið að búa við meira öryggisleysi í atvinnumálum en flestir aðrir þegnar þjóðfélagsins. Atvinna þessa fólks hefur dregist verulega saman og raunar allt í óvissu um hver framtíð þessa iðnaðar verður. Það segir í rauninni langa sögu um ástandið í sælgætisiðnaðinum, svo að ég taki dæmi, að nú fyrir jólin voru a.m.k. sumar sælgætisverksmiðjurnar með framleiðslu langt undir því sem venjulegt er og þorðu ekki að treysta á jólamarkaðinn vegna þess gífurlega framboðs sem hér er af erlendu sælgæti. Þetta hefur nú komið fram í því, að birgðir allar eru uppurnar og raunar sælgætisskortur í ýmsum af þessum verksmiðjum. Þannig eru sveiflurnar orðnar á þessum markaði. Núna er þetta vörugjald lagt á, og það eykur enn óvissuna og tefur fyrir því, að hægt sé að átta sig á því, hver framtíðargrundvöllur þessa rekstrar verður, sem er mjög bagalegt, líka þegar það er haft í huga, sem hæstv. iðnrh. hefur boðað, að sú tollvernd, sem sælgætisiðnaðurinn nýtur síðan í sumar eða haust, mun ekki vara nema skamma hríð. Þá kemur aftur til hinnar taumlausu samkeppni, og eins og oft vill verða láta efndirnar standa á sér, þótt mörg fyrirheit séu gefin um það af opinberum aðilum, að alls konar fyrirgreiðslu eigi að veita þessum iðnaði, það eigi að styðja að endurskipulagningu hans og þar fram eftir götunum.
Hæstv. forsrh. varð ekki við beiðni þessa fólks, þessara 400 karla og kvenna, þessa láglaunafólks sem þótti atvinnu sinni stefnt í tvísýnu. Hann kaus að fylgja ekki leiðbeiningu frá þessu fólki. Örlög þessarar bænaskrár urðu þau sömu og margra annarra bænaskráa sem á sínum tíma voru sendar — að vísu þá yfir hafið til þeirrar valdstjórnar sem sat í Kaupmannahöfn — að það var lítið með hana gert. Skattaálögurnar eru komnar og öryggisleysið hjá þessu fólki vex að sama skapi og skattarnir hafa hækkað. Þannig er nú á þessum málum haldið. Hins vegar er því flaggað við blaðamenn og yfir kaffibolla og jólaköku með verkalýðsleiðtogum, að við þá skuli hafa fullt samráð. En aldrei kemur það fram í raun, enda hefur ekki staðið til að gera það.
Nú kynni einhver von að vera til þess, að a.m.k. stjórn Verkamannasambandsins hafi einhvern grun um hvað til standi eftir að Guðmundur J. kemur heim, og að því leyti sé því fullnægt að a.m.k. einhverjir menn í verkalýðshreyfingunni fái að fylgjast með þeim efnahagsráðstöfunum sem á að gera núna í jólaleyfinu, þótt ég efist um að hv. 6. landsk. þm., Karvel Pálmason, eða varaformaður Verkamannasambandsins, hv. 3. landsk. þm., Karl Steinar Guðnason, fái nokkuð um það að vita.
En þá komum við að öðru atriði sem snýr beint að því máli sem hæstv. forsrh. hefur borið fyrir brjósti sérstaklega umfram aðra menn, að stjórnarskráin sé haldin í heiðri og eftir henni farið, ekki aðeins bókstafnum í þröngum skilningi, heldur líka andanum í stjórnarskránni. Og það er þetta: Hver á að vera hlutur Alþingis í þeirri lagasetningu sem kannske skiptir sköpum um þróun efnahagsmála og mannlífs og þjóðlífs hér yfirleitt á næstu árum? Á Alþingi að fá að fylgjast með þeim ráðstöfunum sem nú á að gera í efnahagsmálum og eiga að vera grundvöllur þess, að myntbreytingin geti átt sér stað, þannig að fólk hafi trú á því, að þar sé um eitthvað varanlegt að ræða? Við erum sem sagt að tala um það, að nú liggi fyrir að Alþingi setji um efnahagsmálin löggjöf sem er kannske örlagaríkasta löggjöf sem sett hefur verið á þessum áratug, þessum verðbólguáratug. Hvernig verður að myntbreytingunni staðið, og hver verða vinnubrögðin í sambandi við þær efnahagsráðstafanir sem gera á um leið og myntbreytingin fer fram?
