19.12.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1949)

178. mál, frestun á fundum Alþingis

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Mér þótti bjartsýni hv. þm. Halldórs Blöndals helst til mikil þegar hann gerði ráð fyrir því, að hæstv. forsrh. mundi svara fsp. hans. Það hefur svo margoft á það reynt, hvort sá virðulegi hæstv. forsrh. vildi svara spurningum alþm., að allir ættu að vita að það vill hann ekki, kærir sig ekkert um það og finnst hann vera langt yfir það hafinn að þurfa að svara einu eða neinu.

En ég átti ekki von á því, að hæstv. viðskrh. væri farinn að draga svo dám af sessunaut sínum að hann tæki líka upp þessi vinnubrögð hans að fara undan í flæmingi í hvert skipti sem hann er spurður um einföldustu hluti, eins og hann gerði áðan. Hann hefur venjulega viljað svara. Hann hefur meira að segja svarað blöðum margsinnis mjög skýrt, sagt sínar skoðanir. En nú kemur hann hingað og hefur ekkert annað að segja en að það muni verða farið að lögum. Það muni verða farið að lögum, það er aðalfréttin. Það er kannske engin furða þó að það sé stórfrétt, eins og lög eru sniðgengin, eins og allt siðferði er sniðgengið af þessari stjórn, eins og svik og undirferli eru aðdragandi þessarar stjórnarmyndunar. Það er aðalatriðið sem ráðherrarnir hafa fram að færa við þjóðina: það verður farið að lögum. Ég efast um að það verði farið að lögum. En það er þó gott að ráðherrum dettur það í hug, að lög eru til í landinu.

En það, sem við erum að spyrja að, er ekki hvort farið verði að lögum. Við ætlum að reyna að vona að það verði farið að einhverju af lögum landsins, þó að sum séu sniðgengin og önnur brotin eins og allir vita. Við erum að spyrja að því, hvort sett verði ný lög, hvort lögum landsins verði kollvarpað kannske að meira eða minna leyti. Svo er það þessi einfalda spurning í sambandi við vextina, og ég trúi ekki að hæstv. viðskrh. muni neita að svara því, hvort það sé hugmyndin núna eftir tíu daga að setja brbl. til þess að breyta ákvörðun um vextina. Mér fyndist ekkert athugavert við það, að lagt yrði fram hér í þinginu frv. um það að fela ríkisstj. eða Seðlabankanum breytingar á vaxtalögum. Ég er ekki að segja að ég mundi greiða því atkvæði, en stjórnarliðið hefur meiri hl. — að þeir halda — og líklega hafa þeir það enn þá, meiri hl. til þess að fá slíkt frv. samþykkt. Og það er enn þá tími til þess. Þá geta þeir gert þessa breytingu. En þeir geta ekki boðið Alþingi Íslendinga það að neita viku eftir viku að svara því, hvort þeir hafi í huga að breyta þessum ákvæðum, og gera það síðan með brbl. Það er sjálfsagt rétt hjá hæstv. ráðh., að þeir hafi ekki gert það upp við sig, hvernig efnahagsráðstafanirnar í heild eigi að vera, og geti þess vegna ekki lagt þær fram fyrir okkur, ef þær þá einhvern tíma sjá dagsins ljós. En ef einn liðurinn í efnahagsráðstöfunum hugsanlega er breyting á svokölluðum Ólafslögum, þessu ákvæði um vextina, þá er það skylda ráðherranna, siðferðileg og ég vil segja stjórnskipuleg skylda — þegar eftir því er gengið og spurt að því, hvort þeim detti í hug að breyta þessu með lögum innan tíu daga — að svara hér. Og ég treysti því, að þegar hæstv. viðskrh. nú á þessari stundu hugsar málið betur, og ég sé að hann er að hugsa málið, sýni hann okkur þá virðingu að svara þessu skýrt og greinilega: Verður þessu ákvæði Ólafslaga breytt með brbl., verður því hugsanlega breytt með brbl.? Ef það er ekki hugmyndin, ef ákveðið er að breyta þeim ekki með brbl., þá er það í lagi. Ef þarf að breyta þeim, þá á að leggja frv. þess efnis fram hér og nú, á þessari stundu, og afgreiða það með öðrum málum á morgun, og ríkisstj. getur þá tekið sér þessa heimild. (Gripið fram í.). Ég hef ekki talað um að hækka vexti. Ég er að tala um lögfræði, ég er að tala um siðgæði, ég er að tala um stjórnskipunarrétt. Ég er ekki að tala um vexti. Ef ráðh. vill fá sérstakan fyrirlestur um efnahagslíf og vexti, þá er ég reiðubúinn. Ég skal tala hér í marga klukkutíma um það, vegna þess að það er mál út af fyrir sig. Það er nákvæmlega sama hvort vextir undir stjórn þessa manns og félaga hans væru 5% eða 500%, stjórnarstefnan er svo kolbrjáluð að verðbólgan mundi æða jafnt áfram fyrir því og þjóðfélagið liðast í sundur, eins og það er að gera, því miður, og atvinnuvegirnir fara á hausinn. Að tala um það er langur, mjög langur fyrirlestur, og ég ætla ekki að eyða tíma þingsins í það nema ráðh. óski þess að ég geri það. (Fjmrh.: Þetta var bara ein lítil spurning og eins lítils svars er óskað.) Ég held ég sé búinn að svara því. Það er nákvæmlega sama hvort vextir verða lækkaðir niður í 5% eða hækkaðir í 500%, miðað við þær aðstæður sem núna eru og miðað við það, að ekkert annað sé gert. Og ég skal þá gjarnan ræða þetta svolítið.

