19.12.1980
Neðri deild: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)

171. mál, jöfnunargjald

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég held að ég geti ekki tekið undir það með hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, að fært sé að fresta áramótunum með brbl., það þurfi að koma meira til.

Í sambandi við þær umræður, sem hér hafa orðið, vil ég segja nokkur orð áður en ég svara tilmælum hv. þm. Ég vil geta þess, að jöfnunargjaldið var lagt á á sínum tíma til að jafna aðstöðu íslensks iðnaðar gagnvart samkeppnislöndum vegna þess að hann greiðir söluskatt. Eingöngu þess vegna. Sama var að segja um gjaldið í Finnlandi. Ástæðan fyrir því, að það er mismunandi á hinum ýmsu vörutegundum í Finnlandi, er að söluskatturinn er mismunandi. Og Finnar hafa sent EFTA sundurliðun á því, hvernig þetta jafnast upp með þeim hætti að söluskatturinn er jafnhár aðlögunargjaldinu í öllum tilfellum hjá þeim. Við höfum hins vegar ekki sent svona sundurliðun af okkar hálfu þó að við höfum 3% gjald, en það hefur verið látið gott heita:

Ég hef gert þessi mál að umræðuefni áður, bæði í Ed. og hér við 1. umr. fjárlaga, og hef af því nokkrar áhyggjur, að þegar ákveðið var að leggja á aðlögunargjaldið á sínum tíma voru gefnar yfirlýsingar af hálfu Íslendinga bæði sendiherra, sendimanna, þingmanna og ráðherra — um að þetta gjald væri tímabundið og yrði ekki framlengt. Ég sé ekki ástæðu til að rekja öll þessi ummæli. Þó get ég ekki stillt mig um að lesa nokkur orð úr ræðu Einars Ágústssonar fyrrum utanrrh., en hann var einn af þeim sem fóru í sendiferðina sem farin var til EFTA-landanna til að tala fyrir þessu máli á sínum tíma. Einar Ágústsson sagði í þingræðu á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Annað atriði, sem mjög mikil áhersla var lögð á og ég legg höfuðáherslu á miðað við þann málflutning sem ég leyfði mér að hafa uppi í þessari ferð og við sem hana fórum, er að þetta gjald verði fellt niður í árslok 1980. Það er ekki hægt að fara fram á svona undanþágur á fölskum forsendum. Alþingi og ríkisstj. verða því á því eina og hálfa ári, sem til stefnu er, að gera aðrar ráðstafanir ef iðnaðurinn íslenski þarf þá.“ (Gripið fram í.) Það er ekki þægilegt að taka þátt í atkvgr., herra forseti, í Ed. í miðri ræðu. (Forseti: Liggur mikið við þar í efra? Þá geri ég örstutt hlé á fundinum meðan hæstv. viðskrh. gegnir skyldustörfum sínum þar.)

Herra forseti. Ég sný mér að því aftur að rekja ummæli Einars Ágústssonar fyrrum utanrrh. Hann sagði m.a.: „Það er ekki hægt að fara fram á svona undanþágur á fölskum forsendum. Alþingi og ríkisstj. verða því á því eina og hálfa ári, sem til stefnu er, að gera aðrar ráðstafanir ef iðnaðurinn íslenski þarf þá enn á áframhaldandi vernd að halda. Það er ekki hægt að svíkja gerða samninga, það megum við ekki láta henda okkur.“

Þetta er tilvitnun í ræðu sem Einar Ágústsson flutti á hv. Alþingi þegar þetta mál var hér til meðferðar. Til viðbótar við þetta hefur verið kannað hverjar undirtektir væru um framlengingu aðlögunargjaldsins. M.a. hef ég kannað það í viðtölum við ráðherra og sendiherra og framkvæmdastjóra Fríverslunarbandalagsins í Genf. Þetta hefur einnig verið kannað hjá Efnahagsbandalagi Evrópu. Og alls staðar hafa verið sömu viðbrögðin, að vitnað hefur verið til yfirlýsinga sem gefnar voru þegar samþykkt var að setja gjaldið á. Að vísu hefur það aldrei verið samþykkt af Efnahagsbandalagi Evrópu, heldur hefur það verið látið gott heita, vegna þess að lýst hefur verið yfir að það mundi falla niður.

Sendiherra okkar í Brussel hefur sent skýrslu heim um málið, og segir þar orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Telja má fullvíst að bandalagið sætti sig ekki við framlengingu aðlögunargjaldsins og geti jafnvel gripið til mótaðgerða sem skaði mikilvæga viðskiptahagsmuni Íslands.“ En þessir mikilvægu viðskiptahagsmunir Íslands hjá Efnahagsbandalagi Evrópu eru einmitt þeir samningar sem við höfum við bandalagið um niðurfellingu tolla á útflutningsvörum sem við seljum til bandalagsins. Áætlað er að á þessu ári sleppum við við að greiða sem svarar 11 milljörðum kr. vegna þess arna.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, enda hefur málið áður verið rætt talsvert ítarlega, eða þessi flötur á málinu. En þetta er ástæðan fyrir því, að mér hefur verið illa við að nefna aðlögunargjaldið sérstaklega í þessum texta. Ekki vegna þess að ég hafi gefið neinar yfirlýsingar í þessu efni, það hef ég ekki gert, heldur vegna þess að aðrir hafa gert það, og ég tel það mikils virði að treysta megi því sem við segjum í samskiptum og samvinnu við aðrar þjóðir.

Það er svo alveg rétt hjá hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, að það er ástæða til að huga að íslenskum iðnaði og aðstöðu hans. Ég er mjög fús til þess að taka upp málefni íslensks iðnaðar hjá þessum bandalögum í sambandi við erfiðleika sem iðnaðurinn á í.

Ég vil svo að lokum segja það vegna þeirrar málaleitunar sem hv. þm. setti hér fram, að áður en til ráðstöfunar þessa gjalds kemur, sem hér er heimild til að leggja á, finnst mér sjálfsagt að verða við þeim tilmælum, að höfð séu samráð við fjh.- og viðskn. Alþingis. Ég get fyrir mitt leyti lýst því yfir hér, að ég tel það sjálfsagt mál og útlátalaust með öllu.