20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)

1. mál, fjárlög 1981

Sigurgeir Bóasson:

Herra forseti. Ég met mikils áhuga hv. þm. Vestf. í stjórnarandstöðu fyrir auknu fjármagni til Vestfjarða, eins og þessi brtt. ber með sér og fleiri till. sem hér hafa komið fram í dag. Hins vegar verður einhvers staðar að stoppa. Við búum í yfirspenntu þjóðfélagi hvað framkvæmdir varðar og verðum því að stilla kröfum í hóf, því að annars eyðileggur verðbólgan þann þjóðfélagslega ávinning sem auknar framkvæmdir eiga að leiða af sér. Ég segi nei.