20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (2090)

1. mál, fjárlög 1981

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Það er undirstöðuatriði í lýðræði að fram geti farið nokkurn veginn frjáls skoðanamyndun, og það hefur verið viðurkennt í öllum lýðræðislöndum veraldar, að það er ekki hægt að láta hana vera háða peningaveldi. Þeir, sem eru andvígir því, að einstaklingar, sem ráða yfir fjármagni, geti þar með ráðið yfir skoðunum meðbræðra sinna, hafa þessar furðulegu afturhaldshugmyndir sem nú virðast vera vaxandi í Sjálfstfl. (Gripið fram i.) Aðstoð, sem tíðkast í öllum nágrannalöndum okkar, var tekin upp hér í stjórnartíð Ólafs Thors og Bjarna Benediktssonar í Sjálfstfl. með fullu samþykki þeirra og í samvinnu við þá. Það voru þroskaðri lýðræðissinnar en þeir sem flytja svona afturhaldstillögur í dag. Ég segi nei.