20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)
1. mál, fjárlög 1981
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég vek athygli hv. þm. á því, að það er nauðsynlegt að samþykkja þessa till., — nauðsynlegt til þess að fullnægja beinum lagafyrirmælum. Í lögum um launaskatt segir að 2% af launaskatti skuli renna til Byggingarsjóðs ríkisins. Þessi till. felur þetta í sér. Því er nauðsynlegt að samþykk ja hana. Þessu beini ég sérstaklega til þeirra sem enn eiga eftir að greiða atkv. Ég mun í samræmi við þetta greiða atkv. og segi já.