Þegar Alþfl.-menn báru fram till. sínar um þessa raunvexti, sem ég hef í blaðagreinum og ræðum kallað raunalega vexti, þá var hugsunin góð út af fyrir sig: að hafa raunvexti, hafa vextina eilítið hærri en verðbólguna. En að láta sér detta það í hug að lögbjóða að á einu og hálfu ári skyldu vextir alls ekki undir neinum kringumstæðum ná verðbólgu, en hins vegar alltaf elta hana og keyra hana áfram, — þegar hún hækkaði um 10% hækka þeir um 10%, en alltaf samt 10% undir raunvöxtum, — það gat verið vit í því þegar vinstri stjórnin var mynduð og verðbólgan var 40% eða svo, að setja þá 50% vexti og lækka þá síðan og nota þá til þess að kýla verðbólguna niður. Þetta mundi fjmrh. aldrei skilja, enda hlustar hann ekki á svar mitt né heldur viðskrh. (Viðskrh.: Jú. Ég hlustaði.) Um þetta get ég haldið mjög langan fyrirlestur. En ég hélt að menn vildu gjarnan fá örlítið matarhlé og geta farið að tala um fjárlögin. Ég hef trú á því, að hæstv. viðskrh. skilji þetta, þó að hæstv. fjmrh. skilji það auðvitað ekki frekar en annað.

En ástæðan til þess, að ég kom hér upp, var sem sagt fyrst og fremst sú að endurtaka það, að hæstv. viðskrh. getur ekki skotið sér undan því að svara þessu. Það er ekki nóg að segja: Landsins lög verða virt. Við skulum vona að þau verði það, og ég veit að hann vill ekki vísvitandi brjóta landsins lög.

Nú liggur það fyrir samkvæmt yfirlýsingu Seðlabanka, samkvæmt áliti formanns fjh.- og viðskn. Nd., hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar, og samkvæmt eðlilegri lagaskýringu, að það verður að hækka vexti verulega um áramótin ef Ólafslögum er ekki breytt. Ég held að það væri algjör endaleysa, ef það er það sem hæstv. ráðh. Ragnar Arnalds er að fiska eftir, að bæta því ofan á annað að fara með vextina í 60% eða svo. Ég held að það væri algjör endaleysa. Það er nákvæmlega jafnmikil endaleysa ef ætti að lækka þá niður í 20%, það bæri allt að sama brunninum. Það eru ekki vextirnir einir sem þarf að krukka í. Og ég held að flestallir séu farnir að skilja þetta, þó að hæstv. fjmrh. skilji það ekki.

En sem sagt, ef á að breyta vöxtum, þá verður að breyta fleiru. Ég er nú að reyna að segja þetta skýrt, en það verður þá bara kannske ruglingslegt. Ég veit auðvitað að hæstv. viðskrh. skilur þetta allt saman mætavel. Ég er að tala um lögfræði, ég er að tala um siðfræði og ég vil segja stjórnskipunarlög. Ég sé að hæstv. forsrh. kippist eitthvað við þegar talað er um siðfræði. Málið er svona einfalt.

Kemur það til greina af hálfu hæstv. ríkisstj. að breyta með brbl. þessu ákvæði Ólafslaga eftir tíu daga án þess að greina Alþingi frá því, án þess að leggja málið fyrir þingið? Það er enn tími til þess, getur orðið sólarhringur til þess ef í það fer, en ég hygg að ekki þyrfti langan tíma til að afgreiða málið. Ef ríkisstj. vill fá sér slíka heimild á hún að gera það hér á Alþingi með þeim meiri hl. sem hún telur sig hafa, en undir engum kringumstæðum að dylja menn þessa og fara heim og neita að gefa yfirlýsingu. Ég á ekki von á því að úr þessu fáist neinar almennar yfirlýsingar. Svo mikið hefur hæstv. viðskrh. sýnilega lært af hæstv. forsrh., að hann gefur engar yfirlýsingar sem bitastætt er í almennt, og er raunar búinn að segja að tillögurnar séu ekki svo langt á veg komnar að hægt sé að greina frá þeim o.s.frv., o.s.frv., en boðað hafi verið að það mundi eitthvað koma í þá áttina. En þetta eina atriði hlýtur þó að liggja svo ljóst fyrir að hæstv. viðskrh. geti svarað því. (Forsrh.: Hver er stefna hv. þm.? Getur hann svarað því?) — Má ég svara þessu hérna, ljúka máli mínu þannig? Hæstv. forsrh. ætti gjarnan að vera í salnum og hlusta á það. Sálufélagi hans og húsbóndi, einn af húsbændum hans, hæstv. fjmrh., spurði þessarar sömu spurningar og ég var að svara henni áðan. Tók meira að segja dálítinn tíma frá störfum þingsins. Óskar hæstv. forsrh. eftir að ég endurtaki það? Það mundi taka mig tíu mínútur eða svo að skýra það mál allt — eða vill hann heldur fá fóstbróður sinn og sálufélaga, hæstv. fjmrh., til að greina sér frá því? (Forsrh.: Er þá hv. þm. orðið sama hvort vextir verða 5% eða 500%?) Undir stjórn hæstv. forsrh. Gunnars Thoroddsens er það nákvæmlega sama. Þegar ekkert annað er gert og undir stjórn þessa manns hlýtur allt illa að fara. Það var ekkert einkennilegt að hv. þm. Halldóri Blöndal skyldi detta þetta í hug með rafmagnið sem fór suður í staðinn fyrir norður þegar hæstv. forsrh. ætlaði að stjórna straumnum. Sá straumur, sem hann ætlar að stjórna, fer venjulega í vitlausa átt.