29.10.1980
Efri deild: 7. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Aðaltalsmaður þingflokks Sjálfstfl. í Sþ. hefur flutt um þetta mál tvær ræður. Aðaltalsmaður þingflokks Sjálfstfl. í þessari deild var nú að ljúka tæplega klukkustundar ræðu. Þessar þrjár ræður eiga allar eitt sameiginlegt: Þær fjalla meira um mig en um Flugleiðir. Hv. þm. Sjálfstfl. hafa varið meira af tíma þingsins í að fjalla um 11. þm. Reykv. en um málefni Flugleiða. Slíkur var áhugi þm. Sjálfstfl. á Flugleiðamálinu, sem þeir heimtuðu utandagskrárumr. um í byrjun þings, að á fundi í Sþ. í gær var einn þm. þessa stóra og mikla þingflokks, sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson var að lýsa hér áðan, sem hafði nennu og áhuga á málinu til þess að hlusta á þær umr., síðan tveir eða þrír aðrir sem skutu rétt inn andlitinu til að fylgjast með. Þetta er allur áhugi Sjálfstfl. á Flugleiðamálinu. Þetta er öll sú áhersla sem flokkurinn leggur á þetta mikla mál.

Mig langar til þess að vekja athygli hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar á því, að talsmaður þingflokks Sjálfstfl. í Sþ. gagnrýndi sérstaklega í ræðu sinni í gær að frv. um málefni Flugleiða hefði verið lagt fram í Ed. Það var á honum að skilja að það væri afstaða þingflokks Sjálfstfl. að þetta mál hefði átt að leggja fyrir Nd. Mig langar þess vegna til að spyrja fulltrúa Sjálfstfl. í þessum umr., sem talaði mjög mikið um virðingu Ed. áðan og taldi að umr. hér væru á hærra plani en í Nd., hvort fulltrúar Sjálfstfl. í þessari deild séu sammála þessari gagnrýni talsmanns þingflokksins í Sþ., að hér ætti Nd. að hafa forgang.

Það er að vísu rétt, sem kom fram hjá hv. þm., að ræðumennska mín er hvorki eins glæsileg, rökföst, málefnaleg, hnyttin eða fyndin né fljúgandi af orðgnótt og hraðmælsku og þær ræður sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson jafnan flytur í þessari deild. En við erum nú einu sinni misjafnlega gerðir og við verðum sumir að sætta okkur við að hafa ekki þetta leiftrandi fjör og þessa andagift sem hv. þm. Þorv. Garðar hefur til að bera greinilega að eigin dómi samkvæmt ræðu hans áðan. Ég ætla ekki að ræða það, hins vegar segja hv. þm. að ef hann hefði haft nennu til og áhuga á málefnum þessa fyrirtækis til að hlýða á umr. í Sþ. í gær hefði hann bæði fengið svör við ýmsu af því, sem hann var hér að tyggja upp að ekki hefðu fengist svör við, og hann hefði jafnframt fengið að hlýða á grundvallarspurningar sem þm., t.d. Alþfl., og hæstv. samgrh. báru fram í Sþ. um málefni Flugleiða. Sú ræða, sem hv. þm. flutti áðan, ber einfaldlega með sér að þm. hefur ekki haft nennu til að fylgjast með umr. um málið hér í þinginu og er að tyggja atriði sem fyrir löngu er búið að svara.

Hæstv. samgrh. Steingrímur Hermannsson svaraði t.d. ítarlega í Sþ. í gær hvers vegna hann hefði kosið að veita flugfélaginu Iscargo leyfi til Amsterdamsflugs. Það ber þess vegna eingöngu vott um hirðuleysi um störf þingsins að koma hér upp í dag og krefjast enn á ný svara við þessum spurningum.