Hæstv. forsrh. getur náttúrlega lýst því yfir, að Alþingi sé orðið úrelt stofnun. Það sé tilgangslaust og raunar út í hött að láta það fylgjast með hinum mikilsverðustu málum. Vitaskuld eigi ríkisstj. að koma sér saman um það úti í sínu horni, hvaða breytingar verði gerðar á þeirri löggjöf sem snertir efnahagsmálin, og svo eigi Alþingi eftir á að standa frammi fyrir gerðum hlut og ekki hafa neitt um það að segja hvernig að þessum málum verður staðið. Þau orð, sem hæstv. forsrh. viðhafði hér áðan í sambandi við vaxta- og verðtryggingarmálin, voru raunar af þessu tagi. Hann talaði um að lögin yrðu ekki brotin. En hann minntist ekki einu einasta orði á það, hvort hann ætlaði að breyta lögunum.
Ef alþm. spyr hæstv. forsrh. nú um það, hvort hann ætli sér að halda lögin meðan hlé er gert á störfum þingsins vegna jólahaldsins í landinu, þá er þingmaðurinn auðvitað að leggja þessa spurningu fyrir hæstv. forsrh.: Hefur forsrh. í hyggju að halda þau lög sem sett hafa verið á Alþingi? Löggjafarvaldið er í höndum Alþingis, og ef alþm. spyr hvort ráðh. ætli sér að halda lög, þá er hann að spyrja forsrh. hvort hann ætli að halda þau lög sem sett hafa verið og gilda í landinu á þeim tíma sem spurningin er borin fram. Hann er ekki að spyrja hvort hæstv. forsrh. ætli að nota jólaleyfið til þess að breyta vaxtalöggjöfinni. En hæstv. forsrh. gat alls ekki fengið sig til þess að segja: Vitaskuld verða þessi lög haldin, vitaskuld koma þær vaxtabreytingar til framkvæmda sem lög kveða á um. Hann gat ekki fengið sig til að segja það skýrt og skorinort eins og um var beðið. Og það er vegna þess að með árunum hefur hæstv. forsrh. ekki veri sami þingræðissinninn og hann var áður. Hann hefur ekki í sínu brjósti og hjarta sömu löngunina til þess að virða hinar þingræðislegu hefðir og hann hafði sem ungur maður. Þess vegna er það sem hann segir núna og þráir það heitast af öllu að geta komið þinginu heim, sent það heim til þess að hann geti valsað með löggjafarvaldið í samvinnu við kommúnista. Að þeim hallar hann sér núna, eins og við höfum orðið varir við sem höfum rætt við framsóknarmenn, að það er síður en svo að Framsfl. geti vænst þess innan ríkisstj., þegar verið er að ræða þau markmið og leiðir sem fram undan séu, að hæstv. forsrh. veiti þeim stuðning, heldur hefur hann nú fundið sér nýja sálufélaga — (ÓRG: Hvaða framsóknarþingmenn?) Ég veit ekki hvort hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur að öllu gleymt sínu framsóknaruppeldi. A.m.k. finnst mér stundum pokahátturinn slíkur að það örli á framsóknarmennskunni í honum, sérstaklega þegar hann opnar munninn.
