19.12.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1819 í B-deild Alþingistíðinda. (1969)
1. mál, fjárlög 1981
Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Nú er nokkuð liðið á nótt og allmiklar umr. hafa átt sér stað um þetta fjárlagafrv., sem vonlegt er eins og það er úr garði gert og eins gagnrýnisverð og heildarstefna þess er. Ég ætla að stilla mig um að ræða frv. í meginatriðum. Það hafa margir orðið til þess að gagnrýna það og þá fjármála- og efnahagsstefnu sem í því felst. Gagnrýnin beinist að sömu efnisatriðum nú og á s.l. ári.
Það er nokkuð merkilegt til þess að hugsa, að þegar gagnrýni var flutt á frv. fyrir árið 1980, þar væri verðbólguhvetjandi frv., frv. fæli í sér aukin ríkisútgjöld, aukna skattheimtu og aukna verðbólgu, var því borið við af hæstv. ríkisstj., að svo skammt væri um liðið síðan hún tók við völdum að henni hefði ekki gefist nægilegur tími til að gaumgæfa fjármál ríkisins og því væri von að frv. væri haldið þessum annmörkum. Nú er ríkisstj. búin að vera við völd blómann af þessu ári og enn þá eru samskonar ágallar á frv. og áður var og enn þá sömu gallar á þeirri stefnu sem ríkisstj. fylgir. — Ég vil benda hv. þm., þó að það ætti ekki að vera nauðsynlegt, á þskj. 230, þ.e. nál. frá 1. minni hl. fjvn. sem dregur upp mjög glögga mynd af meginstefnu hæstv. ríkisstj. í ríkisfjármálum, skattamálum og efnahagsmálum og sýnir svo að ekki verður um villst hver stefna ríkisstj. er og hvert hún er að leiða okkur. Mér finnst þetta þskj. vera mjög til fyrirmyndar og ég vil segja að ég hef sjaldan, síðan ég kom á Alþingi, séð jafnvandað þskj. og hér er um að ræða, jafnefnismikið og glöggt. Ég vil sérstaklega þakka þeim hv. þm. sem að því standa, 1. minni hl. fjvn., þeim Lárusi Jónssyni, Friðrik Sophussyni og Guðmundi Karlssyni, fyrir þetta ítarlega nál. sem ég hvet alla hv. þm. til að kynna sér gaumgæfilega.
Aðaltilgangur minn í ræðustól er að mæla fyrir lítilli brtt. sem ég flyt ásamt Albert Guðmundssyni, Árna Gunnarssyni, Benedikt Gröndal og Salome Þorkelsdóttur, en það er brtt. við 4. gr., lið 08 741 0104 á þskj.
329, IV. liður á því þskj., en þar gerum við tillögu um að styrkur til félagasamtakanna Verndar hækki úr 1.5 millj. í 11.5.
Félagasamtökin Vernd sóttu til fjvn. um allmiklu hærri styrk en við hér gerum till. um. Að baki þessari till., sem við flytjum, liggur bréf sem ég vil kynna hv. þm., en bréfið er stílað á fjvn. Þar segir, með leyfi forseta:
„Nú í haust voru félagasamtökin Vernd endurskipulögð að mestu leyti. Í stað sjö manna stjórnar tók nú við fjörutíu manna aðalstjórn, en úr henni kosin fimm manna framkvæmdastjórn. Lög samtakanna voru endurskoðuð og breytt til samræmis við nýja tíma, en tilgangur allur hinn sami eða fangahjálp. Við kjör stjórnar var leitast við að eignast tengiliði við sem flesta þætti þjóðfélagsins þannig að hver hinna fjörutíu stjórnarmanna hafi ákveðnu hlutverki að gegna. Fjölmörg verkefni biðu hinnar nýju framkvæmdastjórnar, en ljóst var að eftirtalin verkefni urðu að hafa algeran forgang:
Kaup eða leiga á húsnæði fyrir rekstur heimilis fyrir 10–15 fyrrverandi fanga. Fyrirmyndin að slíku heimili er heimili það er Eðvald Berndsen veitir forstöðu að Ránargötu 6, en vegna dvalar þar hafa samtals 60 einstaklingar, áður taldir vonlausir útigangsmenn, öðlast nýtt líf og orðið nýtir þjóðfélagsþegnar. Sem stendur eiga fyrrverandi fangar ekki í nein slík hús að vernda vegna fordóma. Fyrrv. fangar eru og verða sérþjóðflokkur sem þarfnast slíks heimilis á meðan þeir eru að aðlagast þjóðfélaginu. Eina skilyrðið til að fá inni á fyrirhuguðu heimili er að vera allsgáður og vinna. Gjald hvers heimilismanns fyrir fæði og húsnæði er fyrirhugað 100 þús. kr. á mánuði. Hærra gjalds er ekki hægt að krefjast þar sem afgangur af launum hvers manns verður að vera nægur til að hann sjái árangur og hag af nýjum lífsstíl. Starfskraftar eru fyrirhugaðir tveir, forstöðumaður og matráðskona. Áætlaður halli á rekstri slíks húss er 30 millj. kr. og er þessi tala byggð á reynslu af rekstri Ránargötu 6, en undirritaður hefur verið formaður hússtjórnar þar frá byrjun.