Það hefur hvað eftir annað verið bent á það, bæði í Sþ. og hér, að ríkisstj. hefur ekki tafið framgang þessa máls, hvorki Alþb. né aðrir aðilar í ríkisstj. Það barst 15. sept. bréf um 12 millj. dollara ríkisábyrgð og það er lagt fram frv. um það efni mánuði síðar. Eins og ég hef áður rakið í þessari deild tók sams konar verkefni ríkisstj. Sjálfstfl. 1974–78 8 mánuði. Öll þessi gagnrýni og önnur, sem hv. þm. vék að í ræðu sinni, á því í raun og veru ekkert erindi lengur inn í þessar umr. Því hefur öllu verið svarað.

Hann vék enn fremur að gagnrýni sem ég hefði haldið uppí á stjórn Flugleiða og vitnaði til orða sem ég hefði haft um það efni. Ég var þar eingöngu að taka undir lýsingu og afstöðu hv. þm. Eiðs Guðnasonar, fyrsta talsmann Alþfl. og aðaltalsmanns Alþfl. í þessu máli, sem hann flutti í þessari deild þegar málið kom fyrst til umr. Ég var eingöngu að lýsa yfir að ég væri sammála því sem hv. þm. Eiður Guðnason hafði þá sagt. Þess vegna er dálítið skrýtið að koma síðan hér upp og fara að ráðast á mig fyrir þetta efni.

Hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson hefði einnig í gær getað hlýtt á hæstv. samgrh. Steingrím Hermannsson lýsa því yfir að hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum, — miklum vonbrigðum, voru orð ráðh., með framgöngu stjórnar Flugleiða og samskipti stjórnenda fyrirtækisins við rn. í þessu máli, bæði hefðu upplýsingar ekki staðist og borist seint og illa og sumar grundvallarupplýsingar ekki borist enn. Ráðh. upplýsti þar t.d., eins og hann hefur gert áður, að krafan um 12 millj. dollara ríkisábyrgð barst fyrst 15. sept., þegar fyrirtækið var vikum saman búið að eiga í viðræðum við ríkisstj. um málefni fyrirtækisins, rétt áður en samgrh. fór til Lúxemborgar. Hann hefur sjálfur lýst yfir að ef hann hefði fengið þessa kröfu fyrr hefði hann ekki farið til Lúxemborgar. Hvernig stendur á því, að allan þennan tíma, ágústmánuð og fyrri hluta septembermánaðar, höfðu stjórnendur fyrirtækisins ekki hugmynd um þessa miklu erfiðleika sem nú eru svo brýnir að það virðist nánast vera klukkustundarvandamál hvenær þetta frv. er afgreitt hér frá Alþ.? Er fyrirtækinu svona illa stjórnað, hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson, að það varð fyrst ljóst 15. sept. að það þurfti fyrir 1. nóv. að fá 12 millj. dollara ríkisábyrgð til að fyrirtækið sigldi ekki í strand? Hvers konar stjórn er á fyrirtækinu?

Hæstv. samgrh. Steingrímur Hermannsson lýsti einnig yfir í þessum umr. að hann hefði óskað eftir að fá endurskoðaða rekstraráætlun fyrir fyrirtækið í heild, vegna þess að síðan 12 millj. dollara krafan var sett fram hefðu orðið grundvallarbreytingar í þeim forsendum sem þar eru. Sala Boeing-vélanna hefur ekki tekist. Hvað sagði hæstv. samgrh.? Hann sagði: Ég hef ekki fengið nein svör við þeim spurningum mínum. — Hann hefur ekki fengið enn neitt svar við því, hvort þessi 12 millj. dollara ábyrgð nægi, vegna þess að forsenda hennar var að sala tækist á Boeing-vélunum tveimur. Alþingi Íslendinga veit ekki frekar en hæstv. samgrh. hvort þessar 12 millj. dollara eru nóg eða hvort það þarf meira til. Það er m.a. ein af þeim spurningum sem ég vék að í ræðu minni og hv. þm. var nánast að gera gys að, að þyrfti að liggja fyrir Alþ. hvort þetta væri nóg svo Alþ. þyrfti ekki aftur um miðjan nóv. að fjalla um nýtt frv. um ríkisábyrgðir fyrir þetta fyrirtæki — eða á miðjum vetri.