Já, ég var að segja að hæstv. forsrh. hefði fundið sér nýja félaga. Og þeir eru að sjálfsögðu úr hópi þess arms ríkisstj. sem hæst talaði um það og mest hafði við orð, meðan Gunnar sjálfur var þó ráðh. í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, að Alþingi götunnar ætti að taka völdin hér á landi. Þeir menn, sem hann á nú helst samleið með í þjóðmálum Íslands, eru sömu mennirnir og brutu niður brbl. hans forðum varðandi starfsfólk í ríkisverksmiðjum. (ÓRG: Getur þm. upplýst hver skrifaði greinina „Sögulegar uppsagnir“ í Morgunblaðið?) Ég get nú ekki upplýst það, nei, en það var ekki ég. (ÓRG: Nei, það var Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi yfirmaður þingmannsins, þegar hann var blaðamaður á Morgunblaðinu, og mun hafa verið það um þessar mundir.)
Þeir menn, sem brutu niður brbl. hæstv. forsrh. á sínum tíma varðandi starfsfólk í ríkisverksmiðjum, eru nú orðnir hans helstu sálufélagar. Ég vil nú ekki taka mér í munn þau orð, að þangað leiti-eitthvert dýr var það nú — sem hann er kvaldastur. Ég vil ekki taka mér í munn þau orð. En sárþreyttur er hæstv. forsrh. orðinn á þingræðinu og á erfitt með að hugsa sér að þær nefndir, sem þó eru kjörnar hér til þess að fara yfir frv. og annað það sem snertir efnahagsmál þjóðarinnar, fái að fjalla um þessar ráðstafanir fyrr en eftir á. A.m.k. er svo að skilja á þessum hæstv. ráðh. — eins og málflutningur hans hefur verið og þó sérstaklega setning sem hann hefur sagt margsinnis, ég skal ekki segja í hvert einasta skipti sem hann tekur til máls, en upp undir það — að ríkisstj. vilji ekki afsala sér því valdi sem hún hefur, löggjafarvaldinu, til Alþingis. Hún vill ekki afsala sér löggjafarvaldinu til Alþingis á meðan Alþingi situr. Þetta er nú heldur betur flókið og raunar full þörf á því, að hann reyni að færa einhver haldbetri rök fyrir þessum málum.
Hitt má raunar segja, að það er kannske jafngott í sambandi við þau brbl., sem kynnu að verða gefin út, að þau verði ekki á vettvangi hæstv. sjútvrh., því að eftir því sem mér er sagt er hann farinn í skíðaferð til Spánar, búinn að taka sér orlof fyrir fram. (Gripið fram í: Ekki á Spáni?) Heldurðu að hann hafi ekki farið til Spánar? Heldurðu að hann hafi farið eitthvað annað? Hann er glöggur maður, hv. þm., í staðinn fyrir að sinna löggjafarstörfum. Ég veit ekki hvort hann verður kominn heim áður en Alþingi kemur aftur saman eða hvort fleiri ráðherrar ætla að gera víðreist. Það má vera að engin brbl. verði gefin út, ráðherrarnir bara skelli sér til Spánar. Rómverskur keisari söng við lútu sína meðan Róm brann, eins og menn muna og kunnugt er. Þetta lýsir pínulítið fyrir okkur alvörunni í þessum málum og hversu fast einstakir ráðherrar og ríkisstj. vilja halda um efnahagsmálin.
5. gr. Ólafslaga segir svo um það samráð, sem stjórnvöld eiga að hafa við samtök launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda, með leyfi hæstv. forseta:
„Verkefni samráðs þessa skal m.a. vera:
1) Að ræða meginþætti í efnahagsmálum og helstu efnahagsmarkmið ríkisstj. frá ári til árs og til lengri tíma, í því skyni að leggja grundvöll að samræmdum ákvörðunum á sviði opinberra fjármála, peninga- og lánamála, lífeyrismála og verðlagseftirlits af opinberri hálfu, og á sviði kjaramála af hálfu aðila vinnumarkaðarins.
