19.12.1980
Efri deild: 42. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1837 í B-deild Alþingistíðinda. (1981)

160. mál, minnsta mynteining við álagningu opinberra gjalda

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Það er rétt, sem formaður fjh.- og viðskn. og frsm. sagði, að það komu fram óskir um að afgreiðsla þessa máls biði þar til séð væri hvort frv., sem lá frammi um að fresta myntbreytingunni, yrði samþykkt eða ekki. Við töldum eðlilegt að það mál yrði útkljáð áður en gengið yrði til afgreiðslu á þessu máli. Það hefur aldrei vakað fyrir mér a.m.k. og ég held engum að reyna að tefja framgang þessa máls eða hindra það. Við stöndum að því, að það nái fram að ganga, þótt við séum andvígir því, að myntbreytingin verði látin fara fram nú að þessu sinni, í þeirri óðaverðbólgu, upplausn og stjórnleysi, sem við er að glíma, og þeirri ógnarlegu efnahagskreppu —vil ég segja — og atvinnukreppu sem fyrirsjáanleg er við áframhaldandi setu núv. hæstv. ríkisstjórnar.

En það er eins og fyrri daginn, að hæstv. ráðh. mæta ekki hér og svara ekki fsp. þó til þeirra sé beint, t.a.m. fsp. sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson beindi áðan til hæstv. viðskrh., en fékk ekki svar við í Sþ. Ég hafði hugsað mér að bera þá fsp. fram hér til þess að spara tíma, af því að við erum venjulega fljótir að afgreiða mál hér, en hæstv. ráðh. er nú ekki inni svo að ég geymi það þá til 3. umr. málsins.