Hæstv. samgrh. vék einnig að því, að hann hefði óskað eftir endurskoðun á áætlunum um Atlantshafsflugið vegna þess að áætlanir fyrirtækisins um væntanlegan taprekstur á því flugi hafa sífellt verið að breytast á undanförnum vikum, — þær hafa margfaldast á fáeinum vikum. Hæstv. samgrh. lýsti því yfir, að hann hefði ekki heldur neinar upplýsingar um hvað fyrirtækið teldi að tapið yrði á Atlantshafsleiðinni. — Þetta eru auðvitað grundvallarspurningar í þessum efnum.

Ég vil segja það við hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson, sem ég hef átt mjög gott samstarf við í nefndum þingsins, að þegar ég vék að því í minni fyrri ræðu að það yrðu að fást svör við spurningum, þá voru það grundvallarspurningar af þessu tagi sem ég átti við. Hvers vegna setti ég þetta fram? Jú, ég setti þetta fram vegna þess meginlærdóms sem draga má af umr. 1975, sem er það fordæmi sem þingið hlýtur að fara eftir. Jafnlögfróður maður og söguglöggur og hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson hlýtur að vita að í þingsögunni gilda fordæmin ansi sterkt. Þessar umr. eru það fordæmi, sem við höfum fyrst og fremst til að fara eftir, og það kemur skýrt fram í þessum umr., eins og ég rifjaði upp, að þm. kvarta yfir því við frágang málsins að þeir hafi ekki fengið svör við grundvallarspurningum og viti þess vegna ekki hvort þessi ríkisábyrgð muni leysa vanda fyrirtækisins. Hv. þm. Steingrímur Hermannsson, núv. hæstv. samgrh., sagði að þingið væri að afgreiða þetta mál með bundið fyrir augun.

Nú eru erfiðleikarnir óumdeilanlega miklu meiri og miklu hærri upphæðir í veði. Þegar reynslan frá 1975 blasir við, þá er einsýnt að Alþingi Íslendinga verður að vita, þegar það afgreiðir þetta frv., hvort í fyrsta lagi rekstraráætlunin fyrir Atlantshafsflugið — sú síðasta — sé enn í gildi eða hvort hér er verið að tala um flug sem e.t.v. miklu meira tap er gert ráð fyrir að verði á. Í öðru lagi þarf Alþingi íslendinga að vita hvort þessar 12 millj. dollara nægi eða ekki. Áætlunin frá 15. sept. var byggð á forsendum sem við vitum að eru ekki lengur í gildi. Er ekki sanngjörn ósk að Alþ. viti hvort fyrirtækið ætlar kannske að koma aftur í nóv. og biðja um nýja ríkisábyrgð og svo kannske enn í des. og biðja þá enn um ríkisábyrgð?

Ég vék einnig að því, að eftirlitsmenn, sem ríkisstj. hefur skipað með rekstri fyrirtækisins, hefðu sent frá sér spurningar 30. sept. varðandi grundvallarþætti í rekstrar- og greiðslustöðu fyrirtækisins. Þeim spurningum hefur ekki enn verið svarað. Er greiðslustöðu fyrirtækisins e.t.v. þannig háttað í dag og á næstu vikum að það frv., sem hér liggur fyrir, breyti litlu sem engu? Er ekki rétt að við fáum svör við því? Ég vil minna hv. þm. á það eða segja honum frá því, að í umr. í Sþ. í gær lýsti hæstv. samgrh. yfir að hann óttaðist að vegna aðgerða stjórnar fyrirtækisins á undanförnum vikum og mánuðum kæmi þessi aðstoð of seint. Það voru ekki mín orð. Það voru orð hæstv. samgrh.