2) Að fjalla um þjóðhags-, fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir, tekjustefnu og forsendur þeirra.
3) Að fjalla um önnur þau atriði, sem horfa til framfara á sviði atvinnu-, verðlags-, kjara- og launamála og efnahagsmála almennt.“
Nú veit ég ekki hversu langt samráðið nær varðandi meginþætti í efnahagsmálum og helstu efnahagsmarkmið ríkisstj. til langs tíma. Ég veit ekki hvort hæstv. forsrh. vill vera svo elskulegur að upplýsa okkur um þetta, af því að hann hafði við orð áðan að hann væri sérstaklega löghlýðinn maður og ríkisstj. raunar í heild, þótt hv. 2. þm. Reykv. hafi haft við orð að Alþingi götunnar ætti að taka völdin, einmitt á þeim tíma sem hæstv. forsrh. gaf út þrælalögin á starfsmenn ríkisverksmiðjanna, þegar hv. þm. Svavar Gestsson var að lumbra á núv. hæstv, forsrh. í sambandi við þá löggjöf með hjálp hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar, 7. þm. Reykv. Og ef ég man rétt frá þeim atburðum, þá var niðurstaðan sú, að við þessi brbl. var ekki staðið. Þáv. hæstv. iðnrh. heyktist á að standa við þau lög. Svo veikt var framkvæmdavaldið þá og löggjafarvaldið sem sameinaðist í þessari persónu. En síðan hafa tekist heilar sættir milli þessara manna. (Gripið fram í.) Sögulegar sættir, já.
Ég man eftir því, að sá gamli og vitri maður, sem lengi sat á Alþing, Gísli Guðmundsson frá Hóli á Langanesi, var einu sinni að tala um það við mig, þegar hann var að ræða um þróun stjórnmála hér og hvernig völdin hefðu færst á milli, hversu mikil sannindi væru fólgin í því gamla rómverska orðtaki: Deildu og drottnaðu. — Vitaskuld sjáum við víða merki þess, hvernig þjóðfélög hafa jafnvel hrunið til grunna vegna þess að tiltölulega fámennum hóp hefur tekist að brjóta niður samstöðuna hjá meiri hlutanum, hefur tekist að koma þar inn klofningi, tvístra hópnum. Og ég verð að segja það þeim ungu Alþb.-mönnum til hróss, að þeir kunna vissulega að halda á sínum spilum, að splundra hinum borgaralegu öflum, eins og þeir kalla þau, veifa framan í menn ýmsum vegtyllum eða bitlingum. Sú ríkisstj., sem nú situr, er t.d. gott dæmi um þetta. Rifjum upp hvernig hún varð til, það liggur allt saman alveg á borðinu. (ÓRG: Varð meira að segja metsölubók í ár.) Það varð metsölubók í ár, já. Þetta liggur allt á borðinu. Alþb.mönnum tókst að sannfæra varaformann Sjálfstfl. um það, að með því að kljúfa Sjálfstfl. gæti sá langþráði draumur ræst að hann yrði forsrh. Með þessum hætti tókst Alþb.-mönnum að deila. Og eftirleikurinn var einfaldur. Þeim hefur tekist, ekki aðeins í kjölfar þess að Alþingi götunnar náði völdunum hér eftir sótstöðusamningana— og við munum hvernig lætin voru þá m.a. í hv. 8. landsk. þm. Guðrúnu Helgadóttur, þegar hún talaði um samningana í gildi, — þeim hefur tekist að rugla fólk. Það trúði því, að þetta fólk byggi yfir einhverju „patenti“. Og afleiðingarnar af þessu voru þær m.a., að Sjálfstfl. missti vígi sitt hér í Reykjavík. Að vísu munaði litlu, þetta var tilviljun, en oft er það tilviljunin sem skiptir sköpum. Ég man eftir því, að þegar þessir afburðir gerðust og næstu misserin á eftir þótti ýmsum sjálfsagt að nú mundu sjálfstæðismenn snúa bökum saman og vinna vígið til baka, endurheimta vígið. (ÓRG: Svo sagði Birgir Ísleifur þá.) Já, við eigum eftir að gera það. Menn vildu stöðva stórsókn kommúnista inn í íslenskt þjóðfélag. En síðan gerist það næst, að við völdum tekur ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar með þátttöku kommúnista. Við töldum þá, sjálfstæðismenn, að það ætti að vera höfuðmarkmið okkar að berjast gegn auknum áhrifum kommúnista í þjóðfélaginu, enda hefur það verið langþráður draumur kommúnista að setja Sjálfstfl. til hliðar, brjóta niður íslenskt efnahagskerfi og veikja íslenska atvinnuvegi. (ÓRG: Hvernig stóð þá á því, að Styrmir Gunnarsson datt út úr þessari glímu? Fæ ég svar við því?) Og þetta virtist ætla að takast. Kosningar fóru fram á s.l. vetri, fyrir rúmu ári, og upp úr því fóru fram stjórnarmyndunarviðræður.
