20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1872 í B-deild Alþingistíðinda. (2099)
1. mál, fjárlög 1981
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Rekstur þessa skips hefur ekki gengið nógu vel og er erfitt að finna rök fyrir því, að ríkissjóður eigi að styrkja þessa skipaútgerð með stórum fjárhæðum. (Gripið fram í.) Nei, en það er annars staðar í frv. Aftur á móti er hér um það að ræða að breyta vanskilaskuldum í lán til væntanlega langs tíma og er eðlilegt að að því verði unnið, en til þess gefst nægt svigrúm. Við eigum eftir að afgreiða lánsfjáráætlun. Þar á þetta mál í raun og veru miklu frekar heima, og kannske er ekki síður ástæða til að líta á hliðstæð vandamál hjá svipuðum útgerðaraðilum sem líkt stendur á um. Ég tel því ekki tímabært að afgreiða þetta mál nú og segi því nei.