Þegar Alþingi Íslendinga er fyrir hönd þjóðarinnar að gangast í ábyrgð fyrir hærri upphæðum en dæmi eru um áður varðandi þetta fyrirtæki tel ég að nauðsynlegt sé að Alþ. geri það á forsendum, sem eru ljósar og skýrar, og lykilspurningum varðandi framgang málsins verði af hálfu fyrirtækisins svarað. Ég mun þess vegna beita mér fyrir því, að í fjh.- og viðskn., líkt og gert er ætíð við meðferð mála hér í þinginu, skuli þeir málsaðilar, sem þessu máli tengjast, mæta á fundum og þm. fá tækifæri til að spyrja þá þeirra spurninga sem þegar hafa komið fram í þingsölum frá mér, frá hv. þm. Eiði Guðnasyni, frá hv. þm. Benedikt Gröndal, frá hv. þm. Árna Gunnarssyni og siðast en ekki síst frá hæstv. samgrh.

Það er vissulega rétt, að fjh.- og viðskn. þessarar deildar er vel skipuð, og gleðilegt, að þau þáttaskil hafa orðið í þingflokki Sjálfstfl. að Þorv. Garðar Kristjánsson setur nú sitt aðaltraust á Gunnar Thoroddsen. Það eru vissulega tíðindi í þessari deild og hafa ekki alltaf fallið þau orð frá öllum þm. Sjálfstfl. í garð hæstv. núv. forsrh.

Ég vil svo að lokum ítreka spurningu mína um hver sé afstaða þingflokks Sjálfstfl. til þess, hvar málið hefði átt að leggja fram, og spyrjast fyrir um hvernig á því standi, að 19 þm. af 22 þm. Sjálfstfl. höfðu svo lítinn áhuga á Flugleiðamálinu að þeir sóttu ekki fund í Sþ. í gær þegar málið var á dagskrá. Hvað höfðu þessir þm. að gera og hvað var mikilvægara af þeirra verkefnum en að sitja fund aðalstofnunar þingsins um þetta mál? Það væri æskilegt að fá nánari skýringar á áhugaleysi Sjálfstfl. á umr. um málið.

Hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson vék hér að samþykkt þingflokks Sjálfstfl., þar sem voru bornar fram vítur á Alþb. fyrir afskipti þess af málinu. Þessar vítur voru einkum tengdar því, að fulltrúar Alþb. bentu þjóðinni í byrjun sept. á að sú skýrsla, sem Flugleiðir hefðu þá lagt fram, væri fölsk, hún gæfi ekki rétta mynd af ástandinu. Ég rakti ítarlega í Sþ. í gær hvernig reynslan hefði sýnt, að lýsing þessarar skýrslu á eignastöðu og rekstrarstöðu fyrirtækisins væri röng, og hvernig þeir, bæði þingflokkur Sjálfstfl. og Alþfl., sem víttu okkur fulltrúa Alþb. fyrir að segja þjóðinni satt þá um þetta efni, standa núna uppi og þora ekki að minnast á þessa sömu skýrslu. Þrátt fyrir ítarlega gagnrýni, sem ég hafði í Sþ. í gær á hvernig málflutningur þingflokks Sjálfstfl. hefði orðið í þessu máli, vék aðaltalsmaður flokksins ekki einu orði að þessari sögu. Vítur þingflokkanna tveggja eru með helstu háðsmerkjum síðustu missera yfir aðgerðir þm. Tveir þingflokkar koma saman og lýsa yfir gagnrýni, beinlínis vítum, á þingbræður sína og aðra sem hafa leitast við að vara almenning í landinu við því að upplýsingar frá stórfyrirtæki hér í landinu kunni ekki að reynast réttar. Svo kemur það auðvitað á daginn að þessar upplýsingar hafa í öllum grundvallaratriðum reynst bæði rangar og ófullnægjandi. Við stöndum í þessum sporum í dag þrátt fyrir skýrsluna í septemberbyrjun 1980, eins og lýst var í Sþ. í gær.

Það er hins vegar gleðilegt að í þessari ályktun þingflokks Sjálfstfl. kemur fram, að hann vill gæta hagsmuna almennings í landinu. Það er í fyrsta skipti í sögu þessa máls sem það kemur fram. Vonandi verður það leiðarljós þm. flokksins við meðferð þessa máls hér í þingi að hugsa meira um hagsmuni almennings í landinu en forstjóraklíkuna hjá Flugleiðum.