Ég man eftir því, og veit að það kom ýmsum mönnum spánskt fyrir sjónir, hvernig Alþfl. hélt á þeim umræðum sem þá voru um nýja ríkisstj. í landinu. Alþfl. hafði fyrirvaralaust slitið stjórnarsamstarfi við framsóknarmenn og kommúnista í sept. eða byrjun okt. á þeim grundvelli að þrautreynt væri að ekki gæti orðið um það að ræða, að samkomulag næðist við Alþb. um úrræði sem héldu í efnahagsmálum. — (Fundarhlé).
Herra forseti. Það er eðlilegt að um þetta mál séu nokkrar umræður þar sem tilefni gefst til þess, úr því að talsmenn ríkisstj. eru ekki fáanlegir til að svara einföldustu spurningum varðandi meginþætti í efnahagsmálum og helstu markmið ríkisstj. í þeim efnum.
Ég sé, að hæstv. viðskrh. er kominn hér í salinn, og vil mega leggja fyrir hann eina spurningu, fsp. í tilefni að þeim umræðum sem hér hafa farið fram, og vegna þess, hvernig hæstv. forsrh. hefur brugðist við. Fyrr í dag, hæstv. viðskrh. var borin fram afskaplega einföld spurning, hvort þess sé að vænta, að farið verði með vaxtamálin eins og lög segja til um nú um áramótin, hvort við getum vænst þess, að staðið verði við þau ákvæði sem nú eru í lögum varðandi vaxtamál og verðtryggingu eða ekki. Þetta er sú einfalda spurning sem ég held að Alþingi hafi fullan rétt á að fá vitneskju um áður en það fer heim.
Ég vil svo ítreka það sem ég sagði fyrri í dag, að það er síður en svo um það að ræða að við í stjórnarandstöðunni viljum taka einhvern rétt af ríkisstj. Það mál, sem hér er til umræðu, er fólgið í því, að ríkisstj. biður um að Alþingi afsali sér löggjafarvaldinu fram í lok janúar. Það er kjarni þessa máls. Ég tel að það sé úrelt að halda svo á málum, að bráðabirgðalagavald sé afhent ríkisstj. þótt alþm. hverfi heim til sín um jólin. Við höfum fundið það á umræðum um Alþingi í blöðum, í ræðu og riti, að til þess er ætlast að Alþingi sitji í jólaleyfinu og haldi störfum sínum áfram, til þess séu refirnir skornir, til þess séu alþingismenn kosnir, að þeir eigi að vinna sín verk.
Ég óska sem sagt skýrra svara við þessu frá öðrum hvorum, hæstv. viðskrh. eða hæstv. forsrh., hvort þess sé að vænta að við þau ákvæði, sem nú eru í lögum um vexti, verði staðið um áramótin eða hvort til standi að breyta þessum ákvæðum með brbl.