19.12.1980
Efri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1844 í B-deild Alþingistíðinda. (2008)

176. mál, vörugjald

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Þegar þetta mál var hér fyrr til umr. í hv. deild klofnaði hv. fjh.- og viðskn. í málinu. Meiri hl. hennar mælti með því að frv. yrði samþykkt, en minni hl. lagðist gegn frv. og lagði til að það yrði fellt. Kom sú afstaða fram í atkvgr. hér í deildinni. Þessi afstaða nefndarinnar og skipting er enn óbreytt. Þeir, sem stóðu að samþykkt frv. fyrr, mæla með því að það verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð var á frv. í Nd., en andstæðingar frv. eru áfram andstæðingar þess og mæla með því að það verði fellt.