Ljóst er að nú þegar þarf að auka verulega félagslega aðstoð við fanga. Ráða verður mann til þessara starfa og er hlutverk hans m.a. að undirbúa fanga tímanlega undir brottför, þ.e. atvinnu- og húsnæðisútvegun, að sækja fanga í fangelsi að lokinni afplánun og styðja þá fyrstu skrefin, að heimsækja fangelsin tvisvar til þrisvar í viku og sinna fyrir fanga erindum utan fangelsis, þ.e. semja við skuldheimtumenn, skattakærur, verslun á nauðsynjahlutum, útvegun klæðnaðar o.s.frv., að veita fjölskyldum fanga félagslega aðstoð, að aðstoða fanga við að komast í meðferð vegna alkóhólisma. Starf þetta er dýrt í framkvæmd, m.a. vegna mikils tilkostnaðar, og er áætlaður kostnaður vegna þess 15 millj. kr.“
Síðan er rakið í þessu bréfi að um 85% fanga sitji inni vegna afleiðinga áfengis- og vímuefnaneyslu og að nauðsynlegt sé að koma á laggirnar fræðslu og fyrirbyggjandi störfum.
Það er enn fremur sagt í þessu bréfi, í lokaorðum, að samkv. fjárlagafrv. 1981 kosti það 1150 millj. kr. að reka fangelsi Íslands. Áætlað er að 200–300 manns séu fastagestir í vítahring sem fæstum reynist kleift að komast út úr. Það er hlutverk Verndar að vísa þessu óhamingjusama fólki veginn til nýs lífs. Það er staðföst trú okkar að fækka megi hópi þessum um helming á 1–2 árum eða 100–150 manns, og á grundvelli þessa sækir þetta félag um 30 millj. kr. framlag úr ríkissjóði, en fjvn. veitir 1.5 millj. Við flm. leggjum til, eins og ég sagði áðan, að þeir fái þó ekki meira en 1/3 af því sem þeir sækja um.
En nú er spurningin: Hvaða samtök eru þetta? Hví eru þessi samtök talin það mikilvæg að ástæða sé til að flytja sérstaka brtt. hér á hinu háa Alþingi við fjárlagafrv.? Hverjir veita þessum samtökum forstöðu? Eru þessi samtök þess verð að njóta þess traust að fá styrk til svo veigamikils verkefnis? Ég svara því játandi og við flm. erum þeirrar skoðunar. Í þessu sambandi koma í hug, ég býst við okkar allra flm., samtökin SÁÁ eða samtök áhugamanna um áfengismál sem voru stofnuð fyrir nokkrum árum. Sannleikurinn er sá, að þessi samtök hafa unnið stórvirki. Þau samtök og hliðarsamtök þeirra hafa sett á stofn hverja stofnunina á eftir annarri, — stofnanir sem ríkisvaldið hefur áratugum saman vanrækt að setja á stofn. Þessar stofnanir hafa verið settar á fót af áhugamönnum og þær grundvallast á starfi áhugamanna. Hið opinbera, ríki og sveitarfélög, hefur að vísu stutt við bakið á þeim, en frumkvæðið, krafturinn og starfsandinn hefur komið frá áhugafólkinu. Ég leyfi mér að fullyrða, og ég segi það af nokkurri reynslu og ég held af nokkrum kunnugleik, að þessi samtök hafi unnið kraftaverk á sínu sviði.
Ég hef átt þess kost sem borgarstjóri í Reykjavík og borgarfulltrúi að fylgjast nokkuð með hvernig þessi samtök hafa vaxið hér í borg. Ég skal viðurkenna að í hvert skipti sem forsvarsmenn þeirra komu á minn fund til að reifa hugmyndir sínar um nýjar stofnanir, sem þeir hugðust setja á laggirnar, var fyrsta hugsunin sem bærðist með mér alltaf sú, að nú væru þeir að færast of mikið í fang. En þeir luku hverju verkefninu á fætur öðru. Að vísu studdum við nokkuð við bakið á þeim, en það var ekki nema lítið brot af því sem þurfti til þess að verkið ynnist. Ég vil sérstaklega nefna í þessu sambandi forustumann félagasamtakanna Verndar, sem skrifar undir umsóknarbréfið, Hilmar Helgason, sem hefur sýnt alveg ótrúlega fórnfýsi og reyndar unnið kraftaverk í þessum málum, studdur af félögum sínum að sjálfsögðu, en hann hefur haft forustuna.
Nú hafa félagasamtökin Vernd verið endurskipulögð og eru byggð á sama grunni og hafa tekið upp sama skipulag og samtök SÁÁ sem ég gat um áðan, og þau hafa sett sér það markmið að setja á stofn stofnanir fyrir fanga, sem dveljast í fangelsum landsins, til að koma þeim út í lífið að nýju. Ég segi fyrir mig, og ég held að ég tali fyrir munn okkar allra flm. þessarar litlu till., að við treystum þeim mönnum, sem þarna eru í forustu, og við gerum okkur grein fyrir að þeir ætla sér að sinna verkefnum sem ríkisvaldið hefur vanrækt árum saman, eins og ríkið vanrækti að setja upp stofnanir fyrir þá sem voru háðir ofneyslu áfengis. Því teljum við að ríkisvaldinu beri hreinlega skylda til að styðja við bakið á þeim. Ég er viss um að ef þeir ná fram því sem þeir ætla sér muni ríkið ekki spara þessa litlu upphæð sem við gerum hér till. um, heldur tugi eða hundruð milljóna, margfalda þá upphæð sem ríkið kemur til með að leggja í þessa starfsemi, á sama hátt og ríkið hefur þegar sparað sér margfaldar þær fjárhæðir sem það hefur lagt til samtaka SÁÁ. Ég vil því eindregið hvetja hv. þm. til að samþykkja þessa litlu brtt.